Morgunblaðið - 10.11.2008, Page 37
Quantum of Solace, nýjasta myndin um njósn-
arann James Bond, er komin í íslensk kvikmynda-
hús. Þetta er 22. kvikmyndin um kappann, sem
birtist áhorfendum nú alvöru-
gefnari og miskunnarlausari
en oft áður og grínið sem
hefur verið grunnt á í sum-
um fyrri myndanna er nú
víðsfjarri.
Gunnhildur
Finnsdóttir
fékk nokkra
vel valda sér-
fræðinga til
þess að segja
sína skoðun á
njósnara hennar
hátignar.
Dauðans
alvara
Glamúr og
glæsileiki
Úlfhildur Dagsdóttir
bókmenntafræðingur
Af hverju hafa Bond-myndirnar ver-
ið svona vinsælar?
„Bond-myndirnar bjóða upp á
blöndu af gamaldags æv-
intýrasögu með
dágóðum
skammti af
glamúr og
glæsileika í
bland við nýj-
ustu tækni og
vísindi sem eru
sniðuglega not-
uð. Auk þess
eru bestu Bond-
arnir flottir guttar sem fara
reglulega úr fötunum.“
Hvernig lýsa þær heiminum?
„Eins og ég sagði áðan þá er
ákveðinn ævintýrablær yfir Bond-
myndunum sem er órjúfanlegur
hluti af fortíðarþrá og þar sem
um breskar myndir er að ræða,
þá bera myndirnar nokkurn keim
af heimsveldissýn Breta; heim-
urinn er leikvöllur hins enska
herramanns og því framandlegra
sem sögusviðið er því betra.“
Hvernig finnst þér samskipti
kynjanna sett fram í þeim?
„Eitt helsta einkenni Bond-
myndanna hefur alltaf verið
sterkt kvenhatur með tilheyrandi
áherslu á það sem kallað er hefð-
bundin kynjahlutverk. Að þessu
leyti er Bond kannski aðeins ýkt-
ari en ýmislegt annað afþreying-
arefni, auglýsingar, fjölmiðlar og
leiðbeiningabæklingar af ýmsu
tagi, að ekki sé minnst á bók-
menntir, sem að miklu leyti varpa
fram karllegri sýn á samskipti
kynjanna. Það sem gerir Bond
hinsvegar sérstaklega skemmti-
legan í þessu samhengi er hversu
mikil kvenfóbía einkennir mynd-
irnar, sem kemur fram í næsta
linnulausu „vagínu dentötu“
myndmáli (sbr. krókódílar og há-
karlar og álíka tenntar kvenlegar
skepnur og vélar sem ógna Bond
stöðugt) og hverfist því yfir í að
vera fyndið frekar en þrúgandi.“
Hvernig Bond-mynd myndir þú
gera?
„Líklega einhverja sem væri
tiltölulega mikið alveg eins og
fyrri Bond-myndir og svo auðvit-
að allt öðruvísi.“
Metacritic: 67/100
IMDb: 7,4/10
Empire: 80/100
Variety: 60/100
Séntilmaður
fram í fingurgóma
Guðlaug Ólafsdóttir leikkona
Af hverju hafa Bond-myndirnar verið
svona vinsælar?
„James Bond er rómantísk of-
urhetja sem
heillar bæði kon-
ur og karla.
Konur falla fyrir
honum af því að
hann er alltaf
hryllilega sætur,
orðheppinn og
svo er hann
séntilmaður
fram í fing-
urgóma. Karlar öfunda hann af
ævintýralegum slagsmálum og
skotbardögum, græjunum og ekki
síst Bond-stúlkunum. Svo er þess
gætt að óvinurinn í hverri mynd
sé alltaf á einhvern hátt í takt við
tíðarandann.“
Hvernig lýsa þær heiminum?
„Svipað og Tinna-bækurnar
gera. Allt staðlaðar erkitýpur.“
Hvernig finnst þér samskipti
kynjanna sett fram í þeim?
„Kvenímyndir í ævintýrum eru
gjarnan einsleitar. Konurnar reyn-
ast Bond misóþægur ljár í þúfu en
eins og í öllum góðum ævintýrum
enda þær uppi í með honum. Þó er
innkoma M í nýjustu myndunum
til marks um breytta tíma.“
Hvernig Bond-mynd myndir þú
gera?
„Ég myndi gera myndina Nort-
hern Lightstorm þar sem Bond
tekur að sér að uppræta skelfileg-
an glæpahring sem makkar í
skjóli íslensku ríkisstjórnarinnar
og stefnir að því að knésetja hag-
kerfi heimsins. Svo myndi ég
bjóða Gordon Brown og Alistair
Darling á frumsýninguna.“
Af hverju hafa Bond-myndirnar ver-
ið svona vinsælar?
„Satt best að segja hef ég ekki
hugmynd um það. Sjálfur er ég
með lítið þol fyr-
ir Bond-
formúlunni og
hef ekki nennt
að horfa á Bond-
mynd í langan
tíma. Byggjast
vinsældirnar
ekki bara á því
að áhorfandinn
getur nokkurn
veginn gengið að því vísu hvað
hann mun sjá? Ef þú fílar eina
Bond mynd, þá fílarðu þær allar
(og öfugt).“
Hvernig lýsa þær heiminum?
