Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ 1 9 7 4 5 6 3 2 7 4 3 5 4 1 2 8 6 2 3 7 5 9 9 8 4 3 6 2 7 4 3 8 2 6 1 4 6 1 Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Sudoku 7 2 6 5 8 7 9 1 7 3 3 6 9 6 7 2 9 4 3 5 7 2 9 3 4 2 4 8 6 9 3 6 dagbók Í dag er þriðjudagur 14. október, 288. dagur ársins 2008 En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.) Það var skemmtilegt og tímabærtframtak hjá íþróttaarmi Stöðvar 2 að ráðast í gerð þátta um tíu bestu knattspyrnumenn Íslandssögunnar í sumar. Þættirnir voru vel unnir í alla staði og hafa ótvírætt heimildagildi. Fróðlegt var að fylgjast með köpp- unum fara yfir eigin feril og ekki síð- ur að fylgjast með þeim í eldlínunni. Ljóst er að hverri steinvölu hefur verið snúið við til að gera myndefnið sem kræsilegast. Í kvöld slær Stöð 2 sport botninn í syrpuna með því að efna til samsætis þar sem gert verður heyrinkunnugt hver hlýtur nafnbótina „besti knatt- spyrnumaður Íslandssögunnar“. Víkverja skilst að búið sé að stefna tí- menningunum saman, að und- anskildum Alberti Guðmundssyni sem fallinn er frá. Þar fara vænt- anlega ein eða tvær myndavélar á loft! Eflaust eru deildar meiningar um það hver hreppa eigi hnossið en Víkverji veðjar á að það verði Ásgeir Sigurvinsson. x x x Víkverji ákvað að gefa kreppunnilangt nef um helgina og fara með fjölskylduna í bíó. Raunar var það frúin sem tók af skarið. Vildi endilega rifja upp gömul kynni af hjartaknúsaranum Richard Gere sem birtist nú landanum í enn einni ástarsögunni. Börnin tóku raunar þá upplýstu ákvörðun að harðneita að fara á þá mynd og voru því send í sal- inn við hliðina, á Leyndardóma Snæ- fellsjökuls. Báru þau þeirri mynd vel söguna. Enginn má sköpum renna, hugsaði hins vegar Víkverji, dró djúpt að sér andann og lét sig gossa á Gere. Nights in Rodanthe heitir ræman og ætli sé ekki best að gefa henni þá ein- kunn að myndatakan hafi verið góð. Víkverji er langt genginn í fertugt en var eigi að síður með allra yngstu mönnum í salnum. Ætli meðalald- urinn hafi ekki verið um sextíu ár. Það er líklega tímanna tákn að börn Víkverja, sem eru um og undir ferm- ingu, höfðu aldrei heyrt Richard Gere nefndan. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 stuttir dagar, 8 settu saman, 9 ytri flík, 10 ber, 11 glitra, 13 hinn, 15 lundar, 18 lítið eitt ölvuð, 21 grænmeti, 22 hegra, 23 búvara, 24 afbrotamaður. Lóðrétt | 2 brosir, 3 japla, 4 myrkur, 5 óþétt, 6 mynnum, 7 skordýr, 12 gutl, 14 þegar, 15 poka, 16 skyldmennin, 17 fisk- ur, 18 ferma, 19 voru í vafa, 20 ala. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kjass, 4 suddi, 7 mæðir, 8 öfgar, 9 gúl, 11 nært, 13 brár, 14 umsjá, 15 þung, 17 ljón, 20 und, 22 kofan, 23 rollu, 24 totta, 25 skans. Lóðrétt: 1 kímin, 2 arður, 3 sorg, 4 spöl, 5 dugir, 6 iðrar, 10 únsan, 12 tug, 13 bál, 15 þekkt, 16 nefnt, 18 julla, 19 nauts, 20 unna, 21 drós. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. Rf3 c6 5. e3 Rbd7 6. b3 Bd6 7. Bb2 0-0 8. Be2 De7 9. 0-0 dxc4 10. bxc4 e5 11. Dc2 He8 12. Rg5 exd4 13. exd4 Rf8 14. Hae1 Rg6 15. Rf3 Dc7 16. c5 Bf4 17. Bd1 Be6 18. g3 Bh6 19. Re5 Bh3 20. f4 Bxf1 21. Hxf1 Re7 22. Bf3 Had8 23. Re2 g6 24. Db3 Rfd5 25. g4 Bg7 26. Rc3 f6 27. Rc4 Kh8 28. Re4 Rxf4 29. Rcd6 Red5 30. Rxe8 Hxe8 31. Bc1 f5 32. gxf5 Bxd4+ 33. Kh1 gxf5 34. Rd6 Hf8 35. He1 Dg7 36. Dc4 Hg8 Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands- móts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla. Stórmeistarinn Yuriy Kuzubov (2.622) frá Úkraínu hafði hvítt gegn danska alþjóðlega meistaranum Esben Lund (2.425). 37. Rf7+! Dxf7 38. Dxd4+ Df6 39. Dxf6+ og svartur gafst enda yrði hann manni undir eftir 39. … Rxf6 40. Bxf4. Kuzubov tefldi fyr- ir Bolvíkinga en Lund fyrir lið Hauka. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Gott spil. Norður ♠K1076 ♥– ♦D10852 ♣Á743 Vestur Austur ♠4 ♠G9852 ♥KG9653 ♥ÁD74 ♦764 ♦K3 ♣D52 ♣G6 Suður ♠ÁD3 ♥1082 ♦ÁG9 ♣K1098 Suður spilar 6♦. Það er til siðs meðal bridsblaða- manna að svífa á nýkrýnda sigurveg- ara og krefja þá um „gott spil“ – svona rétt til að sýna að þeir eigi sigurinn skilinn. Norski heimsmeistarinn í ein- menningi, Tor Helness, var ánægður með spilið að ofan. Eftir gandopnun og 2♦ tígla svar við Stayman, endaði hann sem sagnhafi í næfurþunnri tígul- slemmu. Vestur kom út með ♠4, sem Helness túlkaði sem líklegt einspil og ákvað að gera út á öfugan blindan – trompa hjarta þrisvar í borði. Hann tók á ♠Á, stakk hjarta og spilaði tígli á níuna. Trompaði annað hjarta og spil- aði síðan laufi á tíuna heima. Vestur tók á ♣D og trompaði út, en Helness hafði stjórn á öllu. Hann trompaði þriðja hjartað með síðasta trompi blinds, fór heim á ♣K, lagði niður ♦G og henti spaða úr borði. Tólf slagir. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Hugfar þitt hefur þróast og núna ertu meistari sömu aðstæðna og þú varst áður fórnarlamb. Þú hefur sjálfstraust. Vatnsberi og fiskur eru hentugir félagar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert alltaf jafn ábyrgur en getur ekki sagt það sama um fólkið sem þú þarft að eiga við. Ef þú býst ekki við að fólk standi við gefin loforð ertu jafn und- irbúinn og aðrir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Sveigjanleiki hugans er einn af þínum styrkleikum. Þú lætur ekki stjórn- ast af áliti annarra. Ef þeir hugsa öðruvísi en þú eru þeir skemmtilegri fyrir vikið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Gefðu samböndum þýðingu. Ef þú veist hvað gerist næst missirðu áhugann. Þú ert jafnvel til í að fórna rútínunni ljúfu fyrir óvæntar uppákomur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þótt eki sé hægt eð leggja virði þitt og þeirra peninga sem þú átt að jöfnu er erfitt fyrir þig að brosa þegar fjármálin eru óstöðug. Gerðu skurk í peningamál- unum svo þú getir brosað á ný. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert það sem þú hugsar. Hugs- aðu um hversu frábær þú sért. Prófaðu þessa æfingu: Andaðu inn á „Ég er frá- bær“ og andaðu út einhverju andstæðu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Allt sem þú snertir fær græna ljósið. Þú átt auðvelt með að skapa þér það líf sem þú óskar þér. Þú ímyndar þér hvað þarf að gerast og lætur það gerast. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Hefðir sem höfðu enga þýð- ingu fyrir þig skipta máli núna. Þú gerir þér grein fyrir að þú nærð betri tengingu við ástvinina í gegnum sameiginlega siði. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Verkið sem þú tókst að þér er að breytast í eitthvað annað. Nýr og ófyr- irséður þrýstingur vofir yfir. Það rætist ekki úr honum nema þú gefir undan. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú reynist vera fjölhæfari en þig óraði fyrir. Þú ert sannur þús- undaþjalasmiður sem hefur endurnær- andi áhrif á fjölda fólks umhverfis þig. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ástvinir þínir hafa sínar hug- myndir um hvað þú eigir að vera að gera. Þótt þeir vilji ósköp vel ertu einn um að vita að hverju þú átt að einbeita þér. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Umburðarlyndi er mikilvægt núna – sérstaklega persónulega hliðin. Vertu góður nágranni, líka þegar þú ert að flýta þér. Bros er mikilvægt framlag. Stjörnuspá Holiday Mathis 14. október 1863 Fjórir Þingeyingar komu til Rio de Janeiro eftir þriggja mánaða ferð frá Akureyri, með viðkomu í Danmörku. Þetta var upphaf ferða til Brasilíu en þær urðu und- anfari fólksflutninga til Kan- ada og Bandaríkjanna um og upp úr 1870. 