Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 9 ALÞINGI www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Gallapilsin komin Str.38-56 Tilboð á myndatökum til 18. október. Mynd - Ljósmyndastofa í 25 ár Gjafakort - Gjöf konunnar MISTY • Laugavegi 178 • Sími 551 3366 • www.misty.is Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mánud.-föstud. 10-18 Opið í Bæjarlind laugard. 10-16 Opið í Eddufelli laugard. 10-14 Hnésíð pils FUNDUR SAF UM EVRÓPUSAMBANDIÐ Kostir og gallar aðildar fyrir íslenska ferðaþjónustu Grand Hótel Reykjavík 16. október 2008 Dagskrá kl. 13:00 Velkomin Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar kl. 13:10 Helstu áhrif ESB aðildar fyrir íslenska ferðaþjónustu Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands kl. 14:00 Áhrif ESB aðildar og upptöku evru fyrir finnska ferðaþjónustu Jaakko Lehtonen, framkvæmdastjóri finnska ferðamálaráðsins kl. 14:50 Kaffi kl. 15:00 Pallborðsumræður: Gunnar Haraldsson, framsögumaður Jaakko Lehtonen, framsögumaður Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Illugi Gunnarsson, alþingismaður Árni Páll Árnason, alþingismaður Fundarstjóri: Róbert Trausti Árnason, verkefnastjóri Evrópumála hjá Samtökum atvinnulífsins. Vinsamlega skráið þátttöku hjá info@saf.is eða í síma 511-8000. S A F Við höfum sett saman pakka sem inniheldur grenningarnudd með cellulite - jurtaolíum, líkamsvafning og extra flabelos. þú mætir 5 sinnum og árangurinn er engu líkur. Brennir fitu Hægir á öldrun Grennir Minnkar appelsínuhúð Mótar vöðva Eykur sveiganleika Örvar blóðrás Eykur beinþéttni Dregur úr æðahnútum Dregur úr verkjum í mjóbaki Þessi meðferð virkar Við notum eingöngu bestu grenningartæki sem til eru í heiminum í dag. 10 mín, = 1 klst. í ræktinni TILBOÐ 24.900 kr. Hringdu strax og tryggðu þér flottan líkama núna hringið núna í síma 577 7007 EKKI kemur til greina að víkja frá umhverfismati vegna álvers á Bakka. Þetta sagði Þórunn Svein- bjarnardóttir umhverfisráðherra á Alþingi í gær og þótti fyrirspurn Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, vanhugsuð en hann vildi vita hvort ráðherra væri til í að draga ákvörðun sína um um- hverfismatið til baka til að flýta fyr- ir framkvæmdum. Þórunn sagði umhverfismatið vera í eðlilegu ferli. „Það er allt í góðu lagi á Bakka,“ sagði Þórunn. Jón sagði hins vegar að Alþingi yrði að senda skýr skilaboð um það á hverju ætti að byggja samfélagið í framtíðinni. „Það þýðir ekkert að segja við þessa þjóð að það sé allt í lagi að tefja framkvæmdir,“ sagði Jón og bætti við að eins og staðan í efnahagslífinu væri hefði þjóðfélag- ið ekki efni á að tefja álvers- uppbygginguna. halla@mbl.is Ekki vikið frá umhverfismati Morgunblaðið/Kristinn Allt í góðu „Það er allt í góðu lagi á Bakka,“ sagði Þórunn í gær. Stutt og laggott Kristinn H. Gunn- arsson, Frjáls- lynda flokknum, beindi tveimur spurningum til Geirs H. Haarde í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Annars vegar spurði Kristinn hvers vegna ís- lenskum ráðamönnum hefði mistek- ist að koma því á framfæri við breska fjölmiðla að innstæður allra reikninga í íslenskum bönkum væru tryggðar eins og þegar hafði verið lýst yfir. Hins vegar spurði Kristinn út í yfirlýsingar utanríkisráðherra um að nú væru tveir valkostir: Að ganga í Evrópusambandið eða fara aftur til fortíðar. Kristinn fékk stuttaralegt svar við báðum spurningunum: „Þar urðum við háttvirtur þingmaður loks- ins sammála. Við erum sammála um það að það jafngildir ekki því að vilja fara aftur til fortíðar að vilja ekki ganga í Evrópusambandið,“ sagði Geir. Bílar úr landi Greiða ætti fyrir því að hægt sé að flytja bíla, sem ekki eru lengur not fyrir, úr landi. Þetta kom fram í svari Geirs H. Haarde, forsætis- ráðherra, við fyrir- spurn Sigríðar Á Andersen, Sjálf- stæðisflokki, en