Morgunblaðið - 27.09.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 29
ÞÓTT við höfum rík-
isstjórn sem hefur ríf-
legan meirihluta á Al-
þingi hefur henni ekki
tekist að sannfæra
þjóðina um að „ekkert
þurfi að gera“ við þær
aðstæður sem nú ríkja.
Það er hins vegar mikill
hugur í fólki að fá skýr
svör um aðgerðir til að
mæta kröppum dansi í
fjármálalífi þjóð-
arinnar. Einnig á
vinnumarkaði. Þar
heimta nú helstu sam-
tökin hvort tveggja í
senn; evru sem gjald-
miðil og inngöngu í
Evrópusambandið.
Það er hins vegar
ekki annað hægt en að
samsinna þeim ummæl-
um formanna rík-
isstjórnarflokkanna, að
hér ríki ekki kreppa.
Það glittir þó vissulega
í svæsna tegund hall-
æris sem mun aðallega
lýsa sér í tímabundnum samdrætti í
einkaneyslu, og skuldakreppu hjá
þeim sem ekki hafa kunnað fótum
sínum forráð í undangenginni þenslu.
Vonandi verður hallærið ekki
stjórnvöldum kærkomið tækifæri til
þess að leggjast í opinberar fram-
kvæmdir, sumar eingöngu sem
dauðagildra opinberra fjárfestinga. –
Sterkasta ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar væri sú að falla frá flestum
þeim framkvæmdum sem hún hefur
á stefnuskrá sinni, og verja því fé
sem sparast til verkefna á sam-
göngusviðinu. Og samgöngusviði ein-
göngu.
Þráhyggjan um evruna
Fólk er orðið leitt á þeirri þrá-
hyggju talsmanna evruupptöku, að
evran muni veita birtu og yl inn í ís-
lenskt efnahagslíf. Viðræður um inn-
göngu í ESB yrðu okkur Íslend-
ingum mikil eldraun.
Ekki bara að við þyrftum að leggja
inn beiðni um undanþágu í sjáv-
arútvegsmálum, við þyrftum líka að
semja sérstaklega um undanþágu
fyrir upptöku her-
skyldu hér á landi. –
Allar Evrópuþjóðirnar
eru með herskyldu,
sem tekur til sameig-
inlegs herafla Evrópu.
Það yrði þá væntanlega
í fyrsta skipti að um-
ræðu um herskyldu á
Íslandi þyrfti að taka
alvarlega. Dettur ein-
hverjum í hug að lang-
ur listi með und-
anþágubeiðnum yrði
farsælt veganesti í við-
ræður um aðild að
ESB?
Hyggilegast er að
gleyma strax og leggja
af sífelldar furðufréttir
um „nýjan flöt“ á aðild
að ESB. Sama hversu
margar skoðanakann-
anir birtast, sem sýna
hve margir eru „hlynnt-
ir“ aðild, þær eru mark-
lausar með öllu, þar til
við höfum tekið til á
sviði efnahagslífsins,
útrýmt verðbólgu og
hreinsað krónuna af
árásum og illu umtali.
Algert neyð-
arúrræði
Lausn ljósmæðradeilunnar svo-
nefndu staðfestir svo ekki verður um
villst, að mikil kreppa er framundan
á sviði kjara- og launamála í landinu.
Eftir tvö verkföll ljósmæðra lagði
ríkissáttasemjari fram miðl-
unartillögu, sem hann kallaði „algert
neyðarúrræði“, vegna þess að mál
voru komin í þrot og útséð um að
lausn fengist með áframhaldandi við-
ræðum milli deiluaðila.
En ekki er sopið kálið … Nú hafa
læknar tekið fram verkfallsskóna,
síðan verða það sérfræðingar og aðr-
ir á heilbrigðissviði, og svo koll af
kolli. Á heilbrigðissviðinu einu þarf
fjármálaráðherra að tryggja samn-
inga við 120 stéttarfélög!
Fyrirsjáanlegar eru miklar róstur
á vinnumarkaðinum, vegna misræm-
is milli ofurlauna annars vegar og
alltof lágra lágmarks- og meðallauna
hins vegar. Til þess að komast hjá al-
gjörri upplausn verður núverandi
ríkisstjórn að taka sig á og bjarga því
sem bjargað verður. Það getur hún
gert og á að gera áður en algert
neyðarástand skapast.
Það er ekkert vit í að ríkisstjórn
sem hefur yfirgnæfandi meirihluta á
Alþingi setji ekki lög sem taka á
þessum málum. Lög um kaupgjalds-
og verðlagsstöðvun; hækkun lág-
markslauna og lækkun hámarks-
launa, ásamt afnámi frjálsrar álagn-
ingar á vörur og þjónustu. – Til loka
kjörtímabilsins, a.m.k.
Skattalækkanir raunhæfastar
Í stað hinna óraunhæfu launa-
hækkana sem við höfum átt að venj-
ast og hafa gufað upp næstum sam-
hliða undirskrift samninga – eins og
nýleg dæmi sanna – væri raunhæfast
við núverandi aðstæður að fara
„skattaleiðina“ til að lina sárustu kvöl
þeirra sem nú hafa beðið árangurs-
laust eftir leiðréttingu hinna lágu
launa, jafnt sem „meðallauna“.
