Morgunblaðið - 12.11.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008
» Það hlýtur að vera
forgangsefni rík-
isvaldsins á krepputím-
um að vera ekki drag-
bítur á sveitarfélögin …
Höfundur er borgarfulltrúi
og formaður sveitarstjórnarráðs
Vinstir grænna.
svarað, meðan leyndarhyggjan og
pukrið ríkja í framkomu rík-
isstjórnar við almenning þessa lands
er sveitarfélögunum líka haldið í
myrkrinu. Vinna við gerð fjárhags-
áætlunar fyrir árið 2009 stendur nú
sem hæst, án þess að tekjustofnar
sveitarfélaganna liggi fyrir. Það er
með öllu óásættanlegt.
Ætli ríkisstjórnin að standa við
stóru orðin um að reisa við atvinnu-
lífið og standa vörð um heimilin í
landinu, verða sveitarfélögin að vera
fullir þátttakendur. Þau þurfa að
hafa fulla aðkomu að ákvarðanatöku
og stefnumótun til framtíðar. Rík-
isstjórnin verður að gera þeim það
kleift.
Það hlýtur að vera algjört for-
gangsefni ríkisvaldsins á krepputím-
um að vera ekki dragbítur á sveit-
arfélögin sem hafa mikinn metnað til
þess að verja grunnþjónustuna í
þágu almennings í þessu landi. Rík-
isstjórninni ber að tryggja sveit-
arfélögum útvegi og fjármagn til
verka og það strax.
er í uppgjöfina hjá mörgum. Kenn-
arar eru stoltir fagmenn og reyna í
lengstu lög að fást við vandamál sem
upp koma hjá nemendum en oft
ganga þeir svo nærri sér að kulnun í
starfi er einboðin. Til þess að gæta
hagsmuna barna af ábyrgð verður
skólinn að bjóða upp á heildstæða
nærþjónustu sem gagnast barninu
afdráttarlaust. Í dag vantar upp á
þessa þjónustu. Félagsráðgjafar
starfa við fjölmarga skóla í dag sem
námsráðgjafar. Hagsmunagæslu
barna yrði að mínu mati best borgið í
skólunum með því að boðið væri upp
á þjónustu hjúkrunarfræðings,
námsráðgjafa og félagsráðgjafa sem
störfuðu saman að því að tryggja ör-
yggi barna og ungmenna. Togstreita
milli fagstétta hefur verið of áber-
andi í samfélagi okkar og gagnast
ekki hagsmunum barna en það eru
einmitt þeir sem við verðum að hafa
að leiðarsljósi, sérstaklega nú þegar
álag á heimilin bitnar á börnum og
ungmennum. Málþingið var spor
stigið í átt að heildarsýn á aðstæður
barnsins sem er barnavernd og veg-
vísir.
Höfundur er MSW félagsráðgjafi
með sérfræðiréttindi sem fræðslu- og
skólafélagsráðgjafi, náms- og starfs-
ráðgjafi og kennari.
TIL HAMINGJU
VINNINGSHAFAR!
ann í stól sinn er einn auðmanna sem
skiptu fjölmiðlum á milli sín. Stjórn-
völd höfðu reynt að stemma stigu við
ofurvaldi auðmanna á fjölmiðlum;
manna sem höfðu skipt landinu á
milli sín. Niðurlæging íslenskra
blaðamanna náði hámarki þegar þeir
settu banana við dyr Alþingis til
varnar herrum sínum. Og Blaða-
mannafélagið steig dansinn. Þjóðin
þekkir þessa sjóferð. Íslenskir fjöl-
miðlar breyttust í málgögn sem öll
mærðu auðmenn. Þeir kæfðu hvers
kyns gagnrýni á framgöngu auð-
manna sem höfðu tekið þjóðina í
gíslingu.
Nú er leikurinn að endurtaka sig.
Fjölmiðlar eru harðsvíruð málgögn
sem keyra Evrópuumræðuna í skjóli
auðmanna sem hafa spilað rassinn
úr buxunum. Það er ekkert jafnvægi
í umræðunni, önnur sjónarmið kæfð
nú þegar þjóðin stendur frammi fyr-
ir stærstu ákvörðun sinni. Í fjöl-
miðlum birtist veikleiki hins litla ís-
lenska samfélags því svo ótrúlega
auðvelt er að ná tökum á skoð-
anamyndun samfélagsins.
Er ekki rétt að staldra við?
» Í fjölmiðlum birtist
veikleiki hins litla ís-
lenska samfélags ...
Höfundur er rithöfundur.