Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 15 FRÉTTIR HAFÐU SAMBAND VIÐ VERÐBRÉFARÁÐGJÖF GLITNIS Í SÍMA 440 4920 EÐA FARÐU Á WWW.GLITNIR.IS TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR. ÖRUGG OG HÁ ÁVÖXTUN Í RÍKISSKULDABRÉFUM Sjóður 5 - íslensk ríkisskuldabréf - hentar öllum þeim sem leita að öruggri ávöxtun þar sem sjóðurinn fjárfestir eingöngu í skuldabréfum með ríkisábyrgð. Sjóðurinn hefur náð bestum árangri sambærilegra verðbréfasjóða á markaðnum síðustu 5 ár samkvæmt opinberum gögnum og er því frábær kostur fyrir þá sem vilja örugga og góða ávöxtun. Ávöxtun skv. www.sjodir.is tímabilið 31.8.2007 - 31.8.2008. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Sjóður 5 er verð- bréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfa- og fjárfestingasjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf. Allar nánari upp- lýsingar um sjóðinn er hægt að nálgast á www.glitnir.is/sjodir. * 21,4%* Verðtryggður ríkisskuldabréfasjóður með mjög góðri ávöxtun. Sjóður 5 Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÉG UPPLIFÐI þetta í raun sem bjargvætt og hugsa að ég hefði ekki haldið áfram í námi ef ekki hefði verið fyrir þetta,“ segir Atli Þór Fanndal sem hlaut verð- laun fyrir þátttöku sína í Nýsköp- unarkeppni grunnskólanem- enda árið 1995, þá 12 ára gamall. Eft- irmyndir af upp- finningu Atla hafa nú verið smíðaðar sem verðlaunagripir fyrir sigurvegara keppninnar í ár. „Þetta var mikið snilldartól sem kallaðist kökuklemman,“ útskýrir Atli. „Ég glímdi við það vandamál sem barn að geta ekki skorið rúllutertur jafnbeint og aðrir og þetta fór mjög í taugarnar á mér.“ Hann hannaði því verkfæri sem virkar sem hnífur og kö- kuspaði í senn og tryggði honum ný- sköpunarverðlaunin. Kökuklemman var framleidd í 50 eintökum fyrir Reykjavíkurborg sem notaði þær til gjafa fyrir opinbera gesti. „Já, já, þetta fór í framleiðslu en náði víst aldrei sömu markaðs- hlutdeild og ostaskerinn,“ segir Atli og hlær. Hann segir hins vegar að ný- sköpunarnámið sem var undanfari keppninnar hafi verið ómetanlegur í raun breytt lífi hans að ýmsu leyti. „Svona eftir á að hyggja, eftir að hafa lokið námi, finnst mér að besta menntun sem þú getir gefið nokkru barni sé að geta hugsað sjálfstætt. Við erum að mennta núna fólk sem sest í helgan stein 2070 og við höfum enga hugmynd um hvernig tíðarandinn verður þá, en það er góður grunnur til framtíðar að kenna krökkum að hugsa aðeins út fyrir rammann og finna að ef það er vandamál þá er enginn betri til að leysa það en þú sjálfur.“ Atli átti sjálfur erfitt uppdráttar þegar hann var í grunnskóla, varð fyr- ir einelti og fann sig ekki í náminu. Hann var hins vegar svo heppinn að ganga í Foldaskóla sem var leiðandi í nýsköpunarkeppninni fyrstu árin og þátttaka í henni breytti í raun við- horfi Atla til lífsins. „Þegar fólk fellur illa inn í hópinn þá eyðileggst það í rauninni að hluta, svo það er nóg að fá eitthvert svona viðfangsefni að dunda við til að fá þá tilfinningu að einhvers staðar í skólakerfinu sé þó ekki búið að afskrifa þig. Ég er ekki að segja að þetta geti bjargað öllum en þetta er sannarlega nám fyrir alla því þetta er ákveðinn hugsunarháttur sem þú temur þér og notar í öllum þáttum lífsins.