Morgunblaðið - 27.09.2008, Page 28

Morgunblaðið - 27.09.2008, Page 28
28 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á MEÐAN hin sér- íslenska verðtrygging hækkar lánabyrði heimilanna stendur húsnæðisverð í stað eða lækkar. Venjulegt fólk veigrar sér við að líta á eftirstöðvar húsnæð- islána sinna. Svo eru það þeir sem hlýddu kalli bankanna og tóku sín lán í erlendri mynt og sitja nú uppi með allt að 50 pró- sent hærri afborganir en fyrir um ári. Það er ekki hægt að halda öðru fram en að Seðlabankinn hafi reynt að beita öllum þeim meðulum sem hann hefur yfir að ráða og það í stórum skömmtum. En sama hvað Seðlabankinn hefur reynt að tuska krónuna til hlýðni lætur krónan ekki að stjórn. Hún fellur í verði og verð- bólga eykst. Ekki vegna þess að al- menningur sé endilega að kaupa meira, heldur beinlínis vegna þess að verðgildi krónunnar minnkar sam- anborið við aðra gjaldmiðla og þar með þarf fleiri krónur til að kaupa sama hlutinn. Hvað þarf til að stjórn Seðlabank- ans viðurkenni að þessi örmynt hent- ar ekki því viðskiptaumhverfi og því frelsi sem íslenskt athafnalíf þarf til að standa traustum fótum í al- þjóðlegri samkeppni. Krónutemj- arinn Davíð Oddsson gengur meira að segja svo langt að kalla þá „lýð- skrumara af versta tagi“ sem benda á þá augljósu staðreynd að traustari mynt og það að vera hluti af stærri efnahagsheild sé íslensku þjóðarbúi fyrir bestu í lengd og bráð. Enginn treystir krónunni Að reyna að halda því fram að ís- lenska krónan sé traustur gjaldmiðill er fráleitt. Hvers vegna eru þá öll langtímalán í íslenskum krónum verðtryggð? Er það ekki sönnun þess að krónunni er ekki treystandi? Lánastofnanir treysta því aug- ljóslega ekki að hún haldi verðgildi sínu. Lánastofnanir treysta sér ekki einu sinni til að spá fyrir um rýrnun krónunnar til lengri tíma. Ef þær gerðu það gætu þær ákveðið fasta vaxtaprósentu (jafnvel í hærri kantinum) til að tryggja að þær fái sitt til baka, en það þorir enginn. Það er því ljóst að það finnst ekki lána- stofnun í heiminum sem treystir íslensku krón- unni. Það liggur fyrir að vextir lána í íslenskum krónum eru hærri en vextir lána í öðrum gjaldmiðlum. Að lág- marki um 3% en sveifl- ast svo upp í að vera rúmlega 20% hærri þegar áhrif verð- bólgu á erfiðum tímum eru tekin með. Það er illverjanlegt að ríkisstjórnin hafi ekki þegar hafið undirbúning að- ildarviðræðna að ESB. Auðvitað þarf að setja skýr samningsmarkmið í slíkum aðildarviðræðum sem tryggja að ný vandamál skapist ekki með að- ild, við megum ekki ganga að neinu í blindni. En flestir sjá að stærra mynt og efnahagskerfi er forsenda áfram- haldandi vaxtar í íslensku samfélagi. Þarf allt atvinnulífið, samtök atvinnu- lífsins og verkalýðshreyfingin, að ganga í Samfylkinguna til að Sjálf- stæðisflokkurinn átti sig? Svo virðist sem krónutemjaranum í Seðlabank- anum hafi tekist betur upp við að temja flokksforystu Sjálfstæð- isflokksins en íslensku krónuna. Óvirk stjórnarandstaða Það sem gerir stöðuna enn verri er að það er í engin önnur hús að venda. Enginn annar flokkur en Samfylk- ingin hefur opnað á þann möguleika að hefja aðildarviðræður við Evrópu- sambandið en Samfylkingin er því miður ekki með meirihluta á þingi. Þetta þýðir að við höfum ekki einu sinni heilbrigða og virka