Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
„ÞAÐ SEM vekur undrun er þessi
mikla aukning í ölvunardrykkju frá
vori 10. bekkjar fram á fyrstu mán-
uði fyrsta árs í framhaldsskólum. En
það er líka mjög ánægjulegt að í
heildina er vímuefnaneysla að
minnka í þessum hópi,“ segir Álfgeir
Logi Kristjánsson, lektor við
kennslufræði- og lýðheilsudeild Há-
skólans í Reykjavík. Hann er einn
höfunda nýrrar skýrslu, ásamt
Hrefnu Pálsdóttur, Ingu Dóru Sig-
fúsdóttur og Jóni Sigfússyni, sem
fjallar um vímuefnanotkun fram-
haldsskólanema á Íslandi.
Mikil aukning varð í ölv-
unardrykkju (meira en tvöföldun)
meðal nemenda í 10. bekk að vori
2007 og framhaldsskólanema, sem
eru 16 ára eða yngri, um haustið.
Mótuð verði heildstæð stefna
Í skýrslunni kemur jafnframt
fram að reykingar og neysla ólög-
legra vímuefna hafi minnkað tölu-
vert frá 2004 til 2007, en áfeng-
isneysla hafi lítið sem ekkert breyst
yfir sama tímabil. Hún hafi í raun lít-
ið breyst frá árinu 2000. Fyrir fjór-
um árum sögðust 76% framhalds-
skólanema aldrei hafa neytt
ólöglegra vímuefna. Árið 2007 var
hlutfallið komið yfir 80%. Álfgeir
segir þetta vera mikið fagnaðarefni.
Séu tölur varðandi áfengisdrykkju
skoðaðar kemur fram að 53,6%
framhaldsskólanema árið 2007 sögð-
ust hafa drukkið áfengi fyrir fram-
haldsskólaböll, og 15,1% sögðust
hafa drukkið áfengi á sjálfum böll-
unum. Að sögn skýrsluhöfunda er
mikilvægt að mótuð verði heildstæð
stefna og samhæfð aðgerðarætlun til
að sporna við þessu. Annars muni
lítið breytast. „Okkur finnst það
vera mjög eðlileg krafa að fram-
haldsskólar á Íslandi, sem eru rekn-
ir fyrir skattfé almennings og af
menntamálaráðuneytinu, samþykki
ekki áfengisneyslu í tengslum við
skemmtanir á sínum vegum,“ segir
Álfgeir.
Hann bendir á að markvisst for-
varnarstarf hafi verið unnið í grunn-
skólum landsins, þar sem ólíkir hóp-
ar, m.a. stefnumótunaraðilar,
foreldrar og forvarnarfulltrúar, hafi
tekið saman höndum til að vinna að
betra samfélagi fyrir ungmenni.
Horft til framhaldsskólanna
Öðru máli gegni með framhalds-
skólana. Það sé hins vegar að breyt-
ast. Í fyrra hafi Lýðheilsustöð, Sam-
band íslenskra framhaldsskóla,
mennta- og heilbrigðisráðuneytið
gert með sér samstarfssamning um
verkefnið Heilsuefling og forvarnir í
framhaldsskólum, sem er til þriggja
ára. Verkefninu er m.a. ætlað að
stuðla að bættri almennri líðan og
heilsu nemenda, og að efla forvarnir
gegn vímuefnum í framhaldsskólum.
Minni vímuefnaneysla
Morgunblaðið/Júlíus
Á vakt Í nýrri skýrslu um vímuefnanotkun framhaldsskólanema kemur m.a. fram að reykingar og neysla ólöglegra
vímuefna hafi minnkað töluvert frá 2004 til 2007 en áfengisneysla lítið sem ekkert breyst yfir sama tímabil.
Mikil aukning varð á ölvunardrykkju frá 10. bekk til fyrsta árs í framhaldsskóla Reykingar og
neysla ólöglegra fíkniefna minnkaði töluvert Áfengisneysla verði ekki leyfð á skólaskemmtunum
Í HNOTSKURN
» RannsóknarmiðstöðinRannsóknir og greining
vann að gerð skýrslunnar, sem
er unnin upp þremur rann-
sóknum meðal framhalds-
skólanema, sem ganga undir
heitinu Ungt fólk, frá árunum
2000, 2004 og 2007. Mennta-
málaráðuneytið studdi gerð
rannsóknanna.
» Skýrslan byggist á svör-um 30.962 einstaklinga, og
var sérstök áhersla lögð á að
skoða ólögráða aldurshópinn,
16 og 17 ára, annars vegar og
hins vegar 18 ára og eldri.
» Rannsóknir sýna ítrekaðað notkun vímuefna, bæði
ólöglegra og löglegra, er
skaðleg ungu fólki og að líkur
á að flosna upp úr námi og
lenda í margvíslegum ein-
staklingsbundnum og/eða fé-
lagslegum vanda aukast til
muna ef vímuefnaneysla verð-
ur hluti af hinu daglega lífi
ungs fólks.
! "#
"
$$%
&%
! " # !
'
!
&%
("
&%
$
# !
&%
#
&%
EKKERT sýni af
íslensku græn-
meti og ávöxtum
innihélt varnar-
efnaleifar yfir há-
marksgildum og
einungis 3,3%
sýna af erlendu
grænmeti og ávöxtum, samkvæmt
skýrslu Matvælastofnunar.
Starfsmenn matvælaeftirlits um-
hverfis- og samgöngusviðs Reykja-
víkurborgar tóku sýni vikulega hjá
innflytjendum og dreifingaraðilum
af ávöxtum og grænmeti í reglu-
bundnu eftirliti með varnarleifum í
ávöxtum og grænmeti. Mælingar á
varnarefnaleifum voru gerðar á
rannsóknastofu Matís ohf. á Akur-
eyri en þetta er þriðja árið í röð sem
ekkert sýni af íslensku grænmeti
innihélt varnarefnaleifar yfir há-
marksgildum.
Varnarefnaleifar í matvælum
verða viðfangsefni fræðslufundar
fyrir almenning sem Matvælastofn-
un heldur þriðjudaginn 30. septem-
ber en að auki verður rætt um notk-
un varnarefna á Íslandi og hvaða
reglur gilda um hættuflokkun, sölu
og notkun þessara efna.
Íslenskt
grænmeti
hreint
Varnarefnaleifar
undir hámarksgildum