Morgunblaðið - 12.11.2008, Page 2

Morgunblaðið - 12.11.2008, Page 2
FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is EMBÆTTI skattrannsóknarstjóra framkvæmdi í gær húsleit í höfuð- stöðvum Stoða, sem áður hétu FL Group, vegna rökstudds gruns um skattalagabrot. Heimildir Morgun- blaðsins herma að um tugur manna á vegum embættisins hafi farið inn á skrifstofu félagsins og tekið afrit af skjölum og tölvugögnum. Um er að ræða bókhaldsgögn frá árunum 2005 til 2007. Aðgerðin stóð yfir í nokkrar klukkustundir. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa aðgerðir skattrann- sóknarstjóra átt sér um hálfs árs að- draganda eða frá því að FL Group skilaði ársreikningi fyrir árið 2007. Síðan þá hefur Skattstjórinn í Reykjavík, að undirlagi embættis skattrannsóknarstjóra, kallað eftir gögnum frá félaginu. Búið var að senda félaginu nokkur bréf með fyr- irspurnum um rekstur þess og óskum um nánari útskýringar á ákveðnum kostnaðarliðum. Samkvæmt stjórn- sýslureglum hafa félög í athugun hjá skattayfirvöldum andmælafrest og meðferð málsins því tafist. Bryndís Kristjánsdóttir skattrann- sóknarstjóri segist ekki mega tjá sig um einstök mál. „Það hvílir þagnar- skylda á okkur lögum samkvæmt og hana virðum við.“ Sex milljarða rekstrarkostnaður Í ársreikningi FL Group fyrir árið 2007 kom fram að heildarrekstrar- kostnaður félagsins hefði numið 6.153 milljónum króna. Um 35 manns störf- uðu að meðaltali hjá félaginu á þeim tíma. Þá var rekstrarkostnaður FL Group á árinu 2006 um 2,8 milljarðar króna. Samanlagt hafði rekstur fé- lagsins því kostað um níu milljarða króna á tveimur árum. Stærsti einstaki kostnaðarliðurinn hjá FL Group í fyrra var liður sem kallaðist „annar kostnaður“ og hljóð- aði upp á tæpa 3,5 milljarða króna. Þegar falast var eftir nánari sundur- liðun á þessum lið fengust þau svör að þar undir væru húsnæðiskostnaður, tölvu- og tæknimál, styrktarmálefni, markaðs- og kynningarkostnaður, ferðalög starfsmanna, aðkeypt þjón- usta og kostnaður vegna upplýsinga- veitna. IGG-kostnaður vakti athygli Heimildir Morgunblaðsins herma að eitt þeirra atriða sem hefði vakið sérstaka athygli skattayfirvalda hefði verið að beinn útlagður kostnaður vegna fyrirhugaðrar yfirtöku FL Group á breska félaginu Inspired Gaming Group (IGG) á seinni hluta ársins 2007 hefði numið 792 milljón- um króna. Hjá FL Group fengust þær upplýsingar á sínum tíma að kostn- aðurinn væri tilkominn vegna að- keyptrar sérfræðiaðstoðar og um- saminna bótagreiðslna til IGG þar sem hætt hafði verið við yfirtökuna. Inni í þeim tölum var ekki innanhúss- kostnaður FL Group vegna hinnar ætluðu yfirtöku. Ekki hefur fengist uppgefið hverjir fengu greiðslurnar vegna sérfræðiaðstoðarinnar. FL Group ætlaði að greiða um 50 milljarða króna fyrir IGG í lok síðasta árs en félagið framleiðir meðal annars leikjaskjái á bari, bingóvélar og veð- málastöðvar. Þá var gengi bréfa í fé- laginu um 340 pens á hlut. Í dag er gengið 5,5 pens á hlut. FL Group tap- aði um 80 milljörðum króna á árinu 2007. Á þeim tíma var það langmesta tap sem íslenskt félag hafði tilkynnt um. Rannsókn á FL Group/Stoðum hófst fyrst í vor Húsleit gerð hjá Stoðum/FL Group Morgunblaðið/Golli Skoðun Skattrannsóknarstjóri hefur Stoðir/FL Group til rannsóknar. Í HNOTSKURN » Stoðir/FL Group var al-menningshlutafélag fram á mitt þetta ár. » Félagið tapaði um 80milljörðum á árinu 2007. » Kostnaður vegna launa oglaunatengdra gjalda var 2.510 milljónir kr. á þeim tíma. » Stoðir/FL Group eru semstendur í greiðslustöðvun. 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Roma Aspen Aspen-Lux Verð kr. 139.900,- Verð Kr. 174.900,- Verð Kr. 269.900,- Verðdæmi : Patti lagersala landsins mesta úrval af sófasettum Yfir 200 tegundir af sófasettum VERÐHRUN Íslensk framleiðsla kr.69.900,- verð frá Bonn Verð Kr. 153.900,- Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í MINNISBLAÐI um kostnað við ratsjáreftirlit, sem m.a. hefur verið til skoðunar í fjármálaráðuneytinu, kemur fram að ef ratsjáreftirliti væri sinnt í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð gæti kostnaður við eftirlitið numið 400–500 milljónum króna en ekki 822 milljónum eins og nú er gert ráð fyrir. Yrði í Björgunarmiðstöðinni Ratsjáreftirliti, þ.e. rekstri rat- sjárkerfisins sem Bandaríkjaher byggði upp á sínum tíma, er nú