stjórnarand- stöðu þegar kemur að efnahags- málum. Þar gapa menn bara hver upp í annan um það hvort nógu mikil lán hafi verið tekin til að auka gjald- eyrisvaraforðann og hvenær „stóra“ lánið verði tekið. Í stað þess að spyrja, til hvers þarf yfir höfuð að auka gjaldeyr- isvaraforðann? Er það vegna þess að ekkert mark er tekið á krónunni og kaupa þarf annan gjaldeyri með því að taka hann að láni til að treysta ís- lenska fjármálakerfið? Og hvað kosta þessar lántökur? Hver á svo að borga vextina? Íslenskir skattgreiðendur munu að sjálfsögðu borga þessa vexti bara til þess að geta nú haldið í okkar dýr- mætu krónu, leyft henni að falla og búa til verðbólgu og hækka lánin okkar. Lánað öryggi Ekki svo að skilja að ég sé á móti því að auka gjaldeyrisvaraforðann. Það er það eina sem hægt er að gera meðan við kjósum að grundvalla pen- ingamál okkar á örmynt utan þess stöðugleika sem fylgir stærra efna- hags- og myntsvæði. Það hlýtur þó öllum að vera ljóst að þessar aðgerðir eru aðeins kostn- aðarsamur plástur, ekki lausn til framtíðar. Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að rífa sig undan álögum krónu- temjarans og horfast í augu við þá staðreynd að einungis tveir kostir eru í stöðunni: Annaðhvort höldum við krónunni, spólum 20 ár aftur í tímann og takmörkum okkur við það að vera iðnaðar samfélag sem treyst- ir á afurða útflutning til að vega upp á móti innflutningi á nauðsynjum og hættum að vasast í bankastarfsemi og öðrum fjárfestingum á al- þjóðamarkaði. Eða, við stígum þau skref sem þarf til að gerast hluti af stærra og traustara efnahags- og myntkerfi. Það er fráleitur kostur til fram- tíðar að ætla að stækka peningakerfi okkar eins mikið og til þarf með lán- tökum í erlendri mynt í formi aukins gjaldeyrisvaraforða. Sjálfstæðisflokkurinn verður að horfast í augu við staðreyndir. Ef ekki kemur að því að boða þurfi til kosninga og gefa fólki kost á að segja sína meiningu. Krónutemjarinn Sigrún Elsa Smára- dóttir skrifar um efnahagshorfurnar » Svo virðist sem krónutemjaranum í Seðlabankanum hafi tekist betur upp við að temja flokksforystu Sjálfstæðisflokksins en íslensku krónuna. Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Á FUNDI alþing- ismanna, sveit- arstjórnarmanna, fulltrúa dóms- málaráðuneytisins og fleiri með lögreglu- og tollgæslumönnum á Suðurnesjum í mars 2008 komu fram óvefengjanlegar upp- lýsingar um fjársvelti embættis lög- reglustjórans á Suð- urnesjum og allt að því ómannúðlegt vinnuálag. Fjárveit- ingar hafa staðið í stað en verkefni stór- aukist. Nægir þar að nefna að íbúum Reykjanesbæjar hef- ur fjölgað um meira en 20% á fáum árum. Sama gildir um fjölg- un farþega sem fara um Keflavík- urflugvöll, stóraukna vöruflutninga, toll- afgreiðslu og þannig mætti áfram telja. Framsögumenn á fundinum gagnrýndu ástand mála faglega og með tölulegum staðreyndum. Rík- isendurskoðun hefur sagt að það beri að tryggja embættinu aukið fjármagn ef verkefni hafa aukist. Í ljósi alls þessa hafa Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri og næstráðendur hans barist fyrir auknum fjárveitingum til að reyna að tryggja viðunandi aðstæður og skilyrði fyrir áframhaldandi störf- um. Þeir hafa fyrir vikið mætt fullkomnu skilningsleysi og óvild dómsmálaráðherra. Ég fékk góðfúslegt