„Er þetta ekki allt voða mikið
Við (hinn siðmenntaði, vestræni,
enskumælandi heimur) á móti
Þeim (allir hinir)? Bond er sjálfs-
dýrkunarspegilmynd heimalands-
ins og allir aðrir samansull af
staðaltýpum ólíkra landa.“
Hvernig finnst þér samskipti
kynjanna sett fram í þeim?
„Bond-stelpurnar eru aðalkven-
hlutverk seríunnar og þar er stöð-
ugt skipt um leikkonur (fyr-
irsætur), sem eiga það allar
sameiginlegt að vera flottar kyn-
verur – það virðist í raun vera
megintilgangur þeirra, enda
Ef þú fílar
eina þá fílarðu allar
Bond-myndirnar karlaveldi út í
gegn. Konurnar eru víxlanlegar,
hver sem er getur komið í stað
þeirrar á undan, á meðan Bond er
staðfastur – þótt skipt sé um leik-
ara á áratugar fresti er persónan
alltaf sú sama. Er boðskapurinn
þá ekki augljós?“
Hvernig Bond-mynd myndir þú
gera?
„Ég myndi gera gamaldags
hefndarmynd. Bond er að hætta í
þjónustu hennar hátignar því
hann er orðinn ástfanginn fjöl-
skyldufaðir sem þráir ekkert heit-
ar en að setjast í helgan stein. Þar
sem leyniþjónustan vill ekki missa
besta útsendarann sinn lætur hún
myrða fjölskyldu hans í laumi og
kennir glæpasamtökum um ódæð-
ið. Bond dregst aftur inn í þjón-
ustuna og upprætir samtökin sem
hann telur bera ábyrgð á dauða
fjölskyldu sinnar, en kemst í leið-
inni að sannleikanum um svikin.
Hann lætur sem ekkert sé og tek-
ur langan tíma til hefndar. Á dul-
arfullan hátt deyr hver félagi
hans á fætur öðrum í sendiförum
og smátt og smátt myrðir Bond
alla sem vinna fyrir leyniþjón-
ustuna. Í hádramatísku lokaatriði
myrðir hann Q og M og alla nán-
ustu yfirmenn sína á tryllings-
legan hátt og fremur síðan sjálfs-
morð.“
Gunnar Theodór Eggertsson kvikmyndafræðingur
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ STEVEN SPIELBERG
MEÐ SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
ZACH EFFRON OG VANESSA HUDGENS
GERA ALLT VITLAUST Í HIGH SCHOOL MUSICAL 3!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
FYRSTATEIKNIMYNDIN SEM ER FRAMLEIDD MEÐ ÞRÍVÍDD Í HUGA!
ATH.
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKUT
ALI
ÓTRÚLEG UPPLIFUN,
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á AKUREYRI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 LEYFÐ
BANGKOK DANGEROUS kl. 8 B.i. 16 ára
JAMES BOND: QUANTUM OF... kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
MY BEST FRIEND´S GIRL kl. 8 B.i. 12 ára
EAGLE EYE kl. 10:20 B.i. 12 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Á SELOSSI
Brjálæðislega fyndin
mynd í anda
American Pie!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
JAMES BOND: QUANTUM OF... kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
THE HOUSE BUNNY kl. 8 LEYFÐ
MAX PAYNE kl.10:10 B.i. 16 ára
Af hverju hafa Bond-myndirnar verið
svona vinsælar?
„Hann styðst við sígilda formúlu: Elt-
ingaleik, tæknibrellur, baráttu góðs og
ills. Hann er afsprengi viðtekinnar
venju og ögrar ekki lífi fólks.“
Hvernig lýsa þær heiminum?
„Myndabálkurinn lýsir draumi Breta
um heimsyfirráð. Hann er þrá eftir
virðingu og viðurkenningu á að vera
bestur og mestur. Skilaboðin eru: Við
erum nafli alheimsins og þið eruð smá-
stirni.“
Hvernig finnst þér samskipti kynjanna sett fram í þeim?
„James Bond er glaumgosi og Bond-stúlkurnar svokölluðu eru gálur.
Hann er fyrirmynd annarra glaumgosa: stendur í miðjunni umkringdur
fáklæddum konum. James Bond er karlinn sem ræður sér sjálfur en er
ævinlega reiðubúinn til að fórna sér fyrir föðurlandið. Konur eru viðföng.
Samskiptin eru með öðrum orðum úrelt.“
Hvernig Bond-mynd myndir þú gera?
„Segjum að ég fengi það verkefni að skrifa handritið að næstu Bond-
mynd þá yrði því handriti örugglega hafnað. Ég myndi láta Bond vera
dökkan (eins og Barack Obama), þá yrði hann sennilega samkynhneigður
og hræddur við kóngulær eins og Bond var í Dr. No.“
Bretland nafli alheimsins
Gunnar Hersveinn heimspekingur