Morgunblaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigurður Sveins-son fæddist í
Reykjavík 5. júní
1949. Hann varð
bráðkvaddur að
kvöldi mánudagsins
6. október síðastlið-
ins. Foreldrar hans
voru Sigríður Elías-
dóttir, f. 4.8. 1907, d.
10.6. 1971, og
Sveinn Sigurðsson,
f. 29.4. 1904, d. 6.10.
1990. Systkini Sig-
urðar eru Þórir
Sveinsson, f. 19.3.
1939, d. 18.2. 1943, Elías Sveins-
son, f. 22.2. 1942, d. 27.3. 1942, Elín
Sveinsdóttir, f. 15.7. 1943, og Þóra
Sveinsdóttir, f. 5.12. 1944.
Eiginkona Sigurðar er Gróa
Friðjónsdóttir fótaaðgerðafræð-
ingur, f. í Kópavogi 19.8. 1965. Þau
giftu sig 10.8. 1996. Foreldrar
hennar eru Fanney Tryggvadóttir,
f. 1.10. 1925, og Friðjón Þór-
arinsson, f. 10.11. 1925, d. 27.1.
1975.
Tinna Brá, f. 13.7. 1990, unnusti
hennar er Eyþór Snorrason, f.
24.8. 1988.
Sigurður bjó í Reykjavík mest-
allt sitt líf. Hann lauk námi í tré-
smíði frá Iðnskólanum í Reykjavík
18.7. 1972 og starfaði fyrst eftir
það við trésmíðar. Þann 1.4. 1974
hóf hann störf hjá Strætisvögunum
Reykjavíkur sem vagnstjóri, varð-
stjóri í afleysingum og síðast sem
birgðavörður. Meðfram starfi þar
sinnti hann trésmíði og síðar
gluggaþvotti um árabil. Árin 1998-
2001 bjuggu þau Gróa í Kristians-
and í Noregi og starfaði hann þá
sem vagnstjóri hjá Bussen As., en
Gróa stundaði nám í fótaaðgerða-
fræði.
Á yngri árum tók Sigurður virk-
an þátt í starfi Björgunarsveit-
arinnar Ingólfs. Hann söng með
Strætókórnum frá árinu 1980.
Söngur var hans yndi og í kórnum
átti hann marga góða vini. Með
kórnum söng hann víða um land,
m.a. við margar jarðarfarir, og fór
í mörg kórferðalög til Norð-
urlanda.
Útför Sigurðar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Fyrri kona Sig-
urðar er Erna Björk
Antonsdóttir, f. 30.11.
1950. Börn þeirra eru:
1) Anton, f. 19.1. 1974,
kvæntur Valnýju Ótt-
arsdóttur, f. 10.3.
1975. Börn þeirra eru
Birta Mjöll, f. 8.12.
1999, og Óttar, f. 10.3.
2002. 2) Anna Hulda,
f. 13.6. 1976, sambýlis-
maður hennar er
Reynir Grétarsson, f.
29.12. 1972. Dóttir
Reynis er Hildur Ösp,
f. 18.9. 1994, dóttir Önnu Huldu er
Salma Björk Haraldsdóttir, f. 8. 2.
1999, sonur Önnu Huldu og Reynis
er Grétar Víðir, f. 7.6. 2001.
Sonur Gróu er Friðjón Þór Gróu-
son, f. 4.5. 1988. Sigurður gekk
honum í föðurstað. Sambýliskona
Friðjóns er Hólmfríður Jóna Guð-
mundsdóttir, f. 24.3. 1988. Dóttir
þeirra er Emilía Ýr, f. 25.11. 2007.
Dóttir Sigurðar og Önnu Guð-
rúnar Ísleifsdóttur, f. 3.6. 1955, er
Elsku besti Siggi afi, þú varst svo
skemmtilegur og góður afi og okkur
þykir rosalega leiðinlegt að þú þurftir
að fara. Hildi fannst ótrúlega leiðin-
legt að hafa séð þig svona sjaldan. Við
vildum öll að við hefðum getað kvatt
þig áður en þú færir. Ef við myndum
hafa einn dag til að kveðja þig þá
gætum við tekið strætó út um allan
bæ, farið í bíó, sungið „ég kann lag
sem gerir mann brjálaðan“ og
skemmt okkur mjög vel. Við söknum
þín öll alveg rosalega mikið.
Við skulum passa Önnu/mömmu
alveg rosalega vel fyrir þig. Það var
svo erfitt að þú þurftir að kveðja okk-
ur svona hratt en við vitum að þér líð-
ur vel núna. Við fengum lús öll hérna
heima og allir aðrir fjölskyldunni eru
að gá hvort þeir séu líka með lús, því
við vorum öll að knúsast svo mikið.
