Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Með hrunibankannahefur á ný orðið tilfærsla á völdum í íslensku þjóðfélagi. Um skeið var viðskiptavaldið orðið slíkt á Íslandi að það skyggði á stjórnarráðið og Alþingi. Nú hefur valdið færst að nýju til stjórnmálamannanna. Á und- anförnum vikum hefur rétt- mæti gagnrýninnar á fjár- málakerfi án regluverks og aðhalds sannast. Þegar ríkið tekur nú forræði yfir bönkunum á ný má ekki hverfa aftur til gamalla vinnu- bragða þegar pólitískar for- sendur en ekki faglegar réðu skipunum í bankaráð og bankastjórastóla. Þessar að- ferðir færðu á sínum tíma heim sanninn um að ríkið ætti ekki að vasast í rekstri viðskipta- banka. Rekstur banka á ekki að byggjast á pólitík, heldur forsendum viðskipta. Þegar ríkið tekur nú aftur við rekstri banka eftir stutt og afdrifaríkt einkavæðing- arskeið örlar strax aftur á gömlu vinnubrögðunum. Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar við- skiptaráðherra sá sóma sinn í því að hafna stjórnarfor- mennsku í Nýja Glitni. Sig- mundur Sigurgeirsson, sér- legur ráðgjafi Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra hefur verið skipaður í bráða- birgðastjórn Nýja Glitnis. Þarna hringja strax viðvör- unarbjöllur. Björgvin segir í viðtali í Morgunblaðinu í dag að það sé sérstakt markmið að hinar varanlegu stjórnir verði ekki útdeil- ingarstöðvar fyrir pólitíska bitlinga. „Það verða faglega skipaðar bankastjórnir, valdar eftir þekkingu og hæfni fólks, en ekki eftir pólitískum skoð- unum. Það er auðvitað sérstök staða sem er komin upp, að ríkið sitji uppi með bankana. Það þarf að gæta þess í hví- vetna að vel verði að verki staðið. Það munum við gera,“ sagði Björgvin. Það er mikilvægt að það gangi eftir. En bráðabirgða- stjórnirnar gegna einnig mik- ilvægu hlutverki. Nú þarf að vinna hratt, en það þarf einnig að vanda til verksins. Allar skipanir þurfa að vera hafnar yfir vafa. Það er mikið í húfi fyrir almenning og hann á heimtingu á því að stjórn- málamennirnir standi undir kröfum um að þeir vandi til verksins. Einnig vekur athygli að ekki er farið eftir jafnréttislögum við skipanina í bráðabirgða- stjórnirnar og gefst tækifæri til að bæta úr því í næsta skrefi. En mikilvægast er að átta sig á því að nú eru þáttaskil, sem kalla á endurmat og end- urskoðun allra gilda. Þessa stöðu á að nota til að segja skil- ið við fortíðina og taka ákvarð- anir sem ekki helgast af þröng- um pólitískum hagsmunum, heldur hagsmunum almenn- ings. Hagsmunir almennings eiga að vera í fyrirrúmi } Allt í gamla farið? Ingibjörg SólrúnGísladóttir ut- anríkisráðherra skrifaði athygl- isverða grein hér í blaðið í gær. Mesta athygli hafa vakið þau ummæli hennar, að nú eigi Ísland tvo kosti: „Annaðhvort pökkum við í vörn og hverfum aftur til þess tíma sem var fyrir 1994 eða við sækjum fram og búum til þær varnir fyrir íslenskan almenn- ing og íslensk fyrirtæki sem við þurfum í upphafi 21. aldar.“ Ráðherrann kýs seinni kost- inn; aðstoð Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins við að vinna okkur út úr vandanum og síðan aðild að Evrópusambandinu og evru til að styðja íslenzka hagkerfið. Þetta er mikilvæg yfirlýsing og snýst ekki aðeins um þær stofnanir, sem ráðherrann nefnir. Hún vill klárlega að Ís- land haldi áfram á braut al- þjóðavæðingar, alþjóðlegs samstarfs og opins hagkerfis, en hverfi ekki aftur til hafta, lokaðs hagkerfis og ríkisfor- sjár. Viðbrögð við kreppu eins og þeirri, sem við göngum nú í gegn- um, hafa í sögunnar rás oft verið þau að grípa til vernd- arstefnu; hækka tolla, reyna að verja innlendar atvinnugreinar fyrir erlendri samkeppni, loka á fjárfest- ingar. Þetta var til dæmis reynt með Smoot-Hawley- lögunum, sem sett voru í Bandaríkjunum í kreppunni miklu. Flestir hagfræðingar telja að lögin hafi stuðlað að því að dýpka og lengja kreppuna. Við