Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Þegar haustið lagð- ist yfir landið okkar og skartaði sínum fögru litum kvaddi Sigrún frænka okkar og vinkona þetta jarðlíf. Af miklum dugnaði og æðruleysi háði hún langa og á köfl- um harða baráttu við illvígan sjúk- dóm sem að lokum lagði hana að velli. Dugnaður og þrautseigja var áberandi í fari Sigrúnar og margs er að minnast eftir áralöng kynni. Margar ánægjulegar stundir höf- um við átt með þeim hjónum og varla hægt að nefna Sigrúnu án þess að Ragnar sé nefndur í sömu setningu svo náin og samstiga voru þau. Af mörgu er að taka en of- arlega í huga er „brúðkaupsferðin“ svokallaða til Grikklands sem við fórum í ásamt fleirum til að vera við brúðkaup Lóu og Stamatiz. Gaman var að kynnast hinu gamla menn- ingarlandi og sögu þess og fá um leið að vinna með grísku fjölskyld- unni að undirbúningi 350 manna veislu. Stemningin sem myndaðist er ógleymanleg og áttu Sigrún og Ragnar ekki minnstan þátt í að skapa hana. Stórt skarð er höggvið í ættingja- og vinahópinn og Sig- rúnar er sárt saknað. Um leið og við þökkum fyrir allar samverustundirnar sendum við að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Inga, Bjarni, Þórdís (Dídí), Rannveig og Pálmar. Frá Sigrúnu frænku stafaði fág- un, eljusemi, metnaður og falleg lífssýn. Vegna þessa krafts höfum við systur horft upp til hennar alla tíð og þótt félagsskapur hennar af- ar dýrmætur. Þegar við vorum litlar fannst okkur alveg merkilegt hvað Sigrún nennti að spjalla við okkur um dag- inn og veginn. Hún hlustaði með raunverulegum og einlægum áhuga, þó svo það ætti að heita að fullorðna fólkið væri samankomið til að skrafa eða skemmta sér. Allt- Sigrún Ólafsdóttir ✝ Sigrún Ólafs-dóttir fæddist í Reykjavík 13. des- ember 1950. Hún lést á líknardeild Landspítalans 17. september síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Há- teigskirkju 25. sept- ember. af hefur hún hvatt okkur áfram í því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur og ekki verið spör á hrósið. Hún hefur tekið þátt í sorgum okkar og gleði. Hún veitti okk- ur mæðgum mikinn stuðning þegar pabbi dó, hún hefur fagnað með okkur útskriftum og verið fljót til þegar börnin okkar komu í heiminn. Það er út af þessu sem Sigrún hef- ur alltaf verið mikil uppáhalds- frænka okkar systra. Skemmtilegustu ferðalögin voru þegar fjölskyldur okkar fóru saman eitthvað út á land eða til útlanda. Aldrei neitt vesen, aldrei nein leið- indi, bara dásamlegar samveru- stundir sem svo gaman er að rifja upp. Við kveðjum fallegu frænku okk- ar með bæninni hans pabba. Eyddu Drottinn öllum fljótt, ótta úr huga mínum. Svo ég geti sæl í nótt, sofið í faðmi þínum. (Guðmundur Salbergsson) Elsku Raggi, Bylgja, Örvar, Dröfn og Valla frænka, við sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar innilegustu samúðarkveðju. Hrund og Sigríður. Kæra Sigrún, náinn samkennari og góður vinur frá fornu fari! Hve sárt ég sakna þess nú að hafa ekki heilsað upp á þig í veikindum þín- um, hversu oft sem ég strengdi þess heit, þar til fyrir rúmri viku, að ég dreif mig loks upp á Land- spítala í þessum tilgangi. En þá greip ég í tómt. Ólíkt þér brást mér kjarkur til að heilsa upp á þig í vistarverum er þá höfðu tekið við þér. En ólíkt mér veit ég að þú skilur þessa afstöðu mína og munt fyr- irgefa mér. Á leiðinni heim frá spítalanum kom Vöggukvæði Jóns Thoroddsen upp í huga minn. Og nú ertu öll. Þín verður sárt saknað af öllum sem nutu sam- skipta við þig en margs mætti minnast af löngu og farsælu sam- starfi okkar. Á vinnustaðnum og í góðra vina hópi gafstu mest en þáð- ir minnst. Er verkefni lágu fyrir varst þú aflvakinn, hugmyndasmið- urinn, leiðbeinandinn, gagnrýnand- inn og