Morgunblaðið - 27.09.2008, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
M
ér líður mjög vel og tilveran
er góð. Ég ætti kannski ekki
að segja það sjálfur en mér
finnst röddin líka vera ansi
góð,“ segir Kristján Jóhanns-
son stórsöngvari sem syngur nú í fyrsta sinn
í Íslensku óperunni í Cavalleria Rusticana og
Pagliacci við mikla hrifningu gesta.
Hvað heldurðu að þú eigir eftir að syngja
lengi opinberlega?
„Mér líður í dag eins og ég gæti sungið tíu
ár til viðbótar, en ætli ég syngi ekki þar til
ég drepst, þó kannski ekki opinberlega. Æi,
ég veit það ekki, en vonandi í mörg ár í við-
bót. Nú er ég að breyta um, er að byrja að
syngja í djöflaóperum, eins og ég kalla það,
þar sem ég fer með hlutverk vondra karla.
Ég er ekki lengur lover boy, það er komið að
öðrum að taka að sér það hlutverk. Nú taka
ungu strákarnir við.“
Glaðsinna en dreyminn
Þú berð með þér að hafa mikið sjálfs-
traust. Hefur það alltaf verið þannig?
„Ég held að ég hafi nóg af sjálfstrausti. Ég
er viss um að sumir taka sjálfstraustið fyrir
hroka en ég er ekki hrokafullur. Ég er búinn
að eiga mjög góða og nána vini í þrjátíu ár
og þeir væru búnir að lesa yfir mér ef þeim
þætti ég hrokafullur. Ég er náttúrlega gal-
gopi og ætti stundum að vanda málfar mitt
betur en það er sennilega of seint fyrir mig
að læra það. Samt vona ég að ég hafi tekið
einhverjum framförum með árunum.
Ég er tiltölulega hugrakkur maður. Það
þarf kjark til að vera óperusöngvari í þrjátíu
ár. Mesti kjarkurinn fór í það að trúa að ég
gæti orðið óperusöngvari því þar er ekkert
gefið. Innst inni var ég viss um að mér
myndi takast að ná takmarki mínu.
Þegar ég var ungur drengur í barnaskól-
anum á Akureyri nennti ég stundum ekki í
skólann. Ég lagði af stað að heiman með
skólatöskuna á bakinu en svo fór ég upp í
brekkuna fyrir ofan leikhúsið á Akureyri og
starði út á fjörðinn eða lagðist í grasið og
horfði upp í himininn. Það var eitthvað þarna
í eilífðinni sem gat þó ekki svarað mér og ég
gat heldur ekki svarað sjálfum mér því ég
vissi ekki hvers ég vildi spyrja. Þá strax var
ég leitandi. Ég var glaðsinna en dreyminn og
er raunar enn. Þegar ég var átta ára gamall
söng ég á jólum opinberlega með pabba. Ég
uppgötvaði ekki endilega þar að söngurinn
væri líf mitt en þessi stund skipti samt miklu
máli. Ég segi ekki að ég hafi þjáðst sem ung-
ur maður á Akureyri en það var eitthvað sem
vantaði í líf mitt sem var ekki í þeirri tilveru
sem var þar. Ég varð að fara burt.
Það var stór áfangi í lífi mínu þegar ég fór
til New York og komst í áheyrnarprufu hjá
New York City Opera árið 1982. Þarna
mættu um fjörutíu ungir söngvarar, sem allir
vildu syngja vel og vera ráðnir til starfa. Í
áheyrnarprófi syngja menn venjulega eina til
tvær aríur en ég var látinn syngja þrjár.
Þegar ég var búinn las ég úr andliti hinna
söngvaranna, sem sumir voru vinir mínir: Æ,
honum tókst það! Og mér hafði tekist það.
Hjá mörgum þeim sem þarna mættu og
höfðu farið um langan veg var þessi ferð til
Bandaríkjanna ekki til neins. Ég fann til með
þeim. Ég gleymi því aldrei hvað það var dap-
urlegt að horfa á þetta unga fólk og verða
vitni að vonbrigðum þess. Ég var heppinn því
mér hafði tekist það sem ég ætlaði mér.“
Skapstór maður
Er líf óperusöngvarans ekki nokkuð
sérstakt?
„Það fylgir því mikil ábyrgð að vera lista-
maður. Ég lærði snemma að ég get ekki hag-
að mér eins og ég myndi gera ef ég væri í
venjulegu starfi. Ég get ekki setið með vin-
um mínum fram á nótt heldur þarf ég að fara
heim á undan þeim ef ég er með sýningar
framundan. Ég þarf stöðugt að passa heils-
una og að röddin sé í lagi. Mikilvægast er þó
að heilabúið sé í lagi. Ég þarf að halda ein-
beitingu. Hugur, sál og hjarta þurfa að vera
samstillt.“
Hefurðu séð leiðinda stjörnustæla hjá
óperustjörnum?