Veruleg hækkun skattleysismarka
(og/eða persónuafsláttur) er lyk-
ilatriði í þessu sambandi, svo og 10%
skattur á lífeyristekjur. Einnig er
ákvörðun um 15% flatan skatt á allar
tekjur og þjónustu skynsamleg
lausn, líkt og Viðskiptaráð lagði til á
sínum tíma.
Engin þessara atriða eru verð-
bólguhvetjandi, gagnstætt beinum
launahækkunum, sem skapa víxl-
hækkanir kaupgjalds og verðlags, og
eru allsendis óþolandi núna þegar á
ríður að ná verðbólgunni niður.
Blendin viðbrögð margra lands-
manna við myndun núverandi rík-
isstjórnar kunna að eiga þátt í þeim
mótbyr sem ríkisstjórnin virðist
mæta víða. Ekki síst vegna tíðra fjar-
vista helstu máttarstólpa hennar og
ferðalaga víða um heimsbyggðina.
Það er hins vegar með öllu óþolandi,
að ríkisstjórn með mikinn þingmeiri-
hluta hafi ekki þá heildaryfirsýn sem
krefst þess að nú verður að stemma á
að ósi með innrás – ekki útrás – á inn-
lendan launa- og vinnumarkað, hvað
sem líður upphrópunum um „frjálsan
samningsrétt, frjálsa álagningu og
frelsi til athafna“.
Forgangsverkefni stjórnvalda nú
er að tryggja stöðugleika í fjármálum
– lækka verðbólguna. „Þjóðarsátt“ –
og gamaldags verðbólgusamningar
heyra til fortíðinni.
Launagrautur og króna
Geir R. Andersen
skrifar um efna-
hagsmál
» Fyrirsjáan-
legar eru
miklar róstur á
vinnumark-
aðinum, vegna
misræmis milli
ofurlauna ann-
ars vegar og
alltof lágra lág-
marks- og með-
allauna hins
vegar.
Geir R. Andersen
Höfundur er blaðamaður.
Á HVERJU ári síð-
an 1993 hafa Samein-
uðu þjóðirnar (SÞ)
hafnað aðildarumsókn
Taívanbúa. Á því varð
engin breyting að
þessu sinni þótt Taív-
an hafi nú í fyrsta sinn
óskað eftir „mark-
tækri þátttöku“ í
störfum SÞ fremur en fullri aðild.
Ma Ying-jeou, nýlega kjörinn for-
seti Taívans, ákvað að slaka á kröf-
um nú til að sýna umheiminum að
Taívanbúar væru praktískt þenkj-
andi fólk fremur en regluþumbarar.
Tilgangurinn var einnig að liðka
fyrir samskiptum við stjórnina á
meginlandi Kína. Leyfi fyrir beinu
flug milli Kína og Taívans er annað
dæmi um slökunarstefnu í fram-
kvæmd af hálfu yfirvalda á Taívan.
Við viljum frið og festu í sam-
skiptum ríkjanna.
Ein ástæða umsóknar Taívans
um „marktæka þátttöku“ er nauð-
syn þjóðarinnar að eiga beinan að-
gang að störfum Alþjóða-heilbrigð-
isstofnunarinnar (WHO). Við viljum
ekki að afleiðingar bráðalungna-
bólgufársins frá 2003 endurtaki sig;
en þá stóð einangrun
Taívans á alþjóðavett-
vangi í vegi fyrir
skjótri lausn mála.
Mannúðarástæður
hljóta að liggja til þess
að Taívan eigi aðild að
WHO.
Sorglegt er að SÞ
skuli hafa slegið á út-
rétta sáttarhönd Taív-
ans. Yfirskinið var sem
oftar stefna SÞ um
„eitt Kína“. En hvers
vegna skyldi sú stefna
koma í veg fyrir að Taívan geti tek-
ið þátt í störfum undirstofnana SÞ
á borð við WHO? Þótt Bandaríkin
fylgi sömu grundvallarstefnu og SÞ
hafa þau stutt umsókn Taívans um
marktæka þátttöku í störfum slíkra
stofnana: aðild að Alþjóða-
viðskiptastofnuninni (WTO) og
áheyrnaraðild að WHO. Ljóst er að
engin rökleg mótsögn er milli stefn-
unnar um „eitt Kína“ og þess að
fulltrúar frá Taívan fái að sitja sér-
fræðingafundi á vegum WHO, svo
að dæmi sé tekið.
Á Evrópuþinginu hafa nokkrir
þingmenn, svo sem Hans Christian
Edward McMillan-Scott frá Bret-
landi og Georg Jarzembowski frá
Þýskalandi, lagst á árarnar með
Taívan. Þeim hefur þó ekki tekist
að sannfæra Evrópusambandið um
að styðja umsókn Taívans um þátt-
töku í störfum SÞ.
