Morgunblaðið - 27.09.2008, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MÁLVERKIÐ Arlequin eftir
spænska listamanninn Pablo Picasso
verður boðið upp í New York í nóv-
ember. Verkið er talið eitt það merk-
asta eftir Picasso og er búist við að
það seljist fyrir að minnsta kosti 30
milljónir dollara – um þrjá milljarða
íslenskra króna.
Verkið hefur ekki komið fyrir sjón-
ir almennings í 45 ár, en það var í eigu
listamannsins Enrico Donati sem lést
fyrr á þessu ári, 99 ára að aldri.
Emmanuel Di-Donna hjá Sothe-
by’s uppboðshaldaranum segir að
þarna sé á ferðinni eitthvert merk-
asta verk kúbismans sem nokkru
sinni hefur verið selt á opnum mark-
aði. „Alþjóðlegir safnarar hafa ekki
fengið annað eins tækifæri til þess að
berjast um eitt af bestu verkum
Picassos síðan Sotheby’s bauð Dora
Maar au chat upp,“ segir Di-Donna
og vitnar þar til annars verks eftir
Picasso sem seldist fyrir 95 milljónir
dollara, rúma níu milljarða króna, ár-
ið 2006.
Picasso
á uppboði
Eitt merkasta verk
meistarans boðið upp
Verðmætur Pablo Picasso.
ROBERT Gir-
oux, sem líklegast
er einn frægasti
ritstjóri fag-
urbókmennta í
Bandaríkjunum,
er látinn, 94 ára
að aldri.
Það var hann
sem leiddi rithöf-
unda á borð við
Flannery O’Connor, Jack Kerouac,
Susan Sonntak, Elizabeth Bishop og
Robert Lowell í gegnum sínar fyrstu
bækur.
Eftir því sem orðspor hans óx
varð hann að sjálfsögðu eftirsóttari,
ekki einungis í Bandaríkjunum held-
ur einnig utan þeirra. Giroux vann
til að mynda með einum sjö Nób-
elsverðlaunahöfum þeim T.S. Eliot,
Alexander Solzenitsyn, Isaac Bas-
hevis Singer, Derek Walcot, William
Golding, Seamus Heaney og Nadime
Gordimer. Af þessum var einungis
Eliot fæddur í Bandaríkjunum.
Fann sig fljótt í bókmenntum
Faðir Giroux var verkamaður og
móðir hans kennari. Sjálfur hætti
hann í skóla til að vinna fyrir sér
sem blaðamaður í kreppunni miklu.
Seinna fékk hann styrk til náms í
Columbia-háskólanum þar sem hann
ætlaði að leggja stund á nám í blaða-
mennsku. Hann var þó fljótari að
finna sig í bókmenntafræði og eftir
það varð ekki aftur snúið.
Það var Giroux sem kynnti Robert
Lowell fyrir Esra Pound sem er ein-
ungis eitt dæmi um það sem hann
áorkaði án þess að mikið bæri á við
að móta bókmenntasýn 20. aldar.
Ritstjóri
stórskálda
Robert Giroux
TVÍBURASYSTURNAR
Gunnhildur og Brynhildur
Þórðardætur opna sýninguna
Prjónaheimur Lúka í Þjóð-
minjasafni Íslands kl. 14 í dag.
Systurnar skipa listadúóið
Lúka Art & Design sem var
stofnað haustið 2004. Þær
hafa verið í samstarfi við
Glófa, einn stærsta framleið-
anda prjónavara á Íslandi, en
þær hönnuðu munstur fyrir
vörur úr íslenskri ull sem Glófi framleiðir. Hug-
myndin að munstrinu er unnin út frá lakkrískon-
fekti. Í dag verður einnig opnuð sýning í Þjóðminja-
safninu á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar.
Forseti Íslands opnar sýninguna kl. 16.
Sýningar
Lakkrís og
ljósmyndun
Gunnhildur og Bryn-
hildur Þórðardætur.
HINIR árlegu minning-
artónleikar um hjónin Sigríði
Jónsdóttur og Ragnar H.
Ragnar verða haldnir í Hömr-
um á Ísafirði á morgun, sunnu-
dag, kl. 15. Tónleikarnir eru
með miklum hátíðarbrag, en
þar kemur fram Kamm-
ersveitin Ás, sem lagt hefur
áherslu á tónlist frá barokk-
tímanum og leikur á upp-
runaleg hljóðfæri. Á efnisskrá
eru tvær kantötur og Brandenborgarkonsert nr. 6
eftir Bach, Svíta nr. 7 eftir J.C.F. Fischer og
Kvintett op. 39 nr. 3 eftir Boccherini. Aðgangs-
eyrir er 1.500 kr., 1.000 kr. fyrir lífeyrisþega en
ókeypis fyrir skólafólk 20 ára og yngra.