„Já, elskan mín. Sumir ganga fyrir því! En
flestir haga sér eins og almennilegar mann-
eskjur. Ég hef kynnst yndislegu fólki á ferli
mínum, Rostropovich stendur upp úr, hann
og Galina, kona hans, voru stórar mann-
eskjur.“
Ertu stælóttur listamaður?
„Nei, ég vona ekki, en ég vil láta hlutina
ganga og þeir eiga að vera í lagi. Ég er fag-
maður og vil að allir standi sína pligt. Óp-
eruheimurinn byggist á samvinnu. Ef einhver
hagar sér ekki eins og hann ætti að gera þá
bregst ég illa við og ég er skapstór maður.
En það er ekki eins og þessir stjörnustælar
séu alltaf viljandi. Taugaspenna getur leitt til
þess að stundum haga stórstjörnur sér eins
og hálfgerðir asnar og gera öðrum lífið leitt.
Ég þekki nokkrar stjörnur sem tapa sér
stundum en þegar allt kemur til alls þá bitn-
ar það alltaf á þeim sjálfum. Um leið og þú
ferð að sparka í stígvél og skó og öskra á
búningahönnuði, sminkurnar og hár-
kollumeistarana þá ertu að gera mikil mistök.
Þetta er fólkið sem þú þarft á að halda og
það vitlausasta sem þú gerir er að fá það upp
á móti þér.
Vinkona mín, frábær söngkona, og á tíma-
bili flottasti sópran veraldar, Aprile Millo, er
yndisleg og það er næstum því hægt að fyr-
irgefa henni hvað sem er. Hún átti það hins
vegar til að fá alla upp á móti sér. Hún sá
reyndar alltaf þegar mér mislíkaði framkoma
hennar og þá bakkaði hún. En þegar tauga-
spennan varð til þess að hún sýndi stjörnu-
stælana þá þurfti hún alltaf að borga fyrir þá
sjálf með gráti og gnístran tanna. En Aprile
er fín manneskja og hefur húmor. Eitt sinn
sem oftar sungum við saman í óperu á Met-
ropolitan. Óvenjumargir íslenskir gestir
komu að hitta mig í búningsherbergi mínu og
það var mikil mannþröng á ganginum en
enginn stóð við búningsherbergið hennar
sem var á sama gangi. Aprile kom í gættina
nokkrum sinnum og kíkti út en í þriðja sinn
kom hún út á ganginn og kallaði hlæjandi:
„Halló, ég á íslenska frænku.“ Svo fór hún
bara aftur inn í búningsherbergið sitt.
Tengdamömmu fannst þetta skemmtilegt og
bankaði uppá hjá henni. Aprile opnaði og
tengdamama sagði: „Sæl, ég heyrði að þú
ættir íslenska frænku.“ Úr þessu urðu kossar
til hægri og vinstri.“
Áttu marga vini í óperuheiminum?
„Bestu vinir mínir í óperuheiminum eru
þeir sem syngja minni hlutverkin. Þeir sem
hefðu viljað vera í mínum sporum. Ég virði
þá og næ alltaf vinskap við þá hvar sem er í
heiminum vegna þess að ég er bara eins og
ég er. Ég er kannski að syngja Radames í
Aidu og besti vinur minn í sýningunni er
söngvarinn sem syngur hlutverk sendiboð-
ans. Ég er ekkert æðri honum þótt almættið
hafi hugsanlega gefið mér betri rödd.“
Þú nefndir almættið, ertu trúaður?
„Ég ræði gjarnan við Guð. Hann hefur
bæði verið mér góður og síðan látið höggin
ríða nokkrum sinnum. En þegar upp er stað-
ið held ég að við séum bara nokkuð sáttir.“
„Láttu mig niður!“
Þú hefur ekki sungið í nokkur ár í
Metropolitan. Af hverju er það?
„Það er saga að segja frá því. Næstæðsti
maður Metropolitan heitir Jonathan Frend
og er listrænn ráðunautur hússins. Í lok sýn-
ingar stendur hann stundum bak við tjöldin
Er bara
eins og
ég er
Hugrekki „Mesti kjarkurinn fór í það að trúa að ég gæti orðið óperusöngvari því þar er ekkert gefið.“
» Bestu vinir mínir í óperuheiminum eruþeir sem syngja minni hlutverkin. Þeirsem hefðu viljað vera í mínum sporum.
Ég virði þá og næ alltaf vinskap við þá hvar sem
er í heiminum vegna þess að ég er bara eins og ég
er. Ég er kannski að syngja Radames í Aidu og
besti vinur minn í sýningunni er söngvarinn sem
syngur hlutverk sendiboðans. Ég er ekkert æðri
honum þótt almættið hafi hugsanlega gefið mér
betri rödd.“