14. október 1939 Laxárvirkjun, rafstöð Ak- ureyrar við Laxárfossa í Þing- eyjarsýslu, tók til starfa. Hún var 2000 hestöfl og fengu Ak- ureyringar þá „nóg rafmagn til ljósa, suðu og iðnaðar,“ að sögn Þjóðviljans. 14. október 1952 Sameinuðu þjóðunum var af- hentur fundarhamar frá rík- isstjórn Íslands, til að nota á allsherjarþinginu. Hamarinn var verk Ásmundar Sveins- sonar og á hann var letrað á íslensku og latínu: „Með lög- um skal land byggja.“ 14. október 1961 Aldarafmælis Bjarna Þor- steinssonar tónskálds og prests (f. 1861, d. 1938) var minnst með hátíðahöldum á Siglufirði. Bjarni er eink- um þekktur fyrir söfnun og út- gáfu íslenskra þjóðlaga. 14. október 1964 Rafreiknir Háskólans kom til landsins. Hann var með „40 þúsund stafanúmer“ og þótti afkastamikill. Nokkrum dög- um áður höfðu Skýrsluvélar fengið mun minni tölvu. Þá sagði í Vísi: „Fyrsti rafheilinn kominn. Vinnur verk hundr- aða skrifstofumanna.“ Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Rósa Geir- þrúður Halldórs- dóttir, Rjúpufelli 31, er áttræð dag, 14. október. Hún verður að heiman. 80 ára „ÉG vonast til þess að drengirnir hér á heimilinu, þ.e. eiginmaðurinn og unglingssynirnir tveir, færi mér morgunverð í rúmið um sjöleytið,“ segir Stein- unn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á upp- lýsingasviði Biskupsstofu, þegar hún er spurð hvernig hún haldi upp á daginn. Að sögn Steinunnar Arnþrúðar hefur sú skemmtilega hefð skapast á heimilinu að afmæl- isbarn dagsins er vakið í morgunsárið með ljúfum afmælissöng, auk þess sem viðkomandi fær kaffi og kökubita í rúmið. Tekur hún fram að það sé alltaf góð byrjun á deginum, ekki síst þegar afmæli beri upp um helgi því mun meira verði úr deginum þegar vaknað sé í bítið. „Svo er aldrei að vita nema kvöldmaturinn verði með sparilegra móti, því maðurinn minn á afmæli nk. laugardag en verður að öllum líkindum staddur erlendis í vinnuferð þá,“ segir Steinunn Arnþrúður, en maður hennar er Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri alþjóðasviðs RKÍ Spurð um eftirminnilegustu afmælin nefnir Steinunn Arnþrúður strax fertugsafmælið, sem eiginmaður hennar sá um að skipuleggja, sem og óvænta afmælisveislu sem vinir hennar stóðu fyrir þegar hún varð 33 ára, en þá bjuggu þau hjónin í Kasakstan. „Ég hætti að halda upp á afmælið mitt þegar ég komst á fullorðinsár af því að mér fannst svo vitlaust að sá sem ætti afmæli þyrfti að gera allt. Hann ætti bara að njóta dagsins.“ silja@mbl.is Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir 45 ára Vakin með morgunsöng Nýirborgarar Reykjavík Henrik Hugi fæddist 15. maí kl. 12.55. Hann vó 4.110 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Alma Dröfn Geirdal og Helgi Pjetur Jóhannsson. Reykjavík Askur Már fæddist 4. október kl. 17. Hann vó 4.930 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Hólmfríður Kristjánsdóttir og Brynj- ar Björgvinsson. Reykjavík Karitas fædd- ist 10. september. Hún vó 4.300 g, 17 merkur, og var 52 sm löng. Foreldrar hennar eru Jón Hafsteinn Guðmundsson og Guðný Einarsdóttir. 7 9 4 1 2 1 6 3 7 3 4 9 8 9 1 2 4 7 4 1 5 9 7 4 3 5 6 5 8 5 1 3 7 4 6 1 8 9 5 2 8 6 9 2 5 3 1 4 7 1 5 2 4 7 9 3 6 8 4 3 6 7 2 5 8 1 9 7 8 1 9 6 4 5 2 3 2 9 5 8 3 1 6 7 4 5 2 7 3 8 6 4 9 1 9 1 8 5 4 2 7 3 6 6 4 3 1 9 7 2 8 5 Frumstig Miðstig Efstastig 5 8 7 9 3 6 1 2 4 6 4 1 8 7 2 3 5 9 9 2 3 5 4 1 7 8 6 8 1 6 4 5 9 2 7 3 4 3 9 1 2 7 8 6 5 7 5 2 3 6 8 4 9 1 2 7 5 6 1 3 9 4 8 3 9 4 2 8 5 6 1 7 1 6 8 7 9 4 5 3 2 9 3 8 6 1 5 7 2 4 1 6 2 4 7 9 3 5 8 4 7 5 3 2 8 6 1 9 5 4 3 9 6 2 1 8 7 7 1 6 8 4 3 5 9 2 2 8 9 1 5 7 4 6 3 3 2 7 5 9 6 8 4 1 6 9 4 7 8 1 2 3 5 8 5 1 2 3 4 9 7 6 Lausn síðustu Sudoki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.