Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 17

Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 Lífeyrissjóðir gerðu stóra fram- virka gengissamninga, svokallaða afleiðusamninga, við Kaupþing, Glitni og Landsbanka áður en bank- arnir féllu. Samningarnir eru þess eðlis að sjóðirnir tóku stöðu með því að íslenska krónan myndi styrkjast. Því vann það gegn hagsmunum líf- eyrissjóðanna ef gengisvísitala hennar hækkaði og krónan veiktist. Sú hefur verið raunin það sem af er þessu ári og lífeyrissjóðirnir því tap- að verulega á samningunum. Viðræður við stjórnvöld í gangi Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is LÍFEYRISSJÓÐIRNIR skulduðu gömlu viðskiptabönkunum samtals 67 milljarða króna þann 9. október vegna óhagstæðrar gengisþróunar krónunnar. Sjóðirnir höfðu gert samninga og veðjað á styrkingu krónunnar en ekki veikingu. Þann 9. október var gengisvísital- an 175 og hefur krónan veikst síðan. Ef gera ætti upp samningana á nú- verandi gengi þyrftu lífeyrissjóðirn- ir að greiða yfir 100 milljarða króna til bankanna vegna þeirra. segir að sjóðirnir hafi átt í viðræðum við stjórnvöld um lausn málsins. „Lífeyrissjóðirnir hafa í gegnum tíð- ina verið með sérstaka gjaldeyris- varnarsamninga. Við höfum átt í við- ræðum við stjórnvöld upp á síðkastið með hvaða hætti það ætti að gera slíka samninga upp eða hvort markaðsbrestir hafi átt sér stað þannig að hægt sé að víkja þessum samningum til hliðar. Þær viðræður eru enn í gangi og ég býst við að þetta muni skýrast núna í vik- unni. Við teljum að ekki sé eftir neinu að bíða. Það eru gífurlega miklir hagsmunir í húfi.“ Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa viðræður lífeyrissjóð- anna verið við Fjármálaeftirlitið (FME), skilanefndir bankanna og viðskipta- og fjármálaráðherra. Vilja skuldajafna við bankana Lífeyrissjóðirnir eru stórir kröfu- hafar í þrotabú gömlu bankanna þar sem þeir áttu mikið af skuldabréfum frá þeim. Virði þeirra bréfa er mun hærra en virði afleiðusamninganna og því skulda gömlu bankarnir sjóð- unum. Heimildir Morgunblaðsins herma að lífeyrissjóðirnir hafi lagt til að samningarnir verði skuldajafn- aðir. Ekki hefur náðst samkomulag um á hvaða gengi það yrði gert. Lífeyrissjóðir gætu tapað miklu á afleiðusamningum við bankana  Lífeyrissjóðir gætu tapað tugum milljarða á framvirkum gengissamningum  Ræða við stjórnvöld Í HNOTSKURN » Allir afleiðusamningarföllnu bankanna urðu eftir í þrotabúum þeirra. » Morgunblaðið sagði nýver-ið frá því að samkvæmt heimildum þess hefðu innlend og erlend fjárfestingafélög ásamt vogunarsjóðum, með milligöngu banka, gert afleiðu- samninga tengda krónunni upp á allt að sjö hundruð milljarða króna. Í þeim samningum var tekin staða gegn krónunni. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is HÓPUR hollenskra innistæðueig- enda í Icesave-reikningum Lands- bankans þar í landi hefur sent full- trúa sína til Íslands til að afla upplýsinga um stöðu mála og funda með fulltrúum skilanefndar Lands- banka og íslenskra stjórnvalda. Um er að ræða hóp fólks sem átti yfir 100.000 evrur á reikningum Ice- save, en innistæður í Hollandi eru aðeins tryggðar upp að þeirri fjár- hæð. Alls munu 469 manns hafa átt yfir 100.000 evrur inni á reikningum bankans, en 232 þeirra hafa bundist samtökum. Fjögurra manna sendi- nefnd kom hingað til lands í gær og verður fram á laugardag. Innistæður fáist greiddar Talsmaður hópsins, Gerard van Vliet, sagði í samtali við Morgun- blaðið að meginmarkmiðið væri eðli- lega að tryggja að innistæðurnar fengjust greiddar. „Aðalatriðið er ekki endilega að fá innistæðurnar greiddar sem fyrst. Við þurfum hins vegar að fá það svart á hvítu að þær fáist greiddar. Sum okkar höfðu lagt inn á Icesave-reikninga fé, sem þau þurfa að geta notað núna. Fáum við staðfestingu á því að féð fáist greitt að fullu getur þetta fólk farið til ann- arra banka og fengið hjá þeim brú- arlán þar til féð fæst greitt.