Við munum eftir því þegar við fórum
öll saman til Lanzarote, það var svo
gaman og við vildum að við gætum
gert það aftur. Það var líka gaman
þegar við fórum saman til Disney
World. Manstu þegar í Flórída og
þegar það var svo kalt á morgnana að
það var frost á sólbekkjunum. Grétar
hugsar mikið um þig og er að finna
lausnir á mannslíkamanum, hann
sagði að við gætum notað líffæragjöf
til að bjarga þér. Gróa er leiðust af
öllum og saknar þín meir en allt, við
reynum eins og við getum að hugga
hana. Þegar Emilía verður orðin
stærri þá skulum við vera duglegar
að segja henni frá þér. Það er rosa-
lega erfitt að hugsa að við fáum ekki
að sjá þig aftur eða skemmta okkur
með þér en við verðum bara að vera
sterkar og muna hvað þú varst frá-
bær. Við verðum líka að vera þakk-
látar fyrir alla tímana sem við áttum
saman. Við skulum reyna að hugga
alla og láta öllum líða eins vel og við
getum. Takk fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir okkur og með okkur. Takk
fyrir alla tímana sem við áttum sam-
an.
Við elskum þig voðalega mikið og
munum hugsa fallega til þín. Þínar
Salma Björk og Hildur Ösp.
Siggi, litli bróðir minn, er dáinn.
Kallið kom fyrirvaralaust að kvöldi 6.
október, sama dag og pabbi okkar dó
fyrir 18 árum. Siggi var að koma úr
jarðarför þennan dag, skrapp í rækt-
ina, upplagður eins og venjulega, og
ætlaði síðan að sækja Gróu sína í
vinnuna.
Á bernskuheimili okkar systkina í
Bakkagerði 8 ríkti mikil ástúð og um-
hyggja. Okkur systrunum fannst
hann oft á tíðum fá stærri skammta
en við af eftirlæti, því hann var yngst-
ur og eini strákurinn. Við elduðum
stundum grátt silfur eins og gerist og
gengur, en oftar en ekki vorum við
miklir vinir.
Ég kunni ekki orð í dönsku þegar
ég var farin að lesa fyrir hann Andr-
ésar Andar-blöðin sem þá voru að-
eins fáanleg á dönsku. Þá var skáld-
aður texti eftir myndunum jafnóðum.
Svo vandaðist málið þegar lesa átti í
annað sinn. Þá fipaðist þýðandanum
stundum og var leiðréttur af miklu
umburðarlyndi.
Við stunduðum bókasafnið og
skiptumst á bókum og stálumst til að
lesa þær hálfu næturnar, þegar við
áttum að vera sofnuð. Í einni skáld-
sögunni, sem gerðist í Ameríku, sem
var draumalandið okkar þá, ávarpaði
söguhetjan systur sína með orðunum
„hi dear“. Það fannst okkur mjög
flott. Siggi tók það upp og notaði það
alltaf þegar hann heilsaði mér. Sonur
hans spurði einu sinni mömmu sína:
„Af hverju segir pabbi alltaf „hi dear“
þegar Þóra systir hringir?“
Fjölskyldan var Sigga allt. Gróa
konan hans var líf hans og yndi. Þar
hafði hann fundið sér sálufélaga. Þau
voru einstaklega samrýmd og engum
gat dulist hvað þau voru ástfangin og
hamingjusöm. Þau bjuggu nokkur ár
í Noregi og heimsóttum við þau
þangað. Þau gerðu okkur ferðina
ógleymanlega og óku með okkur vítt
og breitt og sýndu okkur það sem þau
höfðu kynnst í Noregi.
Siggi var smiður að mennt en vann
hjá SVR alla tíð. Hann var vel liðinn,
nákvæmur og áreiðanlegur. Hann
söng með strætókórnum og naut þess
að vera í hópi félaga sinna og taka
lagið. Siggi var alltaf fyrstur á vett-
vang þegar eitthvað bjátaði á hjá
okkur, samhryggðist og samgladdist,
laus við öfund, mættur til að hjálpa.
Hann var fríður og vel byggður, létt-
ur á fæti og léttur í lund og hann hafði
alltaf eitthvað gott til málanna að
leggja.
Í dag veit ég að enginn mun segja
„hi dear“ þegar ég svara í símann. Ég
veit að það verður tómlegt á verk-
stæðinu hjá Davíð þar sem Siggi
kemur ekki oftar til að fá kaffi, ræða
málin og dytta að bílnum. Ég veit að
fjölskylda hans spyr ótal spurninga
sem ekki er hægt að svara. Ég veit að
hann lifir áfram í hjörtum okkar og
mun aldrei fara þaðan. Þar inni mun
ég alltaf heyra „hi dear“.
Elsku Gróa og börn. Við Davíð
sendum ykkur innilegustu samúðar-
kveðjur. Ég veit að þið munuð
styrkja hvort annað. Takk fyrir að
veita bróður mínum þá hamingju og
gleði sem hann átti skilið.
Þóra systir.
