Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 25
ræktarinnar á veturna enda held ég
að menn þurfi góða hreyfingu þrisv-
ar, fjórum sinnum í viku.“
Hann mælir sérstaklega með
starfsemi HL-stöðvarinnar. „Þarna
er boðið upp á frábært eftirlit og
þjónustu sem er okkur nauðsynleg.
Ég er einlægur aðdáandi stöðvar-
innar,“ segir hann. „Þarna hittir
maður aðra í svipuðum sporum svo
þetta verður ákveðinn félagsskapur.
Hóparnir verða iðulega að nokkurs
konar klúbbum og menn bregðast
mjög illa við ef það á að færa þá eitt-
hvað þar á milli. Þarna eru menn
samherjar enda hafa þeir lent í svip-
uðu eða því sama og það skiptir
miklu máli.“
Í ljós kemur að Haraldur hellti
sér út í félagsstörf fyrir hjartasjúk-
linga eftir að hann fór í hjartaþræð-
inguna, ekki bara hjá HL-stöðinni
heldur einnig hjá Hjartaheillum.
„Mér fannst skipta máli að menn
legðu hönd á plóginn því þessi sam-
tök hafa gert mikið fyrir þennan
hóp. T.d. er HL-stöðin komin til að
frumkvæði þessara samtaka, þ.e.
Hjartaheilla, SÍBS og Hjartavernd-
ar.“
Haraldur telur mikilvægt að fólk
gæti vel að heilsunni, jafnvel þótt
fullfrískt sé. „Ég held að sú vísa sé
aldrei of oft kveðin að láta fylgjast
vel með sér, láta mæla blóðþrýsting
og blóðfitu. Margir halda að þetta sé
bara sjúkdómur sem hendir fólk á
elliárunum en oft kemur þetta fyrir
fólk á besta aldri,“ segir hann, og
talar þar af reynslu.
Í dag hefur Haraldur látið af
skólastjórastarfinu en hefur engu að
síður feikinóg að gera, bæði í vinnu
fyrir menntasvið Reykjavíkur-
borgar og Menntaskólann Hrað-
braut, auk félagsstarfanna. Hann
segist þó vera að „trappa sig niður“.
Enda er nú allt í lagi að njóta þess
að hafa það rólegra en áður, eða
hvað?
„Nei, nei, ekkert frekar,“ svarar
hann um hæl. „Menn geta líka alveg
eins notið þess að gera eitthvað!“
Alþjóðlegi hjartadagurinn verður
haldinn á morgun, sunnudag. Af því
tilefni bjóða ÍSÍ, Hjartavernd og að-
standendur alþjóðlega hjartadags-
ins almenningi að taka þátt í Hjarta-
hlaupinu og stafgöngudeginum víðs
vegar um landið.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 25
Menningarráð Vesturlands og Háskólinn á Bifröst
halda sameiginlega ráðstefnu um byggingararfinn,
skipulag, íslenska byggingarlist í dreifbýli og list í
landslagi.
Ráðstefnan er öllum opin og hvetjum við alla sem
hafa áhuga á menningarstarfi, skipulagsstarfi og
listum að taka þátt. Aðgangur að ráðstefnunni er
ókeypis.
Fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson, forstöðumaður
Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Bifröst
Ráðstefnunni lýkur með umræðum sem Njörður
Sigurjónsson stjórnar, þátttakendur verða
nemendur í menningarstjórnun við Háskólann
á Bifröst, nemendur í umhverfisskipulagi og
skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands,
fulltrúar skipulagsnefnda sveitarfélaganna og aðrir
áhugamenn um menningu á landsbyggðinni.
Nemendur Landbúnaðarháskólans sýna verkefni
fyrir framan ráðstefnusalinn.
Að loknum umræðum verður farið í Jafnaskarðsskóg
og notið listsýningar í skóginum og veitinga.
Jafnaskarðsskógur er aðeins í nokkurra mínútna
fjarlægð frá Bifröst, ekið er niður með Hreðavatni.
Góð bílastæði eru í 5 mínútna göngufæri frá
listsýningunni.
Menning í landslagi
Ráðstefna um byggingararf, skipulag og list í landslagi
á Bifröst 27. september 2008 kl. 13:00 til 16:00
Dagskrá:
Guðrún Gunnarsdóttir varaformaður menningarráðs
setur ráðstefnuna fyrir hönd Menningarráðs Vesturlands.
Pétur H Ármannsson, arkitekt: „Byggingararfur í sveitum
landsins“.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi
bæjarstjóri í Stykkishólmi: „Stykkishólmur, hvernig tókst
að þróa skipulag bæjarins og vernda menningarverðmæti
skipulagsins og húsanna”.
Kolfinna Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá
Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst:
„Menningarleg áhrif breytinga á eignarhaldi jarða”.
Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfræðingur og lektor við
Landbúnaðarháskóla Íslands: „Til hvers að skipuleggja?
Gæði og verðmæti góðs skipulags”.
Salvör Jónsdóttir, land- og skipulagsfræðingur Alta,
frá Melaleiti Hvalfjarðarsveit: „Landslagsmenning”.
Þóra Sigurðardóttir, listamaður og Sumarliði Ísleifsson,
sagnfræðingur; listabændur að Nýp, Skarðsströnd,
„Að gera gömlu húsi til góða og skapa því verkefni”.
Elísabet Haraldsdóttir, Menningarfulltrúi Vesturlands:
Listsýning i Jafnaskarðsskógi: „Að nýta náttúruna sem
sýningarstað”.
Umræður
Nánari upplýsingar er að finna áwww.menningarviti.is
og www.bifrost.is
Austurhrauni 3
210 Garðabær
S. 533 3805
Litríkt Skræpóttur samfestingur
frá Emilio Pucci.
Í ökklasídd Bjartur og bleikur kjóll
frá Salvatore Ferragamo.
Sumar hvað? Dragsíður og vetr-
arlegur kjóll úr D&G-línunni.
Í strandgírnum Röndóttur sum-
arklæðnaður frá D&G.
Vörn Hjá Emporio Armani vita menn
að fatnaður er besta sólarvörnin.