Ma, forseti Taívans, sagði í inn-
setningarræðu sinni að það verði
ekki fyrr en einangrun Taívans á
alþjóðavettvangi lýkur sem sam-
skiptin við meginlandið geti komist
í samt lag. Þíða í samskiptum við
meginlandið og aukin þátttaka Ta-
ívans á alþjóðavettvangi eru tvær
hverfur á sama fati.
Í 16. sinn hafa SÞ, Evrópa og
Kína skellt skollaeyrum við ósk Ta-
ívanbúa um aukna alþjóðlega við-
urkenningu og reisn. Hvernig geta
SÞ gegnt hlutverki sínu sem „lím-
ið“ sem bindur allt mannkyn saman
á meðan það daufheyrist við vilja
23 milljóna Taívanbúa til að fá að
vera með í störfum stofnana á borð
við WHO? Við leitum eftir skilningi
og stuðningi Íslendinga og annarra
Evrópubúa.
SÞ setja Taívan
enn stólinn fyrir dyrnar
Vanessa Shih
skrifar um aðild-
arumsóknir
Taívans að SÞ
» Í 16. sinn hafa SÞ,
Evrópa og Kína
skellt skollaeyrum við
ósk Taívanbúa um
aukna alþjóðlega við-
urkenningu og reisn.
Vanessa Shih
Höfundur er ráðherra upplýsinga-
mála í Lýðveldinu Kína (Taívan).
Fyrir nokkrum dögum setti ég
þessi orð á vefsíðu mína bjorn.is:
„Þegar ég skrifaði Staksteina,
var lögð rík áhersla á, að höf-
undar væru vel að sér um það,
sem birst hefði í Morgunblaðinu.
Skyldi sú regla ekki lengur við
lýði?“
Í Morgunblaðinu 26. sept-
ember sé ég, að höfundur Stak-
steina hefur lesið svör mín til
blaðamanns, áður en þau birtust
í blaðinu. Hann svarar þeim
sama dag og þau birtast. Þetta
er nýmæli og tíðkaðist ekki, þeg-
ar ég skrifaði Staksteina.
Blaðamaðurinn spurði mig
álits í tilefni af ferð Evrópu-
nefndar til Brussel og sagði ég
meðal annars í svari mínu: „Mig
undrar enn í þessu sambandi,
hve sumir stjórnmálamenn og
álitsgjafar eru mjúkir í hnjálið-
unum, þegar rætt er við embætt-
ismenn í Brussel.“
Vegna þessara orða spyr höf-
undur Staksteina, hvort ég eigi
við Illuga Gunnarsson, þingmann
Sjálfstæðisflokksins, eða Geir H.
Haarde, forsætisráðherra, með
orðum mínum. Svarið er einfalt,
hvorugur þessara manna gengur
fram á þann veg gagnvart Evr-
ópusambandinu, að lýsing mín
eigi við þá.
Til dæmis um álitsgjafa, get ég
bent höfundi Staksteina á einn
úr þeirra hópi, þann, sem sýndi
af sér einstaka stimamýkt í Stak-
steinum, eftir að utanrík-
isráðherra Spánar hafði gefið
tóninn í heimsókn sinni hingað til
lands á dögunum.
Björn Bjarnason
Stimamýkt
í Staksteinum
Höfundur er dóms- og
kirkjumálaráðherra.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á ferðum til Kraká í október og byrjun nóv-
ember. Borgin er ein best varðveitta borg Póllands og er stór hluti hennar á
minjaskrá UNESCO. Kraká er afar lífleg og skemmtileg borg sem heillar alla
sem þangað koma. Fjöldi veitingahúsa, bara,
skemmtistaða og verslana er í borginni, ekki síst
í kringum stóra markaðstorgið, Rynek Glowny,
sem er nafli Kraká. Bjóðum frábært sértilboð á
Hotel Major *** á öllum brottförum - Ath. að-
eins örfá herbergi í boði á þessum kjörum í
hverri brottför. Fleiri gististaðir einnig í boði.
Verð frá kr. 49.990
- helgarferð (3 eða 4 nætur)
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Major *** með morgunverði í 3 nætur 23. okt.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 12.000. Fjögurra nátta
ferð 30. okt. kr. 5.000 auklega. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 16.000. Sértilboð - aðeins örfá her-
bergi í boði á þessum kjörum.
Verð frá kr. 39.990
- flug og gisting (3 eða 4 nætur)
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Major *** með morgunverði í 3 nætur, 3. nóv.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 12.000. Fjögurra nátta
ferð 26. okt. kr. 5.000 auklega. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 16.000. Sértilboð - aðeins örfá her-
bergi í boði á þessum kjörum.
M
b
l1
04
63
61
Frábærar ferðir - síðustu sætin!
Kraká
í október
frá aðeins kr. 39.990
17. okt. - UPPSELT
20. okt. - UPPSELT
23. okt. - 24 sæti
26. okt. - nokkur sæti laus
30. okt. - 33 sæti
3. nóv. - nokkur sæti laus
6. nóv. - UPPSELT
Fegursta borg Póllands!
- ótrúleg sértilboð