Tónleikar
Barokksveit og
söngur í Hömrum
Ragnar H.
Ragnar
TÓNLEIKARÖÐIN Kristall-
inn hefst í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins kl. 17 í dag, en yf-
irskriftin er „bandarískt
brass“. Þá koma fram hljóð-
færaleikararnir Eiríkur Örn
Pálsson á trompet, Einar St.
Jónsson á trompet, Emil Frið-
finnsson á horn, Sigurður Þor-
bergsson á básúnu og Tim
Buzbee á túbu. Þeir félagarnir
kalla sig Sönglúðra lýðveld-
isins og koma stundum fram undir því heiti.
Miðaverð er 1.700 kr. en 8.670 kr. ef miðar eru
keyptir á alla sex tónleikana. Miða má nálgast á
sinfonia.is, í miðasölu sveitarinnar í Háskólabíói,
eða við inngang. Nánar á thjodmenning.is.
Tónleikar
Sönglúðrar lýðveld-
isins í Kristalnum
Sigurður
Þorbergsson
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„BÍDDU, ég verð að ná mér í kaffi í
bollann áður en við spjöllum, er það
ekki í lagi?“ spyr Gerrit Schuil
píanóleikari. Tilefni spjallsins er
tónleikaröð í Kirkjuhvoli í Garðabæ
sem hefst á morgun kl. 17, þegar
Gerrit og Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran flytja söngva og
aríur allt frá Mozart til Gershwins.
„Ég byrjaði aftur með tónleikaröð
í Garðabænum í fyrra eftir nokkurra
ára hlé. Í fyrra gerði ég allt sjálfur
og fékk stóran styrk frá Glitni, sem
bjargaði öllu. En ég vil ekki hafa þá
ábyrgð að þurfa að gera allt einn og
sjá líka um peningamálin, þannig að
ég talaði við bæjarstjórann í Garða-
bæ því hann var mjög glaður að fá
þessa tónleika aftur í Garðabæinn.
Úr varð að nú er þetta samstarf við
bæinn og menningarmálanefndina,
sem sér um alla ytri stjórn. Ég er
listrænn stjórnandi og þarf bara að
hugsa um tónlistina og skrifa pró-
grammnótur fyrir tónleikana. Það er
mikil vinna samt.“
Gaman að vinna með nýju fólki
Gerrit segir það hafa verið sér-
staklega gaman að undirbúa tón-
leikaröðina og setja saman dag-
skrána. „Þetta er ungt fólk, og með
flestum þeirra er ég að vinna í fyrsta
sinn. Það er mjög spennandi og
gaman fyrir mig,“ segir hann.
Gerrit er þekktur að frábærum
leik með söngvurum, en það er
sjaldnar að í honum heyrist með
hljóðfæraleikurum, þótt hann hafi
vissulega sýnt þá hlið á sér líka.
„Ég verð með tvo hljóðfæraleik-
ara; Ara Þór Vilhjálmsson og Bryn-
dísi Höllu Gylfadóttur; tvo söngvara
með blandaða efnisskrá, Huldu
Björk og Gissur Pál Gissurarson, og
tvo með ljóðaprógramm, Eyjólf Eyj-
ólfsson og Ágúst Ólafsson, sem er
snillingur í ljóðasöng.“
Það var ekkert sérstakt þema á
bak við val þeirra sem koma fram
með Gerrit, að hans sögn. Hann hef-
ur fylgst með unga fólkinu koma
fram á sjónarsviðið, en það hefur
lengi verið á óskalista hans að spila
með Bryndísi Höllu. „Það hefur bara
aldrei tekist þar til nú. Við spiluðum
reyndar saman í fyrsta sinn á
kammermúsíkhátíð í Danmörku í
fyrra og við fundum að við yrðum að
gera eitthvað meira úr samstarfinu.
Hulda Björk er líka búin að vera
lengi á óskalistanum mínum. Ég
spilaði með Gissuri svolítið rétt eftir
að hann kom heim úr námi fyrir
tveimur árum; ég var bara eitt vá!