uppörvandinn. Þú varst mikið náttúrubarn og hreykin af uppruna þínum enda hlaustu í vöggugjöf marga sterka eiginleika formæðra þinna. Þú beittir stefnufestu Húnvetningsins, föðurömmu þinnar, þegar þess var þörf, en þegar þér var hrósað auð- sýndir þú lítillæti móðurömmu þinnar auk þess að skerpa hlustun áheyrandans með frásagnargleði Laugardæla svo að allir, smáir sem stórir, lögðu við hlustir. Aldrei barst þú sorg þína á torg þó að til þess lægi ærin ástæða. Léttleiki hugans og djúp skynsemi sem bjó í öfundsverðu lunderni þínu gerði þér bærilegra að lifa lengur með sjúkdómnum og eiga fleiri góð- ar stundir með fjölskyldu og vinum en ella. Það væri ekki í þínum anda að ég gerðist langorður um margháttaða eiginleika þína og göfugt lífshlaup en vel fremur að gera boðskap og bænir fyrrnefnds vöggukvæðis að kveðjuorðum mínum: Litfríð og ljóshærð og létt undir brún, handsmá og hýreyg og heitir Sigrún. Vizka með vexti æ vaxi þér hjá, veraldar vélráð ei vinni þig á! Svíkur hún seggi og svæfir við glaum, óvörum ýtir í örlaga straum. Veikur er viljinn og veik eru börn, alvaldur, alvaldur æ sé þeim vörn. Sofðu, mín Sigrún, og sofðu nú rótt, Guð faðir gefi, góða þér nótt. (Jón Thoroddsen) Aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Bestu þakkir fyrir allt og allt. Guðmundur Guðmundsson. Í dag kveð ég hinstu kveðju Sig- rúnu Ólafsdóttur samstarfskonu mína í næstum þrjátíu ár. Allan þennan tíma höfum við unnið sam- an í Ölduselsskóla í Reykjavík. Sigrún var afburða góður kenn- ari. Hún bar mikla virðingu fyrir starfi kennarans, var vinnusöm og lagði mikið á sig við undirbúning. Hún var mjög metnaðargjörn fyrir hönd nemenda sinna, gerði til þeirra miklar kröfur varðandi námsárangur, framkomu og hegðun en um leið umvafði hún þá einstakri hlýju og væntumþykju. Hún var áræðin og tilbúin til að fara ótroðn- ar slóðir í verkefnavali. Því til sönn- unar nægir að rifja upp að haustið 1993 voru tíu ára nemendur hennar í samvinnuverkefni við jafnaldra er- lendis og fóru samskiptin fram með aðstoð tölvu og mótalds. Unnið var með japanskt ljóðform sem kallast haiku. Sigrún var alla tíð mjög áhugasöm um notkun tækni við kennsluna og þegar hún fékk náms- leyfi skólaárið 2002 til 2003 stund- aði hún nám í tölvu- og upplýs- ingatækni. Nemendur skólans fengu svo að njóta þekkingar henn- ar og einstakrar lagni við að ein- falda hið flókna. Það fengum við hin einnig því Sigrún var óþreytandi að halda námskeið fyrir starfsmenn skólans og leiða fólk áfram af ein- stakri þolinmæði. Sigrún háði langa og stranga bar- áttu við sjúkdóminn sem loks lagði hana að velli. Þegar ég heimsótti hana snemma í þessum mánuði leyndist ekki að hverju stefndi. Engu að síður spurði hún út í skóla- starfið og gaf mér ráð. Ráð sem ég geymi og bætast við annað gott sem hún hefur lagt til Ölduselsskóla. Ragnar minn, Bylgja, Örvar og Dröfn, ég votta ykkur og fjölskyld- um ykkar mína dýpstu samúð. Daníel Gunnarsson. Kær vinkona mín og samstarfs- kona er látin. Ungar hófum við störf við Ölduselsskóla og unnum þar saman í tæp 30 ár. Í öll þau ár fylgdumst við að og urðum góðar vinkonur. Sigrún var einstök mann- eskja. Hún var góð eiginkona, móð- ir, tengdamóðir, amma, dóttir, syst- ir en síðast en ekki síst góður vinur, sem hægt var að treysta á. Ein- kunnarorð skólans okkar eru: færni, virðing og metnaður. Allir þessir kostir prýddu vinkonu mína. Hún var frábær kennari, hug- myndarík, áhugasöm, fljót að til- einka sér nýjungar og skipulögð. Hún bar mikla virðingu fyrir nem- endum sínum og hafði mikinn metnað fyrir þeirra hönd. Sigrún var kona hugrökk og þrautseig. Lengi barðist hún við erfiðan sjúkdóm, sem nú hefur lagt hana að velli. Kæra Sigrún þakka þér fyrir allt, öll skemmtilegu