náum okkur ekki upp úr kreppunni með því að draga úr frjálsum viðskiptum eða er- lendum fjárfestingum. Ísland þarf þvert á móti meiri fríverzl- un og erlenda fjárfestingu til að ná sér upp úr öldudalnum. Þótt nauðsynlegt sé að setja fjármálamarkaðnum skýrari reglur hefur það ekki breytzt að frjáls alþjóðaviðskipti og op- ið hagkerfi gagnast bezt til að tryggja hagsæld um allan heim. Það er leiðin áfram. Leið haftanna hefur verið prófuð á Íslandi með vondum árangri. Frjáls alþjóða- viðskipti tryggja hagsæld} Aftur á bak eða áfram? S amkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið undanfarin ár um breska kaupsýslumanninn Sir Philip Green er hann nánast ein- stakur að því leyti, hversu dugleg- ur hann er að gæta eigin hagsmuna. Mér er sagt að Sir Philip sé alltaf, undantekn- ingalaust, að hugsa um eigin hagsmuni, hvernig hann geti grætt enn meir og hvar hann geti fundið „góð kauptækifæri“. Ég talaði á sunnudag við breskan blaða- mann, sem er öllum hnútum kunnugur í City og skrifar mikið um breskt viðskipta- og fjár- málalíf. Hann sagði við mig, að hann vonaði Íslendinga vegna að skilanefnd Landsbank- ans, formaður hennar og viðskiptaráðherra tækju nú ekki upp á þeim ósköpum að hlaupa til og þekkjast smánarboð Sir Philips í skuldir Baugs við Landsbankann. Ég sagði honum að ég vissi raunar lítið um það hver yrði niðurstaðan, en ég teldi af- ar ólíklegt að tilboð hins aðlaða breska auðjöfurs þætti einu sinni skoðunarvert. Blaðamaðurinn breski sagði mér að sú saga gengi fjöllunum hærra í City í London, að Sir Philip vildi bjóða skilanefnd Landsbankans að hann keypti upp skuldir Baugs við bankann með því að greiða 5% skuldanna og síðan hygðist hann selja skuldapakk- ann áfram með 100% hagnaði, eða fyrir 10% af skulda- andvirðinu! Klikkað ef satt reynist, ekki satt?! Kærir sig einhver um að selja Sir Philip fyrir slikk stórkostleg verðmæti? Sama Sir Philip og hélt upp á 55 ára afmælið sitt í fyrra með því að fljúga með „100 nán- ustu vini sína“ til Maldíveyja á Indlandshafi, þar sem hann hafði tekið heila eyju á leigu og hélt „vinunum nánu“ fimm daga kampavíns- afmælisveislu og pungaði út skitnum 20 millj- ónum punda fyrir lítilræðið! Raunar er frásögnin af Sir Philip og því, hvers konar kauptækifæri hann sér í þrotabúi okkar, aðeins ein af mörgum. Pen- ingamenn um allan heim, þ.e.a.s. þeir sem hafa handbært fé, munu margir hafa rennt hýru auga til Íslands undanfarna daga með það í huga að hér væri sennilega hægt að gera kjarakaup. Til dæmis fékk ég eina fyr- irspurn fyrir helgi, þar sem ég var grínlaust spurð hversu mikið ég héldi að það kostaði fyrir ákveðinn hóp viðskiptafélaga að hirða upp leifarnar af íslenska bankakerfinu! Það er augljóst af þeim áhuga sem við höf- um vakið með fjármálahýenum heims, að nú ríður á að stjórnvöld og skilanefndir bankanna, sem starfa í þeirra umboði, haldi ró sinni, ígrundi vel hvernig staðið skuli að málum og hafi það eitt að leiðarljósi, að búa þannig um hnúta, að tjón okkar Íslendinga til framtíðar verði lág- markað. Þótt forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, hafi í lið- inni viku hagað sér eins og rakið fífl, í popúlískum að- gerðum sínum gegn smáþjóðinni Íslendingum og þar með sett Kaupþing á hausinn, þá er hann varla slíkur fá- viti að hann ráðist í þjóðnýtingu á eignum Baugs í Bret- landi, eignum sem raunverulega eru eignir Landsbank- ans, vegna skuldastöðu Baugs! agnes@mbl.is Agnes Bragadóttir Pistill Sir Philip fyrir sig Hundruð milljarða evra sett í bankana FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is S TJÓRNVÖLD í sjö aðild- arlöndum Evrópusam- bandsins kynntu í gær viðamestu aðgerðir sínar til þessa í baráttunni gegn fjármálakreppunni sem hefur orðið til þess að bankar víða um heim hafa riðað til falls. Aðildarlöndin hétu því að verja allt að 1,7 billjónum