leyfi til að sitja fund Jóhanns R. Benedikts- sonar og næstráðenda hans með starfsmönnum embættisins síð- degis 24. september sl. Þar komu fram upplýsingar um samskipti embættisins við dómsmálaráðu- neytið og dómsmálaráðherra sem gerðu mig orðlausan yfir þeirri vanvirðingu sem embætti lög- reglustjóra hefur verið sýnt. Það er til að mynda með ólíkindum að ráðuneytið hafi eingöngu lagt til 40 milljóna króna aukafjárveitingu vegna tapaðra tekna í kjölfar brottfars hersins af Miðnesheiði, en engar fjárveitingar til ráðninga 10 nýút- skrifaðra lögreglu- manna, þrátt fyrir að hafa veitt heimild til þeirra, og til annars uppsafnaðs fjárhags- vanda. Öryggi borgara og löggæslumanna í húfi Skilaboð ráðuneyt- isins eru skýr, emb- ættið á að halda sig innan óviðunandi fjár- laga sem þýðir ein- faldlega stórfelldan niðurskurð og enn frekari fækkun lög- og tollgæslumanna á Suð- urnesjum. Þetta eru óneitanlega kaldar kveðjur, ekki síst í ljósi þess að starfs- menn embættisins hafa frá 1. janúar 2007 unnið faglega og skipulega að samein- ingu löggæslu og toll- gæslu á Suðurnesjum og náð mjög góðum árangri í starfi þótt þeim hafi verið snið- inn óbærilega þröngur stakkur fjárhagslega. Dómsmálaráðherra hunsar einnig ítrekaðar áskoranir sveitarfélaga á Suðurnesjum um tafarlausar úrbætur og hefur nú hrakið Jóhann R. Benediktsson og þrjá yfirmenn úr starfi. Það er óskapleg blóðtaka fyrir löggæslu á Suðurnesjum og hreint skemmd- arverk. Sömu sögu er að segja af lög- gæslu á höfuðborgarsvæðinu og reyndar á allri landsbyggðinni. Al- menn löggæsla er komin að fótum fram og við blasa uppsagnir lög- reglumanna. Önnur sparnaðar- úrræði hafa verið fullnýtt. Öryggi almennra borgara er í húfi og að sama skapi öryggi lögreglumanna. Vel að merkja, ofbeldi gagnvart lögreglumönnum hefur aukist um- talsvert og það stafar ekki síst af því hversu fáliðaðir þeir eru við almenna löggæslu. Það er mál að linni og þjóðinni fyrir bestu að dómsmálaráðherra taki pokann sinn en ekki hæfir og reyndir yf- irmenn jafnt sem almennir lög- reglumenn Dómsmálaráð- herra vantreyst Atli Gíslason skrif- ar um embætti lög- reglustjórans á Suðurnesjum og störf lögreglunnar Atli Gíslason » Vel að merkja, of- beldi gagnvart lögreglumönn- um hefur aukist umtalsvert og það stafar ekki síst af því hversu fáliðaðir þeir eru við al- menna lög- gæslu. Höfundur er þingmaður VG í Suðurkjördæmi. STJÓRNARFUND- UR Orkuveitunnar haldinn föstudaginn 19. september s.l. var tímamótafundur. Stjórn OR samþykkti einróma að ráða Hjör- leif B. Kvaran sem næsta forstjóra OR. Ég tel það vera heilla- spor fyrir Orkuveituna að fá jafn reynslumik- inn mann og Hjörleifur er til starf- ans. Hann hefur sýnt það á erfiðum tímum við stjórn OR að hann er traustsins verður og mun aðstoða samstillta stjórn OR við að uppfylla sýn Orkuveitu Reykjavíkur um að vera uppspretta lífsgæða fyrir eig- endur sína, nú sem endranær. Ann- að mál var til lykta leitt. Málefni REI fengu farsælan endi með sam- þykki allra stjórnarmanna. Eitthvað sem ekki var líklegt fyrir nokkrum misserum síðan. Þessi samþykkt sýnir þá sátt sem stjórn er að ná um störf sín. Ákveðið var að breyta REI í opinn fjárfestingarsjóð með að- komu fagfjárfesta ásamt almenningi í tilgreind verkefni á vegum REI. Ráðgjafarnefnd