Morgunblaðið - 27.09.2008, Page 22

Morgunblaðið - 27.09.2008, Page 22
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Hann er ótrúlega hress ogern miðað við aldur. Oghann er alveg bráðgáf-aður, var eldfljótur að læra að opna glugga með því að bíta í fögin og færa þau til hliðar,“ segir Gylfi Guðjónsson um köttinn sinn Púla sem varð tvítugur þann sjötta júní síðastliðinn. „Á afmæl- isdeginum var honum boðið að koma á veitingastaðinn Áslák hér í Mosfellsbæ. Ég setti hann upp á öxlina og við tveir gengum saman til fagnaðarins þar sem sunginn var afmælissöngur til heiðurs hinum aldna ketti. Hann tók þessu öllu með stóískri ró.“ Púl að koma honum í heiminn Gylfi segir að hann hafi alls ekki viljað kött þegar Púli kom inn í líf hans fyrir tveimur áratugum. „Ég hafði tapað tveimur köttum og var því harðákveðinn í að fá mér ekki nýjan kött. En ég man eins og gerst hefði í gær, þegar tvær dætur fósturbróður míns komu með Púla til mín þann fimmtánda ágúst 1988. Þá var hann tveggja mánaða kett- lingur og þær hentu honum í fangið á mér og sögðu: „Þessi verður góð- ur við þig.“ Og það var eins og við manninn mælt, honum tókst að bræða mig og ég tók hann að mér. Við nefndum hann Púla af því læð- an móðir hans þurfti að púla mikið til að koma honum í heiminn.“ Bókhaldsköttur sjúkur í tölvur Þegar Púli var kettlingur þá leyfði Gylfi honum oft að leika sér ofan í skjalatösku, þar sem voru ýmsir pappírar tengdir bókhaldi. „Hann hefur verið sjúkur í pappír allar götur síðan. Hann raðar meira að segja upp pappír í hrúg- ur, hvort sem það eru dagblöð eða nótur. Einu sinni raðaði hann sam- an fjórum bunkum af nótum sem ég var búinn að flokka. Vegna þessa fékk hann viðurnefnið bók- ari.“ Púli er því bókhaldsköttur og nú hefur þetta þróast yfir í það að hann er tölvusjúkur. „Hann vill ólmur vera með mér þegar ég vinn í tölvunni. Að sitja upp við tölvuna og fylgjast með mér vinna, er eitt það skemmtilegasta sem hann ger- ir. Reyndar er hann gjarn á að labba yfir lyklaborðið en ég reyni að passa upp á það eftir bestu getu.“ Gelding fyrir kallana í leiðinni Púli hefur verið blindur á öðru auga mestan hluta langrar ævi og nú er hann nánast heyrnarlaus vegna elli. Helgi Sigurðsson dýra- læknir hefur eftirlit með heilsufari hans og segir hann í fínu formi. „Helgi sá um að gelda Púla á sínum tíma og það var gert heima hjá okkur. Hann bauð konunni minni upp á fjölskylduafslátt, sagð- ist geta gelt karlinn og alla synina í leiðinni, en hún þáði það ekki,“ seg- ir Gylfi og hlær. Púli bókari tvítugur Morgunblaðið/Golli Vinir Púla finnst gott að liggja í lófanum á eiganda sínum og láta klappa sér. Hann er sjúkur í pappír og tölvur og veit fátt skemmtilegra en að fylgjast með eiganda sínum við tölvuskjáinn. Það vekur hins vegar ekki sömu ánægju þegar ferðatöskurnar eru dregnar fram. |laugardagur|27. 9. 