hún tók fyrsta sinn sæti á Alþingi í gær. Sigríður velti því upp hvort veita ætti heimild til endurgreiðslu vöru- gjalda og virðisaukaskatts við út- flutning nýrra og nýlegra ökutækja til að koma í veg fyrir að mikil verðmæti fari forgörðum nú þegar þrengir að. Geir tók undir það en áréttaði að finna þyrfti réttu leiðirnar þannig að öðrum sem hagsmuna eiga að gæta yrði ekki mismunað. Vatnalög bíða Gildistöku vatnalaga sem samþykkt voru árið 2006 verður frestað enn frekar eða fram til 1. júlí 2010. Iðn- aðarráðherra ætlar að skipa nefnd sem á að endurskoða lögin. Nú þeg- ar hefur einn starfshópur skoðað samræmi vatnalaga við önnur ís- lensk lagaákvæði og hann skilaði einróma niðurstöðu 15. september sl. um að ítarleg endurskoðun á lög- unum þyrfti að fara fram. Gert er ráð fyrir að frumvarp til breytinga á vatnalögum verði lagt fram á vorþingi árið 2010. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 13:30 með um- ræðum um störf þingsins. halla@mbl.is ÞETTA HELST ... Kristinn H. Gunnarsson Sigríður Á. Andersen ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður VG, mælti í gær fyrir frumvarpi um að fjármálafyrirtæki gætu einungis fengið eina tegund starfsleyfis og því ekki bæði verið viðskiptabanki, þ.e. sem almenningur leitar til, og í fjár- festingabankastarfsemi en það vísar til kaupa og sölu á verðbréfum o.s.frv. Þetta er í þriðja sinn sem VG leggja þetta frumvarp fram á Al- þingi og þingmenn flokksins vilja meina að ástandið væri ekki eins slæmt í dag og raun ber vitni hefði það verið samþykkt. Í lagi á EES? Valgerður Sverrisdóttir, þingmað- ur Framsóknar, efaðist hins vegar um að það samræmdist reglum á Evrópska efnahagssvæðinu og benti á að Alþingi yrði að taka mið af þeim. Steingrímur J. Sigfússon, þingmað- ur VG, sagði það umdeilt en að ljóst væri að Ísland mætti setja skil- yrði fyrir útgáfu starfsleyfa eftir flokkum og þann- ig aðskilja starf- semi fjármálafyr- irtækja. A.m.k. væri rétt að láta reyna á það. Sagði Stein- grímur að afstýra hefði mátt miklum hörmungum ef fjármálageiranum hefði ekki verið leyft að þróast eins stefnu- og eft- irlitslaust og raun bar vitni. „Ætli það hefði ekki komið sér líka betur núna að bankarnir hefðu ekki verið í höndum örfárra stórra fjárfesta sem gengu þar út og inn og skömmtuðu sjálfum sér lán til gríðarlegra fjár- festinga í útlöndum,“ spurði Stein- grímur. halla@mbl.is Fái aðeins eina tegund leyfis Fjármálageirinn þróaðist eftirlitslaust Steingrímur J. Sigfússon RANNSAKA á ítarlega öll viðskipti fyrrverandi eigenda, bankaráðs- manna, bankastjóra og æðstu stjórn- enda Glitnis, Landsbanka Íslands og Kaupþings síðastliðið ár. Þetta er krafa þingflokks Vinstri grænna en hann hefur sent skilanefndum bank- anna bréf um málið þar sem tekið er fram að sérstaklega þurfi að skoða hugsanlegar millifærslur til erlendra banka, gjaldeyriskaup og fjármögn- un þeirra og hvernig bankarnir stóðu að eignastýringu, ráðgjöf og flutningi peninga almennra viðskiptavina af bankareikningum yfir í ótryggari fjárvörslu, ss. hlutabréfasöfn eða peningamarkaðsreikninga. Þingflokkurinn vill einnig að Ríkis- endurskoðun kanni með hvaða hætti sú stofnun eigi að koma að ráðstöfun þeirra miklu fjármuna sem eru í höndum ríkisins eftir yfirtöku bank- anna þriggja. „Það er okkar mat að óumflýjanlegt sé að Ríkisendurskoð- un komi þegar að þeim þáttum sem á hennar verksviði eru og verða í fram- haldinu. Lýtur það bæði að endur- skoðun þeirra banka sem stofnaðir hafa verið í eigu ríkisins sem og að endurskoðun þeirra móðurfélaga sem ríkið hefur yfirtekið og eru nú í höndum opinberra skilanefnda,“ seg- ir í bréfi sem þingflokkur VG hefur sent forsætisnefnd Alþingis. Vilja rannsókn á við- skiptum bankamanna AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.