sam- tölin, göngutúrana og samveru- stundirnar. Við Þórarinn vottum Ragnari, börnum, móður, tengda- börnum, barnabörnum og systkin- um innilega samúð. Guðríður Pétursdóttir. Glæsileg, smart, brosmild og hlý. Þannig mynd af Sigrúnu kemur upp í hugann er ég minnist góðrar vin- konu sem látin er langt um aldur fram. Kynni okkar hófust er við byrjuðum að kenna saman á fyrstu starfsárum Ölduselsskóla. Síðan eru liðin þrjátíu ár og minningarnar streyma fram, minningar úr dag- legu amstri skólastarfsins og minn- ingar um skemmtilegar samveru- stundir í góðum hópi samstarfs- fólks. Sigrún naut virðingar meðal samstarfsfólks og nemenda. Hún var prúð í framkomu og létt í lund en hafði ákveðnar skoðanir um menn og málefni og lét þær gjarnan í ljós ef henni mislíkaði eitthvað. Hún var góður og vinsæll kennari, gerði kröfur til nemenda og sjálfrar sín en var jafnframt hlý, umhyggju- söm og þolinmóð. Þessir eiginleikar komu skýrt fram er hún tók að sér kennslu og umsjón með tölvu- námskeiði fyrir starfsfólk skólans. Þar var gott að vera nemandi. Sigrún barðist við krabbamein í tæplega átján ár. Á þeim tíma skiptust á skin og skúrir, sigrar og ósigrar. Þrátt fyrir það sýndi hún ótrúlegan viljastyrk, seiglu og æðruleysi. Hún leit á veikindin sem verkefni er þyrfti að leysa og bar- áttan einkenndist af sigurvilja. Hún átti mörg góð ár á milli stríða og naut þeirra vel og fór meðal annars í framhaldsnám við Háskóla Ís- lands. Þaðan lauk hún prófi í upp- lýsinga- og tæknimennt og starfaði eftir það á bókasafni skólans við góðan orðstír. Síðastliðnir mánuðir voru Sigrúnu erfiðir og þegar haustaði var nokkuð ljóst hvert stefndi. Síðasta baráttan var snörp og stutt og hinn 17. september lést hún umvafin kærleika og umhyggju fjölskyldu sinnar. Að leiðarlokum þakka ég Sigrúnu samstarf og vináttu öll þau ár sem við störfuðum saman og kveð hana með virðingu og þökk. Við Þórarinn sendum Ragnari og börnum þeirra, þeim Bylgju, Örvari og Dröfn, tengdabörnum og barnabörnum og móður Sigrúnar hugheilar samúð- arkveðjur. Anna Kristín Þórðardóttir. Við Sigrún vorum vinnufélagar í mörg ár. Við áttum margt sameig- inlegt, heima í sama hverfi, áttum börn á sama aldri og því var alltaf nóg til að tala um. Þegar við byrj- uðum að vinna saman hafði Sigrún kennt í nokkur ár og því gat ég ávallt leitað til hennar. Allt sem hún gerði var gert af vandvirkni og ná- kvæmni. Hún byrjaði snemma að tileinka sér nýjungar og þegar tölv- urnar hófu innreið sína var hún ein af þeim fyrstu í okkar skóla sem fóru í tölvunám. Fyrir nokkrum ár- um þurftum við samkennarar henn- ar endurmenntun í tölvukennslu. Þá kom í ljós hversu frábær kenn- ari Sigrún var. Hún hrósaði okkur og hvatti áfram og enginn fékk leyfi til að gefast upp. Það var augljóst hvaða aðferðir hún hafði tileinkað sér í kennslu og að þær skiluðu ár- angri. Sigrún var ákveðin og það fór ekki framhjá neinum ef henni mis- líkaði eitthvað, en hún var réttsýn og fljót að fyrirgefa. Sigrún fór í frí vegna veikinda en kom aftur í vinnu nýlega á bókasafnið þar sem hún hafði aukið við sig nám í upplýs- inga- og tæknimennt. Þó að Sigrún hafi ekki haft fulla heilsu þá var aðdáunarvert hversu mikið hún lagði á sig við vinnu og hönnun verkefna fyrir nemendur sína. Sig- rún var mjög góður félagi minn bæði í vinnu og einkalífi. Ég mun sakna hennar mikið. Samúðarkveðj- ur til Ragnars og fjölskyldunnar allrar. Björg Ásgeirsdóttir. Það er móðir æskuvinkonu minn- ar, Bylgju, sem ég kveð hér. Í stórum hóp á uppvaxtarárum verð- ur maður ekki alltaf þess aðnjót- andi að fá að kynnast foreldrum vina sinna, þó svo þau fylgist ef- laust öll vel með vinahópi barna sinna. Þessu var þó öðruvísi farið með mömmu hennar Bylgju. Þann- ig var