“ Segir van Vliet að fundað verði með skilanefnd Landsbankans í dag eða á fimmtudag. „Við viljum fá upp- lýsingar um hver eignastaða gamla Landsbankans er og hvað gera eigi við eignirnar. Fyrir nokkrum vikum átti bankinn eignir upp á milljarða evra og þær eru enn einhvers virði. Þá þurfum við að fá að vita hvort selja eigi eignirnar sem fyrst, eða hvort sitja eigi á þeim þar til þær hækka í verði. Eins og áður segir skiptir ekki öllu máli hvenær við fáum innistæður okkar greiddar og því vildum við gjarnan að málum væri þannig háttað að sem mest fengist fyrir eignir bankans.“ Verið er að ganga frá því að hóp- urinn hitti fulltrúa stjórnvalda, en van Vliet segist ekki vita ennþá hve- nær sá fundur verði haldinn. „Við þurfum að vita hvort ákvæði neyð- arlaganna standi enn sem fyrr. Í þeim er gert ráð fyrir að innistæður njóti forgangs við greiðslur úr þrotabúum bankanna og skiptir það miklu máli fyrir okkur að fá staðfest að það fyrirkomulag standi enn.“ Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að fulltrúar stærstu erlendu kröfuhafa bankanna muni hitta skilanefndir þeirra á næstu dögum. Hafa margir þeirra látið í ljós áhuga á að taka hlutabréf í íslensku bönk- unum upp í skuldir og taka þátt í áframhaldandi rekstri og fjármögn- un þeirra. Vilja fé sitt greitt Hollenskir innistæðueigendur funda með Landsbanka og stjórnvöldum  !  !        ! "!     !    #$%$  &  '        ()*+ #,!     ! !    !  !  !                      !!"  !"#" $ ,- . /- ,$  0 $12/- "  3 0 $12/- +4  /- -+  2 -5 6  7.  0 $12/- 8 129 " /- /- *:;& * 11 <"1 = >(?> -@/- A1 /- %&&$!'!() *# # ,  .,  B ,  .:  $ 1: + " (C $B "  &D/ ? /- E 13= /- !  +! ),#&- F 1 B,1 1F$ "0 /- 2 =? /- .*/0 # "1!* !    ! !! "         !      " "                E = 2   ) @$=G$  8 12*  < H < < HH <  < < H < < H H < < H < < < I I < IHH HIH < I < < I I < < HI I < I < < I < < < < HI < I < < I < < I I < < I I < (?3  = 2 < <  < <  <  < <  < <   < < H < < #    = =    H   <  H H  H     H   H ,) ,) ,) ,) ,)  ,) ,) HAUST- RÁÐSTEFNA FÉLAGS LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA Félag löggiltra endurskoðenda Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík 568 8118 fle@fle.is www.fle.is Skráning kl. 8:15 Setning - Margret G. Flóvenz, formaður FLE Ávarp - Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Kauphöll á umbrotatímum Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX á Íslandi Skyldur skráðra félaga til upplýsingagjafa Kristín Rafnar, forstöðumaður skráningarsviðs NASDAQ OMX á Íslandi Stóra bóla Gylfi Zoëga, Prófessor við Háskóla Íslands Upplýsingar í ársreikningum félaga á markaði og gagnsemi þeirra fyrir greiningaraðila Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur Staða og framtíðarhorfur á íslenskum hlutabréfamarkaði Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Nýja Kaupþings banka Reikningsskil skráðra félaga á Íslandi Stefán Svavarsson, aðalendurskoðandi hjá Seðlabanka Íslands Hádegisverður - Setrið og Hvammur Endurreisn hlutabréfamarkaðar – Aftur til fortíðar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital Eftirlit með ársreikningum fyrirtækja á markaði Geir Geirsson, endurskoðandi hjá Ársreikningaskrá RSK Sjónarmið hins almenna fjárfesta Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta Ráðstefnuslit kl. 14:30 Hlutabréfamarkaðurinn – hrun & endurreisn Ráðstefnustjóri : Eggert Teitsson, endurskoðandi og forstöðumaður reikningshalds Nýja Kaupþings banka. Ráðstefnugjald með hádegisverði : 18.000 kr. Ráðstefnan er opin félagsmönum FLE, FIE og öðrum þeim sem áhuga hafa. Þátttökutilkynning berist Félagi löggiltra endurskoðenda fyrir 12. nóvember. FÖSTUDAGINN 14. NÓVEMBER, GRAND HÓTEL REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.