Morgunblaðið - 27.09.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 13
FRÉTTIR
OG ENGIN
FÆRSLUGJÖLD
www.nb.is
M
iðast
við
m
eðal-yfirdráttarvexti á
sam
bæ
rilegum
reikningum
.
Kynntu þér málið og sæktu um á www.nb.is
eða hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar
í síma 550 1800.
Nýir viðskiptavinir Netbankans sem sækja um debetkort
án færslu- og árgjalda, fá 18,45% yfirdráttarvexti fyrstu
6 mánuðina sem þeir eru í viðskiptum. Að auki býðst
nýjum viðskiptavinum almennt e-Vildarkort án árgjalds
fyrsta árið.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
FRÁ því að ný lög um raforku-
markaðinn tóku gildi hafa fáir not-
endur nýtt sér heimild til að skipta
um sölufyrirtæki. Á síðasta ári var
það vel innan við 1% af öllum
notendum sem nýtti sér þessa
heimild og aðallega eru þetta
stærri notendur sem eru meira en
100 kW afl á ári og geta leitað
magntilboða hjá orkusölufyrirtækj-
unum. Getur munað þar töluverð-
um upphæðum.
Hinn almenni notandi hefur hins
vegar ekki ennþá séð sér hag í því
að skipta um söluaðila en verð-
kannanir ASÍ sýna að verðmun-
urinn fyrir meðalheimili er 2-3 þús.
kr. á ári milli lægsta og hæsta sölu-
taxta. Þannig gæti það munað
nærri 2 þús. kr. á ári fyrir raðhús-
eiganda á Ísafirði að kaupa orkuna
af Rafveitu Reyðarfjarðar frekar
en Orkubúi Vestfjarða.
Með markaðsvæðingu raforku-
kerfisins var öllum gefinn kostur á
að velja sér söluaðila. Raforkunot-
endur eru hins vegar bundnir við
að eiga viðskipti við dreifiveitu á
viðkomandi svæði fyrir flutning og
dreifingu orkunnar. Markaðsvæð-
ingin var innleidd í þremur skref-
um. Hinn 1. júlí 2003 gátu stórnot-
endur, sem notuðu meira en 100
gígavattstundir af raforku, valið
sér orkusala og 1. janúar 2005 gátu
þeir sem voru aflmældir og notuðu
meira en 100 kW afl gert slíkt hið
sama. Ári síðar var raforkumark-
aðurinn síðan opnaður fyrir alla
notendur.
Fyrsta heila árið sem allur mark-
aðurinn var opinn, eða 2006, nýttu
0,35% orkunotenda sér heimild til
að skipta og í samanburði við flest
önnur Norðurlönd er það mjög lítið
hlutfall. Danir hafa verið lítið dug-
legri, eða 1,5%, og hlutfallið sama
ár var 3,9% hjá Finnum og 7,8%
hjá Svíum. Norðmenn eru dugleg-
astir hvað þetta varðar, enda hefur
markaðurinn verið opinn lengst,
eða frá 1990.
Þrýstingur með skiptum
Allt síðasta ár var skipt um orku-
sölufyrirtæki á um 790 afhending-
arstöðum hjá 273 lögaðilum, sam-
kvæmt upplýsingum frá Netorku,
þar af í 656 skipti hjá stærri not-
endum. Það sem af er þessu ári
hafa 194 lögaðilar skipt um orku-
sala á 379 afhendingarstöðum, í
langflestum tilvikum fyrirtæki og
stórnotendur.
Ívar Þorsteinsson, sérfræðingur
hjá Orkustofnun, fylgist með fram-
kvæmd raforkulaganna. Hann segir
ávinninginn mun meiri fyrir stærri
notendur að leita tilboða og skipta
um fyrirtæki. Hins vegar geti skap-
ast þrýstingur á orkufyrirtækin ef
almennir notendur fara í auknum
mæli að skipta um orkusala.
Misheppnuð markaðsvæðing?
Fáir orkunotendur hafa skipt um orkusala frá því að ný lög tóku gildi á raforkumarkaðnum Frekar
að stærri notendur skipti en hinn almenni neytandi Verðmunur á ári 2-3 þús. kr. fyrir meðalheimili
Morgunblaðið/RAX
Raforka Níu aðilar hafa heimild iðnaðarráðherra til að selja raforku en notendur eru bundnir við að eiga viðskipti
við dreifiveitu á viðkomandi svæði varðandi flutning og dreifingu raforkunnar. Fáir kaupendur eru að skipta.