ávallt tekið á móti vinahópn- um með miklum hlýhug og um- hyggju á heimili þeirra Sigrúnar og Ragnars. Ekki hímdum við í her- bergi Bylgju heldur nutum veiting- anna sem voru bornar í okkur er við lögðum undir okkur sjónvarpsstof- una. Poppið hvergi betra og sjón- varpsdagskráin líflegri þar en ann- ars staðar. Við fengum líka að reyna fyrir okkur í viðskiptum, pökkuðum stundum inn og seldum endurskinsmerki. Flest fóru þau nú á yfirhafnir manns sjálfs enda af- burðaskemmtileg endurskinsmerki. Og þannig held ég að hjálpin hafi ekki alltaf verið mikil í þessu brasi okkar en ávallt fengum við vilyrði fyrir að láta aftur til okkar taka við fjölskyldufyrirtækið. Og á unglings- árunum fannst mér nú stundum Sigrún ströng, í dag ekki lengur unglingur og foreldri sjálf veit ég að í aganum bjó leiðsögn og um- hyggja. Þeir þættir voru ríkir í um- gengni við Sigrúnu, ávallt tilbúin að taka þátt í umræðunni, hlusta á og leiðbeina okkur í svo mörgu, hvort sem það var við matargerð eða lífs- gildin. Og þannig hlúði hún Sigrún að okkur vinahópnum og umhverf- inu, leyfði okkur að bralla og brasa, reyna fyrir okkur og ekki síst að læra af hinum eldri. Elsku Ragnar, Bylgja, Örvar og Dröfn, ég votta ykkur mína innileg- ustu samúð. Hildur Hörn. Sigrún Ólafsdóttir, kær bekkjar- systir okkar úr Kennaraskólanum, er fallin frá langt um aldur fram. Við minnumst hennar með hlýju og eftirsjá. Sigrún var traustur og góð- ur félagi. Hún var glaðlynd og svip- falleg, hæglát og hógvær. Náminu sinnti Sigrún skipulega. Hún lærði jafnóðum og var fljót að greina að- alatriði mála. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar kom sér vel fyrir okkur hin meðaljónin að eiga Sig- rúnu að, því hún var afburða náms- maður og alltaf dúx. Ekki lá hún heldur á liði sínu þegar til hennar var leitað, nema síður væri. Sigrún var farsæl í starfi og þar nutu mannkostir hennar sín vel. Öll fjög- ur árin okkar í gamla Kennó ríkti samheldni og stemning í bekknum, svona góður bekkjarbragur. Sigrún lagði sitt af mörkum með notalegu fasi sínu og góðlátlegri kímni. Fyrstu bekkjarpartíin hjá F-klas- sen voru haldin í foreldrahúsum heima hjá henni, full af lífsgleði, gamanmálum og söng. Í einkalífi var Sigrún lánsöm kona. Ung kynntist hún Ragnari sínum, sem fljótlega varð sjálfsagð- ur og velkominn í hópinn. Þótt bekkjarfélagarnir dreifðust um víð- an völl eins og vænta má höfum við um alllangt skeið hist árvisst og rifjað upp gamla tíma. Sigrún var dugleg að mæta meðan heilsan leyfði. Hún var stolt af fjölskyldu sinni og ræddi oft um hana í hópn- um. Eftir að hún veiktist var hún jákvæð og bjartsýn. Haustið 1967 settust fjórar bekkjarsystur úr Hagaskóla í fyrsta bekk F í Kennó. Eina þeirra kvöddum við árið 2002, nú kveðjum við Sigrúnu. Minningin um hana mun fylgja okkur og ylja um ókom- in ár. Við sendum Ragnari, fjölskyld- unni og öllum aðstandendum Sig- rúnar innilegar samúðarkveðjur. Bekkjarfélagar í F-klassen, 1967- 1971. Áslaug Þorsteinsdóttir, Guðríður Adda Ragnarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, dóttur, tengdamóður og ömmu, STEINUNNAR BRYNJÚLFSDÓTTUR lífeindafræðings, Hegranesi 31, Garðabæ. Halldór Guðbjarnason, Lilja Dóra Halldórsdóttir, Elín Dóra Halldórsdóttir, Brynjúlfur Jónatansson, Brynjúlfur Jónatansson, tengdasynir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og hluttekningu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARÓLÍNU BJARGAR GUNNARSDÓTTUR, Brimnesi, Árskógsströnd. Kjartan Gústafsson, Gunnar Gústafsson, Laufey Sveinsdóttir, Emelía Gústafsdóttir, Sigurður Ananíasson, Rúnar Gústafsson, Laufey Guðjónsdóttir, Arnar Gústafsson, Edda Björk Hjörleifsdóttir, ömmu- og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.