sem er óháð starf- semi REI og OR mun útfæra væntanlega framtíðarstarfsemi REI og hvernig staðið verður að aðkomu fjár- festa í verkefni á veg- um REI. Að mínu mati er það nauðsynlegt fyr- ir OR að taka þátt í verkefnum á erlendri grund. Það skapar sér- fræðingum og öðrum starfsmönnum OR/ REI tækifæri til að þróast í starfi og auka þar með líkur á því að þeir festi framtíð sína hjá OR. Á sama fundi var ákveðið að ganga til samninga við fjármálaráðuneytið um kaup Orkuveitunnar á 20% hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Deilur hafa staðið lengi um kaupverð á hlut ríkisins í HAB, og hefur OR allt frá árinu 2002 reynt að fá þennan hlut keypt- an. Með kaupum OR á hlut ríkisins verður farið hraðar í endurnýjun og viðhald veitunnar, en það verður að gerast, til að koma í veg fyrir að tak- marka þurfi heitavatnsnotkun í Borgarbyggð og Akranesi, líkt og gerðist í febrúar á liðnum vetri. Þá þurfti að loka sundlaugum og skerða heitt vatn til stórnotenda. Þetta var því gleðidagur fyrir okkar ágætu meðeigendur á Vesturlandi. Næsta mál stjórnar er að fara í það verkefni að vinna að stefnumótun OR. Hún á að leiða stjórn og starfsmenn saman, til að auka veg og styrk Orkuveit- unnar til að standa undir þeirri grunnstarfsemi að tryggja eig- endum sínum heitt og kalt vatn, raf- magn og að koma frárennsli skolp- lagna frá íbúum á haf út á umhverfisvænan hátt. Starfsmenn Orkuveitunnar hafa sýnt það í gegn- um árin að þeim er vel treystandi fyrir þessari þjónustu, því afhend- ingaröryggi á heitu og köldu vatni ásamt rafmagni er einstakt. Það er á þessari góðu reynslu starfsmanna sem uppbygging Orkuveitunnar mun byggjast til næstu framtíðar. Orkuveita Reykjavíkur er uppspretta lífsgæða Guðlaugur G. Sverrisson fjallar um málefni OR » Þessi samþykkt sýn- ir þá sátt sem stjórn er að ná um störf sín. Ákveðið var að breyta REI í fjárfestingarsjóð með aðkomu fagfjár- festa ásamt almenningi Guðlaugur G. Sverrisson Höfundur er stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur ÉG HEYRÐI heilbrigð- isráðherra, Guðlaug Þór Þórð- arson, gagnrýna Evrópusam- bandið á fundi í Valhöll nýlega fyrir stefnuna í lyfjamálum. Hjá ráðherra kom fram að það væri eins og lyf hefðu verið tekin út fyrir sviga og tilheyrðu ekki þeim vörum og þjónustu sem áttu að fljóta frjálst um EES markaðssvæðið. Ráðherra benti réttilega á það að lyfjamúrar einstakra Evrópríkja hefðu í för með sér að lyf á minni markaðssvæðum yrðu dýrari og skeð gæti að þau væru alls ekki til á þessum minni mörkuðum vegna til- kostnaðar sem framkvæmd lyfjastefnunnar hefur á EES svæðinu. Okkur ber að fagna því að íslenskur ráðherra skuli hafa mótmælt lyfjastefnu ESB og krafist þess að sambandið tryggði meiri samkeppni á þess- um markaði til hagsbóta fyrir neytendur. Það kom einnig fram hjá heil- brigðisráðherranum í Valhöll að breytingar íslensku lyfjalög- unum hefðu leitt til verulegar verðlækkunar á lyfjaverði svo nemur hundruðum milljóna króna. Fyrir svo utan lyfja- sparnað sem nemur um einum milljarði króna. Þetta kalla ég árangur og þetta undirstrikar líka að það var kominn tími til að setja sjálfstæðismann yfir heilbrigð- iskerfið. Theodór Bender Ráðherra gegn lyfjamúrum ESB Höfundur er bakari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.