-
-
./ & &
0&1
&
0%1
&
&(
,, +)
%$
&(
$+(
%$
+%
+*
# -
./ 0
1
2"#
"
&)
&,
3 "0
1
2
&(
&) &( &% &,
Í HNOTSKURN
»Í skýrslu um raforkumark-aðinn á Alþingi haustið
2007 sagði iðnaðarráðherra
að verðvitund neytenda væri
„mesta vandamál“ smásölu á
norrænum markaði.
»Ráðherra sagði stóranhluta íslenskra orkufyr-
irtækja vera í einkaleyfis-
starfsemi sem gæti hindrað
samkeppni þeirra á milli.
RAFVEITA Reyðarfjarðar er sá orkusali sem kemur yf-
irleitt best út í öllum verðsamanburði, þó að ekki muni
kannski mörgum krónum. Sigfús Þórir Guðlaugsson raf-
veitustjóri segir þá stöðu ekki hafa skilað sér í mörgum
nýjum viðskiptavinum, eitthvað hafi verið um fyrir-
spurnir á sínum tíma en lítið um skipti yfir. Enda sé veit-
an það lítil, og yfirbyggingin engin, að hún einbeiti sér
að því að þjónusta sína heimabyggð. Rafveitan hafi t.d.
ekki verið að eltast við útboð stóru fyrirtækjanna. Þar sé
samkeppnin einna helst að virka. „Hinn almenni neyt-
andi er ekki að spá í einhvern þúsundkall á ári, menn
kaupa sér tvær kók og þá er munurinn farinn,“ segir
Sigfús og telur vandann frekar vera litla samkeppni í heildsölu. Þar séu fá-
ir stórir aðilar á markaðnum og þyrftu að vera fleiri. „Kerfið virkar bara
því miður ekki ennþá, hvað sem síðar gerist. Við megum heldur ekki
gleyma því að þrátt fyrir allt er rafmagnið hér á landi ódýrt. Álagningin er
lítil og rafveiturnar taka ekki inn peninga á söluþættinum. Kannski skiluðu
nýju lögin sér í því að menn halda í við sig með verðlagninguna.“
Vantar samkeppni í heildsölu
Sigfús Þórir
Guðlaugsson
VERÐLAGSEFTIRLIT ASÍ hefur fylgst vel með raf-
orkumarkaðnum frá því að nýju lögin tóku gildi. Henný
Hinz, hagfræðingur hjá eftirlitinu, segir að hinn almenni
neytandi hafi ekki haft hag af því að skipta um orkusölu-
fyrirtæki, það svari einfaldlega ekki kostnaði eða muni
svo litlu að það sé ekki fyrirhafnarinnar virði. „Einnig er
af því nokkurt óhagræði að fá greiðsluseðil frá tveimur
mismunandi aðilum fyrir raforku, það gerir alla yfirsýn
neytandans verri og erfiðara að átta sig á heildarkostn-
aðinum,“ segir Henný og bendir einnig á að þetta sé ekki
markaður sem neytendur séu vanir að versla á, um flók-
inn markað geti verið að ræða. „Gjaldskrár eru víða flóknar og óaðgengi-
legar og þegar við bætist lítill eða enginn fjárhagslegur hvati af því að
skipta þá hafa mjög fáir fyrir því. Það má einnig spyrja hvers vegna enginn
söluaðili á þessum markaði hafi séð hag í því að lækka verðið þannig að
það klárlega borgi sig fyrir fólk að flytja viðskipti sín og auglýsa það upp.
Vilja raforkusalar ekki nýja viðskiptavini?“ spyr Henný Hinz hjá ASÍ.
Sjá sér ekki hag í að skipta
Henný Hinz
!
2&
$2&23
) 45 &2&0 $+/' &
789&&+:
$2&/ 23
$ 46789&&+:
$ 467
+:
$+/' &
7
+:
'
4
3
5
6
;(
/ &
&%
!
!
!
!
"#
#
# !
;(
/ &
&,
#
!
#
##
!#
"
!!!
"""
2&
$2&23
$2&/ 23
) 45 $ 4 &2&0 $+/' &
'
4
1 ;(
/ &
&%
#"
!"
#
#
#"
#"
!
;(
/ &
&,
!""
"!!
"!#
"!#
"!
""!