evra til að bjarga bönkunum, en hafa ber þó í huga að ekki er víst að nota þurfi allt það fé. Áður höfðu ESB-löndin verið gagnrýnd fyrir að grípa ekki til sam- ræmdra aðgerða gegn bankakrepp- unni. Viðbrögð þeirra hafa hingað til þótt ómarkviss og höfðu ekki tilætluð áhrif á markaðina. Með aðgerðunum í gær hafa Evrópulöndin farið fram úr bandarískum stjórnvöldum í barátt- unni gegn kreppunni. Þótt Banda- ríkjaþing hafi heimilað stjórninni í Washington að nota alls 700 milljarða dollara til að bjarga bönkum hefur hún ekki enn ákveðið hvernig nýta eigi peningana. Aðgerðir Evrópuríkjanna urðu til þess að hlutabréfavísitölur snar- hækkuðu í gær. Hækkanirnar eru einnig raktar til þess að seðlabankar Bandaríkjanna, Evrópu og Sviss til- kynntu í gær að þeir myndu veita fjármálastofnunum ótakmörkuð lán í dollurum. Seðlabanki Japans íhugar að gefa samskonar loforð. Um 250 milljarðar evra af fénu, sem ESB-löndin lofuðu í gær, verða notaðir til að kaupa hlutabréf í bönk- um. Megnið af björgunarsjóðum Evr- ópulandanna verður þó notað til að ábyrgjast millibankalán til loka næsta árs. Þessar ábyrgðir eru mjög mikilvægar vegna þess að bankar hafa verið mjög tregir til að lána hver öðrum frá því að bandaríski bankinn Lehman Brothers var úrskurðaður gjaldþrota 15. september. Hagfræðingar hafa sagt að brýnast sé að endurvekja traust bankanna og fá þá til að koma lánastarfseminni í eðlilegt horf að nýju, en það er ein- mitt meginmarkmið ábyrgðanna sem tilkynntar voru í gær. Bankarnir hafa ekki aðeins verið hræddir við að lána hver öðrum heldur einnig fyr- irtækjum og einstaklingum. Láns- fjárþurrðin hefur skapað hættu á auknu atvinnuleysi og efnahagslegri niðursveiflu víða í Evrópu. Vélinni snúið í gang Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, sagði að meginmarkmiðið með aðgerðum Evrópuríkjanna væri að snúa vél fjármálamarkaðanna í gang, sannfæra þá um að enginn stór banki yrði gjaldþrota og að tryggt yrði að bankarnir fengju nægilegt fé til að koma lánastarfseminni í eðlilegt horf að nýju. Fjármálasérfræðingar beggja vegna Atlantshafsins fögnuðu að- gerðunum og sögðu að ESB-löndin hefðu loksins tekið á sig rögg í barátt- unni gegn lánsfjárþurrðinni. Stjórn- málaskýrendur sögðu þó að erfitt kynni að vera fyrir leiðtoga landanna að fá þjóðþingin til að samþykkja að- gerðirnar þar sem fjárhagsbyrðin yrði þung, einkum í löndum þar sem niðursveifla er þegar hafin eða vofir yfir. Aðgerðir ESB-landanna líkjast að miklu leyti björgunaráætlun sem stjórn Verkamannaflokksins í Bret- landi hafði boðað. Stjórnin tilkynnti í gær að hún hygðist nota 37 milljarða punda til að þjóðnýta í raun þrjá banka að hluta. Gert er ráð fyrir því að breska ríkið eignist 60% hlut í Royal Bank of Scotland og 40% í Lloyds TSB og HBOS. Stjórnin í Washington býr sig nú undir að fara að dæmi Breta og leggja hlutafé í bandaríska banka. AP Bros Fjárfestar í kauphöllinni í New York fengu loksins ástæðu til að fagna í gær þegar hlutabréfavísitalan Dow Jones hækkaði um rúm 11%. Þýskaland Stjórnin hyggst ábyrgjast millibankalán að and- virði 400 milljarða evra og nota 80 milljarða evra til að kaupa hlutabréf í bönkum. Frakkland Ábyrgist lán að and- virði 320 milljarða evra og leggur 40 milljarða í opinbera stofnun sem á að setja hlutafé í banka. Spánn Ábyrgist millibankalán að andvirði 100 milljarða evra, auk 30 milljarða hlutafjár. Austurríki Allt að 85 milljarðar í ábyrgðir og 15 milljarðar til hlutabréfakaupa. Holland Ábyrgist allt að 200 milljarða evra millibankalán og hefur lofað bönkum 20 milljarða hlutafé. Bretland 50 milljarðar punda til að þjóðnýta banka að hluta og ríkið ábyrgist millibankalán að andvirði 250 milljarða punda. Portúgal Ábyrgist allt að 20 milljarða evra (nær 12% af lands- framleiðslunni). BÖNKUM BJARGAЛ›

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.