sinnt af Varnarmálastofnun og er áætlaður kostnaður stofnunarinnar vegna þess 822 milljónir króna á þessu ári og er gert ráð fyrir að hann verði svipaður á því næsta. Miðað við kostnaðaráætlunina sem er í minnisblaðinu væri því hægt að spara 300–400 milljónir á ári. Til samanburðar má t.d. nefna að á fjárlögum 2008 var gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna Námsgagnastofnunar myndi nema 380 milljónum króna. Í minnisblaðinu er miðað við að ratsjáreftirliti yrði sinnt í Björg- unarmiðstöðinni allan sólarhring- inn en auk þess væri vakt hjá Flugstoðum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er kostnaðaráætlunin ýtarleg. Gert er ráð fyrir að starfs- mannakostnaður yrði 210-220 milljónir á ári, rekstur fasteigna myndi kosta um 80 milljónir á ári og annar kostnaður, s.s. vegna við- halds á ratsjám og við fjarskipti, yrði hátt í 200 milljónir. Ef þessar fjárhæðir eru teknar saman nemur kostnaðurinn um 500 milljónum. Í minnisblaðinu er einnig fjallað um möguleika á að spara veru- legar fjárhæðir með því að minnka fjarskiptakostnað við ratsjáreftir- litið. Fjarskiptin mætti bjóða út að hluta eða öllu leyti og hugsanlega væri einnig hægt að bjóða til- teknum öðrum ríkisstofnunum að- gang að ljósleiðaranetinu sem fylgir ratsjárstöðvunum. Þannig mætti spara hátt í 100 milljónir króna. Þá er í minnisblaðinu fullyrt að hægt sé að minnka þann búnað sem er í daglegri notkun og minnka þar með viðhaldskostnað. Togstreita í stjórnkerfinu Varnarmálastofnun heyrir undir utanríkisráðuneytið. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu hef- ur dómsmálaráðuneytið talið að verkefnið gæti fallið undir stofn- anir þess og þá í umsjón flug- umferðarstjóra og Björgunar- miðstöðvarinnar í Skógarhlíð en þar eru fyrir stjórnstöð Landhelg- isgæslunnar, Neyðarlínan og Fjar- skiptamiðstöð lögreglu. Allt of dýrt eftirlit? Samkvæmt minnisblaði væri 300 – 400 milljónum ódýrara að láta ratsjáreftirlit fara fram í Björgunarmiðstöðinni Fylgst er með flugumferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu á tveimur stöð- um, þ.e. hjá Flugstoðum og hjá Varnarmálastofnun. Hlutverk Flugstoða er að fylgjast með merkjum sem koma frá svoköll- uðum svarratsjám sem nema merki frá borgaralegum flugvélum. Merkin frá svarratsjánum eru grundvöllur þess að flugumferðarstjórar geti stýrt flugumferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu. Varnarmálastofnun fylgist með svonefndum frumratsjám en þær greina bæði þau loftför sem gefa frá sér merki og þau sem ekki gefa frá sér merki og láta jafnvel ekki vita af sér þegar þau koma inn á flugstjórnarsvæðið. Dæmi um slíkar vélar eru rússnesku „birnirnir“ sem stundum fljúga hjá. Fylgjast með ókunnum vélum Morgunblaðið/Eyþór Fortíð Bandaríski herinn byggði upp ratsjáreftirlitskerfið og uppfærði það reglulega með ærnum tilkostnaði, allt þar til árið 2006 þegar herinn mat ástandið sem svo að hernaðarleg ógn væri ekki fyrir hendi á Íslandi. FÓLKI liggur mikið á hjarta þessa dagana. Það kem- ur meðal annars fram í því að sjaldan eða aldrei hefur verið meiri áhugi meðal almennings á að skrifa grein- ar. Morgunblaðið bregst við þessu með því að birta með nýjum hætti greinar sem tengjast efnahagsmál- unum, með yfirskriftinni „Skoðanir fólksins“. „Morgunblaðið hefur í gegnum tíðina verið vett- vangur fyrir opna umræðu. Á tímum sem þessum er afar brýnt að fólk viti að það geti komið skoðunum sín- um á framfæri og borið upp spurningar sem ná til meginþorra þjóðarinnar. Með því að auka vægi um- ræðugreina í blaðinu vill Morgunblaðið sýna að það tekur alvarlega hlutverk sitt sem málþing þjóð- arinnar,“ segir Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórn- arfulltrúi á Morgunblaðinu. Í greinunum lýsa margir áhyggjum sínum yfir þróun efnahagsmála, fólk er reitt, þar er að finna gagnrýni, ábendingar, tillögur og síðast en ekki síst spurningar en blaðið er einnig vettvangur þeirra sem geta svarað. Hér stígur fram á sviðið jafnt fólk sem að öðru jöfnu skrifar ekki í blöð sem og sérfræðingar og vanir greinahöfundar. Greinum er skilað í innsendikerfi Morgunblaðsins, á mbl.is. | 28-33 helgi@mbl.is Skoðanir fólksins  Morgunblaðið birtir greinar um efnahagsmálin á sérstök- um síðum  Farvegur fyrir áhyggjur, tillögur og spurningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.