2008| mbl.is daglegtlíf Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Íslensk hönnun, fótbolti og við-skipti … hvernig fer þettaþrennt saman? Auðveldlegaað sögn Kjartans Sturlusonar sem er á kafi í þessu öllu; hann ver markið hjá Íslandsmeisturum Vals og landsliðsins, er viðskiptafræð- ingur og stofnaði netverslunina Birkiland síðastliðið vor ásamt Ingva Þór Guðmundssyni til að koma ís- lenskri hönnun á framfæri. Hjá Birkilandsmönnum stendur nú fyrir dyrum að opna verslun með allar vörurnar af vefnum á boðstólum en þó ekki nema í þrjár vikur. Hún verður opnuð laugardaginn 4. októ- ber og á að ná í skottið á gestum tón- listarhátíðarinnar Iceland Airwaves. Búðin verður eins konar sambland af hönnunarverslun og hönnunarsýn- ingu og verður til húsa á Laugavegi 51 á tveimur hæðum, í bókaversl- uninni Skuld og flæðir yfir á neðri hæðina í Galleríi Verðandi. Því skal þó haldið til haga að hönnunarbúðin gengur ekki undir nafninu Urður, nafni þriðju skapanornarinnar. Gluggi til útlanda „Það verður líf í kringum þetta á Laugaveginum og skemmtileg við- bót. Við bjóðum hönnuðum upp á að vera með einstök verk sem þeir hafa áhuga á að sýna sem eru bara „prótó- týpur“. En þó að maður skelli verð- miða á hönnunargripinn munum við stilla þessu öllu upp sem sýningu,“ segir Kjartan. Vörurnar verða m.a. innan um viðskiptabækur sem áð- urnefnd bókaverslun sérhæfir sig í og verður þar stillt upp á pappírs- borð eftir Ísraelann Sruli Recht sem hefur sest að á Íslandi. Kjartan býst við góðum við- brögðum við versluninni og segir þá reyndar ekki þekkja neitt annað: „Við erum með marga af færustu og flottustu hönnuðum landsins og þetta hefur gengið mjög vel. Við höf- um fengið gott umtal, bæði hér heima og erlendis. Hönnuðir hafa haft samband við okkur og margir hafa fengið umfjöllun um sig í gegn- um Birkiland. Það er skemmtilegt að segja frá því að síðast í dag hringdi hönnuður sem býr úti á landi og hef- ur mikinn áhuga á að koma vörunum sínum að sem hann hefur ekki mikil tækifæri til en í gegnum okkur gæti hann fengið umfjöllun og skapað sér markað.“ Að sögn Kjartans eru vörur þeirra seldar til landa eins og Bandaríkj- anna, Spánar og Rússlands og helm- ingur kaupanna er sendur út en vef- síðan er á ensku og verðið í dollurum. „Við horfum meira út fyrir landstein- ana en hingað heim. Ætlunin er líka að gefa hönnuðum möguleika á glugga til útlanda án þess að hver og einn þurfi að leggja í mikinn mark- aðskostnað. Við erum svo lítil og fá hérna á Íslandi.“ Flytja út, ekki inn Spurður hvernig hönnunarhug- myndin hafi kviknað hjá viðskipta- fræðingi í markvarðarstöðu segir hann ræturnar liggja í meistaranámi sínu í Mílanó á Ítalíu, í hönnunar- stjórnun. „Við Ingvi höfum báðir mikinn áhuga á hönnun og svo er líka skemmtilegt að sjá hönnuði skapa sína eigin vöru. Það er spennandi á Íslandi í dag að stefna að því að selja vörur úr landinu en ekki flytja þær inn.“ Hann segir aðkomu þeirra sjálfra þó eingöngu viðskiptafræði- lega en bætir því við að Ingvi sé for- ritarinn á bak við síðuna sem þyki vel heppnuð. Kjartan miklar ekki fyrir sér að Morgunblaðið/G. Rúnar Birkiland Kjartan Sturluson og Ingvi Þór Guðmundsson ætla að lífga upp á Laugaveginn með hönnunarverslun. Hönnun innan um viðskiptabækur Svo er líka skemmtilegt að sjá hönnuði skapa sína eigin vöru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.