Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag kl. 10, í Ingólfsstræti 19 sem hefst með biblíufræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Guðþjónusta kl. 11. Adrian Lopez og Vigdís Linda Jack prédika. Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag kl. 10.30, á Breka- stíg 17 sem hefst með biblíufræðslu. Guðsþjónusta kl. 11.30. Eric Guðmunds- son prédikar. Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum | Sam- koma í dag, laugardag kl. 10, á Brekku- braut 2, Reykjanesbæ sem hefst með bibl- íufræðslu. Guðsþjónusta kl. 12. Einar Valgeir Arason prédikar. Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma á Eyravegi 67, Selfossi, í dag, laugardag kl. 10 sem hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 10.45. Elí- as Theodórsson prédikar. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Sam- koma í Loftsalnum, Hólshrauni 3, Hafnar- firði, í dag, laugardag sem hefst með fjöl- skyldusamkomu kl. 11. Eiríkur Ingvarsson prédikar. Biblíufræðsla fyrir börn og full- orðna kl. 11.50. AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prest- ur sr. Guðmundur Guðmundsson, félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Sunnudaga- skóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Æðruleys- ismessa kl. 20. Sr. Sólveig Halla Kristjáns- dóttir og sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Arna Valsdóttir, Stefán Ingólfsson og Baldvin Ringsted leiða söng og annast undirleik. ÁRBÆJARKIRKJA | útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, sóknarprestur Borgnesinga, þjónar ásamt sr. Þór fyrir altari. Kirkjukór Borgnesinga syngur ásamt kirkjukór Árbæjarkirkju, stjórnandi er Krisztina Kalló Szklenár og Guðmundur Hafsteinsson leikur á tompet. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðar- heimili kirkjunnar. Á eftir er boðið upp á veitingar. Nánar á www.arbaejarkirkja.is ÁSKIRKJA í Fellum | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Nýr barnakór Áskirkju syngur undir stjórn Rósu og Þórunnar. Prestur sr. Svanhildur Blöndal, organisti Magnús Ragnarsson. BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari, Álftaneskórinn syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í sal Álfta- nesskóla undir stjórn sr. Hans Guðbergs Alfreðssonar. BOÐUNARKIRKJAN | Samkoma á laugar- daga kl. 11, í Hlíðasmára 9. Kópavogi. Ragnheiður Laufdal vígð sem safnaðar- prestur kirkjunnar. Prestvígsluna annast Steinþór Þórðarson og Þröstur Steinþórs- son. Samkomur í anda 12 sporanna á fös- tud. kl. 19. Biblíulestur kl. 17. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Bangsadagur í barnaguðsþjónustunni kl. 11. Prestur er Ása Björk, Rannveig Iðunn og Palli organisti sjá um stundina. Allir komi með uppáhaldsbangsann sinn. BREIÐHOLTSKIRKJA | Hausthátíð og fjöl- skyldustund kl. 11. Á eftir verður boðið upp á leiki, þrautir og pylsur utandyra. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Tómasarmessa kl. 20. Orð Guðs, fyrirbæn, máltíð Drottins, tónlist. Tómasarmessan einkennist af fjöl- breytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrirbænarþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna og er haldin síð- asta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors Hressing í safnaðarheimili eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Foreldrar eru hvattir til þátttöku með börn- unum. Hljómsveit ungmenna leikur undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður Steingrímur Sævarr Ólafs- son, fv. fréttastjóri. Fjölnisbræður lesa bænir og ritningartexta. Fermd verður Ing- unn Ragnarsdóttir frá Noregi. Kór Bústaða- kirkju syngur, organisti Renata Ivan og prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson, organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju A hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á neðri hæð. Veitingar eftir messu. Starf kirkjunnar má sjá á digraneskirkja.is DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar, dómkórinn syngur, org- anisti er Örn Magnússon. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Kyrrðarstund á mánu- dag kl. 18. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs- prestur prédikar, kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ásdísar Arnalds, organisti er Ástríður Har- aldsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Sigríðar Tryggvadóttur. Afmælisbörn mánaðarins fá afmælisgjöf frá kirkjunni. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Kyrrð- arstund á þriðjudag kl. 12. Orgelleikur, íhugun og bæn. Nánar á www.fellaoghola- kirkja.is FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Barna- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Stund fyrir alla fjölskylduna. Æðruleysismessa kl. 20. Frí- kirkjubandið leiðir sönginn og fluttur verður vitnisburður. Kaffi í safnaðarheimilinu. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl. 14. Ruth Guð- mundsdóttir prédikar. Lofgjörð, barnastarf og boðið til fyrirbæna í lok samkomu. Kaffi og samvera og verslun kirkjunnar opin. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 14. Bryndís Valbjarnardóttir predikar og þjónar fyrir altari. Anna Hulda leiðir barnastarfið. Nemendur Ólafs Elías- sonar, Dóra Hrund Gísladóttir og Inga María Backman leika undir á píanó og leika einnig stutt klassísk píanóverk. Tónlist- astjórinn Anna Sigga ásamt kór Fríkirkjunn- ar leiða sönginn. GRAFARHOLTSSÓKN | Messa kl. 11 í Þórð- arsveig 3. Prestur sr. Sigríður Guðmars- dóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, kór Graf- arholtssóknar syngur. Fyrsta altarisganga fermingarbarna í Sæmundarskóla. Kirkju- kaffi. Kirkjuskóli kl. 11 laugardaginn 27. sept. í Ingunnarskóla. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari, kór Grafarvogskirkju syngur, organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Lena Rós Matthíasdóttir, umsjón hefur Hjörtur og Rúna, undirleikari er Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Kór Grafarvogskirkju syngja, undirleikari er Guðlaugur Viktors- son. Sunnudagaskóli á sama tíma. Um- sjón hafa Gunnar, Díana og Kristjana. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfinu. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot í líknarsjóð Grensáskirkju. Messuhópur þjónar, kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng, organisti Árni Arinbjarnarson og prestur er sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Kaffi eftir messu. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12. Samvera aldraðra á miðvikudag kl. 14. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórs- syni á fimmtudag kl. 18.10. GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Djákna- guðsþjónusta kl. 14. Svala Sigríður Thom- sen djákni og organisti er Bjartur Logi Guðnason. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11 á tíu ára afmæli Hásala. Prestur sr. Þórhall- ur Heimisson, kantor Guðmundur Sigurðs- son og Barbörukórinn leiðir söng. Sunnu- dagaskóli á sama tíma í safnaðar- heimilinu. Gregorsk morgunmessa alla miðvikudaga kl. 8. Prestur Þórhallur Heimisson, forsöngvarar Guðmundur Sig- urðsson og Lux Aeterna. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Lautatekór Strömstadskirkjunnar í Svíþjóð syngur undir stjórn Sigfrid Run- bäck, undirleikari er Karin Rosander. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og messuþjónum. Organisti er Hörður Áskels- son kantor. Barnastarfið er undir forystu Rósu Árnadóttur. Djús og kaffi eftir messu. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Forsöngvari Guðrún Finn- bjarnardóttir, organisti Hörður Áskelsson. Messukaffi. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Barna- starf í umsjá Erlu Guðrúnar og Páls Ágústs. Organisti Douglas Brotchie. Helga Soffía Konráðsdóttir. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sam- koma kl. 17. Níels Jakob Erlingsson talar. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 11. Umsjón hefur Anne Marie Reinholdtsen. Gestir eru Majórarnir Brit og Jan Öystein Knedal frá Noregi. Lofgjörðar- samkoma kl. 17 á Fjörheimum, húsnæði 749 á Vallarheiði. Britt og Jan Oystein Kne- dal syngja og tala. Heimilasamband fyrir konur á mánudag kl. 15, Brit Knedal talar. Kvöldvaka fimmtudag kl. 20. Happdrætti og veitingar. HRAFNISTA Reykjavík | Guðsþjónusta í samkomusalnum Helgafelli kl. 14. Organ- isti Magnús Ragnarsson, félagar úr Ás- kirkjukórnum syngja ásamt kór Hrafnistu. Ritningarlestra les Edda Jóhannesdóttir, prestur er sr. Svanhildur Blöndal. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Interna- tional church service in the fellowship hall at 13PM. Speaker is Lilja Óskarsdóttir. Al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður er Anne Christiansen, Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Barnastarf fyrir 3-12 ára krakka. Matsala eftir samkomur til styrktar MCI-biblíuskólanum. ÍSLENSKA kirkjan í Kaupmannahöfn | Messa í Sánkti Pálskirkju kl. 13. Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson sendiráðsprestur pre- dikar og þjónar fyrir altari. Eftir stundina í kirkjunni er messukaffi í Húsi Jóns Sig- urðssonar. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru Reyðarf. | Messa kl. 11. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30. Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán- uði kl. 16. Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í mánuði kl. 16. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er messa á ensku kl. 18.30. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðvikudaga kl. 20. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 sem hefst með barnasamveru svo fara börnin í safnaðarheimilið í fylgd Erlu og Hjördísar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Þórunn Bene- diktsdóttir les texta og aðstoðar við helgi- haldið, prestur sr. Skúli S. Ólafsson. KÓPAVOGSKIRKJA | Barnastarf kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón hafa Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ýmir. Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson predikar og þjónar fyrir altari, félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og leiða safnaðar- söng, organisti og kórstjóri Lenka Máté- voá, kantor kirkjunnar. Kaffi eftir messu. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prest- ur Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Flutt verður Kantata 48 e. J.S. Bach. Flytjendur eru Helga Ragnarsdóttir, Lilja Dögg Gunnars- dóttir, Þorsteinn Freyr Sigurðsson og Oddur Arnþór Jónsson. Jane Sutarjo leikur á fiðlu, stjórnandi Jón Stefánsson. Sunnudaga- skóli í safnaðarheimilinu á meðan. LAUGARNESKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni af vitjun biskupsins yfir Íslandi hr. Karls Sigurbjörnssonar til safnaðarins. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur mun einnig þjóna ásamt sóknarpresti og öðrum safnaðarþjónum. Biskup prédikar auk þess sem hann ávarpar börnin í sunnu- dagaskólanum og færir þeim gjöf. Kaffi- veitingar í safnaðarheimili á eftir. Hátíðar- guðsþjónusta í sal Sjálfsbjargar á höfuð- borgarsvæðinu kl. 13.30. Hr. Karl prédikar. Kaffiveitingar á eftir. LÁGAFELLSKIRKJA | Messa kl. 11. Altaris- ganga. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir, kór Lágafellskirkju leiðir söng undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar organ- ista. Meðhjálpari Arndís Linn. Sunnudaga- skóli í kirkjunni kl. 13. Umsjón annast Hreiðar Örn. Ath. að viðgerðir standa yfir á Mosfellskirkju. MÖÐRUVALLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörnin boðin sérstaklega vel- komin og þeim afhent Biblían að gjöf frá söfnuðinum. Beðið fyrir börnunum með nafni. Messukaffi í Leikhúsinu á eftir. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Sunnudaga- skóli kl. 11. Umsjón hafa Brynja Vigdís Þor- steinsdóttir og Jenný Þórkatla Magnúsdótt- ir. ÓHÁÐI söfnuðurinn | Tónlistarmessa kl. 14 og barnastarf á sama tíma. Tveir nemar í klassískum gítarleik og píanóleik frá LHÍ koma í heimsókn og leika 2 verk hvor. Kirkjukór Óháða safnaðarins ásamt organ- istanum Kára Allanssyni sjá um sálma- söng. Barnastarf er í höndum Elíasar og Hildar, meðhjálpari er Petra Jónsdóttir. Maul eftir messu í umsjón Ragnars og Sig- rúnar. www.ohadisofnudurinn.is SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17. Ræðumaður sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Lofgjörð, fyrirbæn og barnastarf. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Guðrún og Þórdís. Kertastund kl. 20. Gestir frá Siglufirði. Sr. Sigurður Ægisson leiðir messuna og fé- lagar úr kirkjukór Sauðárkróks og Siglu- fjarðarkirkju syngja saman, organisti Rögn- valdur S. Valbergsson. Kvöldhressing í safnaðarheimlinu að messu lokinni. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, kór Seljakirkju leiðir söng, organisti er Jón Bjarnason. Altaris- ganga. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 16. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, kór Selja- kirkju syngur og undirleik annast Jón Bjarnason. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Lesari er Ólafur Egilsson, bænahóp- ur, Gunnlaugur A. Jónsson og Jón Hákon Magnússon. Kammerkór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Jóhanna Halldórs- dóttir alt söngkona syngur sálmalög. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Prestur er Sigurður Grétar Helgason. STÆRRA-Ársskógskirkja | Guðsþjónusta kl. 14. Fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra að lokinni athöfn. VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 14. Lilja Ástvaldsdóttir prédikar. Aldurskipt barnakirkja. Kaffiveitingar og samfélag á eftir. www.vegurinn.is VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Djáknarnir Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir, Jó- hanna Kristín Guðmundsdóttir og Lilja Hall- grímsdóttir þjóna við helgihaldið. Sunnu- dagaskóli á sama tíma undir stjórn Ármanns H. Gunnarssonar djákna. Hress- ing að lokinni guðsþjónustu. Kvöldvaka kl. 20. Gospelkór Jóns Vídalíns og kór Vídal- ínskirkju syngja undir stjórn Maríu Magnús- dóttur og Jóhanns Baldvinssonar. Ármann H. Gunnarsson djákni flytur hugleiðingu og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðs- þjónusta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syng- ur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur. Fundur með foreldrum fermingarbarna í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Sunnudagaskóli kl. 11. Stund fyrir börn á öllum aldri. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir héraðsprestur þjónar, kór kirkjunnar syngur undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur organista. Meðhjálpari er Ástríður Helga Sigurðardótt- ir. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Hanna Vilhjálmsdóttir og María Rut Bald- ursdóttir. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Þingeyrarkirkja í Austur-Húnavatnssýslu. Orð dagsins: Jesús læknar hinn lama. (Matt. 9.) MESSUR Á MORGUN Fyrstu kynni okk- ar voru á Raufar- höfn. Hans fjöl- skylda, Haraldur Krüger og kona hans Kristjana Konkordia Jóhannesdóttir fluttu til Raufar- hafnar frá Skálum á Langanesi vorið 1940. Þá sá ég þennan fjöruga en fá- mála dreng fyrst í fótboltaleik okkar heimastráka. Hann var fylginn sér í leiknum en afar heið- arlegur. Þannig var hans fram- koma öll þau ár er ég þekkti hann. Ungir fórum við til mennta, hann í skipasmíði hjá Kristjáni Nóa Kristjánssyni, ég í Mennta- Níels Krüger ✝ Níels Krügerfæddist á Skál- um á Langanesi 26. júní 1926. Hann lést 10. september síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Akureyrarkirkju 22. september. skólann á Akureyri. Við sátum saman í „rútunni“ frá Raufar- höfn til Akureyrar. Fyrst afar fámæltir en lagaðist þó. Ungir drengir að hleypa heimadraganum. Dengsi fær samastað hjá móðurbróður sín- um við Eiðsvallagötu, ég hjá frænda mínum rétt hjá, Norðurgötu. Strax frá fyrstu eyddum við öllum tómstundum, saman; áflog, spilamennska, matador og rommy, kappræður um landsmál, hann rauður, ég þá blár. Aldrei hrutu heiftaryrði né smánarorð þó hart væri tekist á. Öll aðfanga- dagskvöld, að loknum kvöldverði á okkar „heimilum“ á Akureyri, komum við saman í herbergi Dengsa. Þar fyrstu jól setið þegj- andi en áttuðum okkur fljótt. Ekki lengur mömmudrengir, nú ungir menn að takast á við lífið. Þá hóf- um við léttara tal og tókum til fyrri iðju, spil, allskonar, ljóðalest- ur o.fl. Seinna er ég fór frá Akureyri að loknu námi, fann ég alltaf betur hversu þessi vinur minn var vel gerður, hógvær, trúr, skoðanafast- ur og umfram allt heiðarlegur gagnvart öllu og öllum. Ég gæti sagt frá mörgum glett- um er við gerðum ásamt vini okk- ar Óskari Vatnsdal. En það meiddi engan og aðeins fyrir okkur. Við Dengsi héldum nánu sam- bandi alla tíð. Naut ég oft gest- risni þeirra, Hólmfríðar og Dengsa. Síðast hafði ég samband við hann 7. sept. sl. Þá var hann kátur og gamansamur er ég sagði honum að við hjónin færum til Barcelona 10. sept. Er við komum heim var það fyrsta sem ég sá í Fréttablaðinu að Dengsi hafði lát- ist 10. sept. Þetta var þungt áfall og óvænt. En þetta er víst leiðin okkar allra. Svo vissulega söknum við góðs drengs. Dengsi, hvíl þú í friði, kæri vinur. Við hjónin vott- um stórfjölskyldu hans okkar dýpstu samúð og hluttekningu í þeirra harmi. Árni Einarsson. Elsku afi, það er tvennt sem mér er sér- lega kært í minning- unni um þig. Þegar við gengum út úr kirkjunni eftir útför Stellu komstu til mín, tókst um herðar mér og baðst mig að kalla þig afa. Síðan þá hefur þú verið afi minn. Þú tókst mér afar vel og mér fannst ég alltaf velkominn í Lyngbrekkuna þegar ég ólst upp og ég skynjaði snemma að þið lituð strax á okkur mömmu sem hluta af fjölskyldunni. Það kemur því sennilega ekki á óvart hve hrifinn þú varst af dóttur Sigurður Þorkelsson ✝ Sigurður Þor-kelsson fæddist í Sandprýði á Stokks- eyri 23. júní 1922. Hann lést á dvalar- heimilinu Hrafnistu í Reykjavík 25. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Digranes- kirkju 5. september. minni, Örnu Söru, en hún átti vísan stað í glugganum hjá þér, sem og á náttborðinu við hlið Stellu. Óteljandi eru þær minningar sem ég á um þig, þó ég hafi dregið þessar tvær fram, og eru bílferðir, skrif- borðsskápur, jólahald og neftóbak meðal þeirra sem efst koma upp í hugann. Hvíl í friði, Guðmundur Örn. Elsku afi. Nú hnígur sól að sævarbarmi, sígur húm á þreytta jörð. Nú blikar dögg á blómahvarmi, blundar þögul fuglahjörð. Í hljóðrar nætur ástarörmum allir fá hvíld frá dagsins hörmum. (Axel Guðmundsson.) Kristín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.