“ Eftir grunnskóla fór Atli í fram- haldsskóla, sem hann þakkar m.a. hvatningu nýsköpunarkeppninnar, og hefur síðan búið í Noregi við nám í kvikmyndun, í Danmörku, Indlandi og nú Bretlandi. Hann skynjar ákveðin einkenni hjá Íslendingum eftir samanburð við aðrar þjóðir. Vandamálin eru til að leysa þau „Það sem aðskilur t.d. Breta og Ís- lendinga algjörlega er að það er allt rosalegt vandamál fyrir Bretum og maður hugsar með sér hvað það væri nú gott ef þeir hefðu lært að það er enginn betri til að leysa þessi vanda- mál en einmitt þú sjálfur. Þú finnur alveg muninn og að það er ótrúlega mikið sem fylgir því að vera Íslend- ingur og sérstaklega Íslendingur sem hefur hlotið nýsköpunarnám.“ Keppnin breytti lífinu Nýsköpunarkeppni grunnskóla er ómetanleg að sögn gamals sigurvegara 1995 Atli skrifaði undir samning við borgina um kaup á 50 kökuklemmum. Atli Þór Fanndal Hagnýtur Verðlaunagripurinn er hnífur og kökuspaði í senn. Nýsköpunarkeppni grunnskóla- nemenda er nú haldin í 18. sinn og var metþátttaka í ár með 3.600 hugmyndum frá 65 grunn- skólum. Í tengslum við keppnina eru haldin nýsköpunarnámskeið í skólunum sem ætluð eru til að leiðbeina nemendum í hug- myndavinnu. Keppnisflokkarnir í ár voru fjórir; almennt, slysavarnir, orka og umhverfi og hugbúnaður og tölvuleikir. Þær uppfinningar sem krakkarnir skapa eru svo metnar út frá hagnýti, nýnæmi og markaðshæfi. 50 tillögur komast í úrslit og eru uppfinn- ingamennirnir boðaðir í vinnu- smiðju þar sem 14 vinnings- hugmyndir voru valdar í ár. Lokahóf nýsköpunarkeppn- innar verður haldið á morgun í húsnæði Marels. Þar mun Atli Þór Fanndal segja frá áhrifum keppninnar á líf sitt og loks vera Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, innan handar við að veita verðlaunin, en eins og áður segir verður verðlaunagripurinn byggður á uppfinningu hans frá árinu 1995. Einnig verður sýning á hug- myndum barnanna opnuð í loka- hófinu og stendur hún í 3 daga. Sköpunargáfan er ræktuð hjá íslenskum börnum á hverju ári NÝR fréttavefur hóf göngu sína í gær, feykir.is, og er stofnaður af eigendum sam- nefnds héraðs- fréttablaðs á Norðurlandi vestra, Feyki, sem komið hefur út í nærri þrjá áratugi. Var vef- urinn opnaður með formlegri at- höfn í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki í gærkvöldi, í tengslum við Laufskálaréttarhelg- ina. Guðný Jóhannesdóttir, ritstjóri Feykis, stýrir einnig fréttavefnum. Nýprent hefur frá árinu 2006 séð um rekstur blaðsins og einnig rekið fréttavefinn skagafjordur.com, sem nú verður undirvefur feykir.is. Feykir.is stofnaður Guðný Jóhannesdóttir STUTT KVENRÉTTINDAFÉLAG Íslands stóð fyrir málþingi í fyrradag þar sem rætt var um ábyrgð stjórn- málaflokka um uppröðun fram- boðslista með tilliti til jafnréttis. Það var samróma álit málþings- ins að hvetja stjórnmálaflokkana til að hafa kynjajafnrétti að leiðarljósi við uppröðun framboðslista fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar, auk þess að hvetja Alþingi til að bregðast við því misræmi sem gætir í hlutfalli kynjanna á framboðs- listum með því að taka til umfjöll- unar þingsályktunartillögu Sivjar Friðleifsdóttur um aðgerðir til að auka hlut kvenna í stjórnmálum sem og önnur mál sem geta aukið þátttöku kvenna í stjórnmálum. Vilja fleiri konur á lista Á MÁNUDAG sl. um kl. 12.30 varð umferðaróhapp á Vesturlandsvegi (Ártúnsbrekku) í Reykjavík. Lenti þar fólksbíll að af Opel Corsa Swing gerð, gul að lit, utan vegar með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Þeir sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Lýst eftir vitnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.