Svo söng hann svo frábærlega vel í
Sálumessu Verdis í fyrra. Ég bað
hann strax þá að syngja með mér og
guði sé lof að hann var laus. Ég
hlakka líka mjög mikið til að vinna
með Ara Þór og Eyjólfi, sem ætlar
að syngja söngva eftir Reynaldo
Hahn sem heyrast sjaldan hér á
landi. Ágúst söng með mér í fyrra,
þannig að það verður bara ánægju-
legt framhald nú. Þú sérð að ég hef
verið mjög heppinn með fólk og efn-
isskrá allra er mjög spennandi.“
Gerrit hélt sína fyrstu tónleikaröð
í Kirkjuhvoli í Garðabæ veturinn
1997-8. Hún var tileinkuð afmæli
Schuberts og tókst gríðarlega vel.
„Kirkjuhvoll er fínn salur, með fínan
hljómburð og góðan flygil og þar er
alltaf stemning.“
Fyrir Gerrit er tónlistin ekki bara
vinna. „Tónlistin er mér eins og ást-
in. Án ástar er lífið algjörlega inn-
antómt. Ég hef stundum sagt að nú
sé komið nóg, en eftir tvo daga er
það búið. Hér líður mér vel og ég á
hér marga góða vini, og hvar annars
staðar í heiminum væri hægt að búa
til jafn skemmtilega tónleika?“
Tónlistin er eins og ástin
Gerrit Schuil með nýja tónleikaröð í Garðabæ Leikur með Huldu Björk
Garðarsdóttur í Kirkjuhvoli kl. 17 í dag Ungt tónlistarfólk í öndvegi
Morgunblaðið/Valdís Thor
Í dag Gerrit og Hulda Björk flytja sönglög og aríur frá ýmsum tímum.
ÉG er svo hamingjusamur yfir því að vera hér, og
í þessum nýja og fína sal,“ segir píanóleikarinn
Martin Berkofsky. Þeir Einar Jóhannesson klar-
inettuleikari halda tónleika í Salnum í dag klukk-
an 17. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir
Schumann, Þorkel Sigurbjörnsson og Brahms.
Auk þess leika þeir sitt einleiksverkið hvor; Einar
eftir armensk-bandaríska tónskáldið Hovhaness
en Berkofsky leikur píanósónötu eftir Beethoven.
Margir Íslendingar muna eftir Berkofsky, sem
bjó hér á landi um nokkurra ára skeið á níunda
áratugnum og tók virkan þátt í tónlistarlífinu. Það
var líka hér sem hann lenti í alvarlegu bílslysi árið
1982 og var í nokkurra mánaða endurhæfingu á
Grensásdeildinni. Slysið breytti lífi hans. Eftir
það hefur hann helgað líf sitt góðgerðarstarfsemi;
leikur ekki lengur fyrir launum, heldur rennur
ágóðinn til góðgerðarmála. Hann starfrækir eigin
góðgerðarstofnun og hleypur einnig maraþon,
sem hann notar til að safna áheitum.
„Hugmyndin fæddist á Grensásdeildinni,“ segir
hann. „Það var talið að ég myndi ekki spila aftur,
enda með handlegginn brotinn á átta stöðum og
er ennþá með fullt af nöglum og skrúfum í lík-
amanum. En mér var gefið annað tækifæri og ég
vil nota það eins vel og ég get.“
Berkofsky hefur ekki leikið hér á landi „í mörg,
mörg ár“, eins og hann segir. Þeir Einar hafa þó
leikið saman erlendis og hljóðrituðu disk í Moskvu
með tónlist eftir Brahms og Schubert. „Það var til
styrktar munaðarleysingjahæli. Við lékum einnig
á styrktartónleikum í Washington. Þá bauð Einar
mér að leika hér. Ég er mjög ánægður með að
vera kominn.“ efi@mbl.is
Fékk annað tækifæri
Morgunblaðið/Valdís Thor
Martin og Einar „Það var talið að ég myndi ekki
spila aftur,“ segir Martin meðal annars.
Martin Berkofsky og Einar Jóhannesson í Salnum
25. október
Eyjólfur Eyjólfsson
tenór. Ljóðasöngvar eftir
Beethoven, Schubert og
Reynaldo Hahn.
29. nóvember
Ari Þór Vilhjálmsson
fiðluleikari. Verk eftir Mozart og
Chausson og Kreutzer-sónata
Beethovens.
28. febrúar
Ágúst Ólafsson
baríton. Ljóð eftir Schumann o.
fl.
28. mars
Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari. Sellósónata í A-dúr
eftir Beethoven og fleira.
18. apríl
Gissur Páll Gissurarson
tenór. Ljóðasöngvar og
óperuaríur.
Gerrit Schuil
í Garðabæ
Ég geng út frá sögu
sem fjallar um konu
sem er allsber og á túr … 48
»