Siggi er dáinn. Mikill harmur er
kveðinn að Gróu systur minni, syni
hennar Friðjóni Þór og börnum
Sigga, þeim Tona, Önnu Huldu og
Tinnu og fjölskyldum þeirra. Siggi og
Gróa voru samhent hjón sem elskuðu
og studdu hvort annað. Brúðkaups-
dagurinn þeirra fyrir 12 árum síðan
var mikill hamingjudagur og hefur
lífsganga þeirra saman verið til vitnis
um hverju ástin fær áorkað.
Strax eftir að þau kynntust varð
mér ljóst að Siggi var öndvegisdreng-
ur. Hann lagði öllum gott til og gerði
sér far um að liðsinna öllum sem til
hans leituðu. Skaplyndi hans var ein-
stakt og nálgaðist hann menn og mál-
efni ætíð á jákvæðan hátt. Það var
gott að ræða við hann um hlutina sem
standa manni næst, fjölskylduna,
vinnuna. Sagði hann mér nokkrum
dögum fyrir andlátið að hann væri
ánægður með breytingar á sínum
högum á vinnustaðnum. Siggi helgaði
Strætó starfskrafta sína í meira en
þrjátíu ár. Var hann vel liðinn af sam-
starfsmönnum og sinnti ýmsum
störfum þar af alúð og trúmennsku
og naut til þess fulls trausts.
Systir mín saknar ástvinar. Megi
stuðningur fjölskyldu hennar og vina
lina þjáningar hennar. Er hugur okk-
ar Kristbjargar og dætra okkar,
Soffíu Theódóru og Fanneyjar
Bjarkar og unnusta þeirra hjá henni
og ástvinum öllum.
Tryggvi Friðjónsson.
Ég gladdist mjög í hjarta mínu
þegar Gróa systir mín kynntist hon-
um Sigga. Bæði stóðu þau á kross-
götum í lífi sínu eftir að hafa gengið í
gegnum erfiða tíma. Saman fundu
þau styrk og gleði til að takast á við
lífið. Allt síðan þá hafa þau verið óað-
skiljanleg og samhent í þeim verk-
efnum sem lífið færði þeim. Siggi var
allnokkrum árum eldri, en þess sá
aldrei stað, fas hans, útlit og viðmót
bar þess alltaf merki að þar færi mað-
ur sem var ungur í anda og hraustur
á líkama. Ekki síst þess vegna er
ótímabært fráfall hans svo þungbært
og óskiljanlegt. Þessi hógværi maður
skilur eftir sig stórt skarð í hópi fjöl-
skyldu og vina. Það skarð fær ekki
annað fyllt en minningin um einstak-
lega góðan dreng.
Mér er ofarlega í huga, þegar ég
hugleiði kynni okkar Sigga, hve góð
áhrif hann hafði á umhverfi sitt.
Hann hafði heilbrigt viðhorf til lífsins
og annars fólks, var fljótur að sjá hið
jákvæða í öllum aðstæðum. Hvers-
dagslegustu atvik gátu gefið honum
tilefni til gamansemi og góðlátlegrar
stríðni.
Siggi var bóngóður með afbrigðum
og ávallt reiðubúinn að rétta hjálp-
arhönd þar sem hennar var þörf.
Þess nutum við og aðrir. Hann vann
mestan hluta starfsævi sinnar hjá
Strætó sem vagnstjóri, en greip í
önnur störf eftir þörfum. Dugnaður
og ósérhlífni einkenndi hann, en með
starfi sínu hjá Strætó vann hann
einnig lengi við smíðar og síðan við
gluggaþvott.
Sigurður Sveinsson
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma,
VÍVÍANN MARY JÓNSSON GJÖVERAA,
Jötunsölum 2,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 7. október á Landspítalanum
Fossvogi.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 15. október kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erik Vilhelm Gjöveraa,
Geir Gjöveraa.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
REYNIR GUNNARSSON
bóndi,
Leirulækjarseli,
Álftaneshreppi,
sem lést fimmtudaginn 9. október, verður
jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn
18. október kl. 14.00.
Edda Björk Hauksdóttir,
Erla Reynisdóttir,
Íris Reynisdóttir,
Þröstur Reynisson, Sylvía Ósk Rodriguez,
Sindri Freyr Daníelsson og Kristófer Reynir Erluson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁGÚSTA KRISTÍN ÞORVALDSDÓTTIR,
Hraunbæ 40,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 12. október.
Ólína Þ. Sigurðardóttir, Friðrik Kristjánsson,
Ástþór Sigurðsson, Helga Oddsdóttir,
Ómar F. Sigurðsson, Elínbjörg Valdórsdóttir,
Geir Sigurðsson, Berglind Elfarsdóttir,
Einar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
HÖGNI GUÐJÓNSSON,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum föstudaginn 10. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Benidiktsdóttir.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
✝
HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Ystafelli
í Kinn,
lést á Landspítalanum laugardaginn 11. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristján Árnason, Arna Emilia Vigfúsdóttir,
Jón Árnason, Sigríður Traustadóttir,
Sigríður Árnadóttir, Kristján Pétur Guðnason,
Knútur Árnason,
Valgerður Árnadóttir Durao, Manuel Durao,
barnabörn og barnabarnabörn.