Morgunblaðið - 12.11.2008, Blaðsíða 38
38 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
Atvinnuauglýsingar
Störf í boði
Húsgagnaframleiðandi óskar eftir að ráða:
Aðstoðarmann bólstrara: Æskileg reynsla
af smíðum.
Saumatækni: Æskileg reynsla af iðnaðar-
saum (bólstrun).
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem
fyrst. Umsögn og ferilskrá sendist á
innbu@simnet.is
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Lager- og skrifstofu-
húsnæði
Til leigu á Krókhálsi 4.
300 m² lagerhúsnæði, stór vöruhurð.
135 m² lagerhúsnæði, stór vöruhurð.
180 m² skrifstofuhúsnæði.
Hagstætt leiguverð, 990 krónur pr. m².
Nánari upplýsingar í síma 821 1400.
Fundir/Mannfagnaðir
Suður-Ossetía
í ágúst
Ljósmyndasýning frá rússnesku frétta-
stofunni ITAR-TASS um stríðsaðgerðirnar í
Kákasus-lýðveldinu Suður-Ossetíu í ágúst-
mánuði sl. verður opnuð í húsakynnum
félagsins MÍR, Hverfisgötu 105, fimmtu-
daginn 13. nóvember kl. 19. Við opnun
sýningarinnar flytur sendiherra Rússlands,
ViktorTatarintsév, ávarp og sýnd verður
kvikmynd. Kaffiveitingar.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
MÍR
Tilkynningar
Auglýsing um
skipulag – Þingeyjarsveit
Tillaga að deiliskipulagi fyrir virkjun
í Nípá, Þingeyjarsveit
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti 16.
okt. s.l. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir
virkjun í Nípá, Árteigsvirkjun 4, skv. 25. grein
laga nr. 73/1997 m.s.br. Um er að ræða 750 kW
virkjun við Árteig. Gert er ráð fyrir 15 metra
langri stíflu með 2.760 m langri þrýstipípu að
75 fer-metra stóru stöðvarhúsi.
Deiliskipulagið verður til sýnis á skrifstofu
Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugum, frá 17.
Nóvember 2008 – 23. Desember 2008.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Þingeyjarsveitar. Þá eru upplýsingar og
aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar,
www.thingeyjarsveit.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
skipu-lagstillögunina og skal þeim skilað skrif-
lega til skrifstofu Þingeyjarsveitar, eigi síðar en
30. des. 2008. Þeir sem ekki gera athugasemd
við tillöguna teljast samþykkir henni.
11. nóvember 2008.
Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit,
Tryggvi Harðarson.
I.O.O.F. 9 189111281/2
I.O.O.F. 7. 189111271/2 Bk.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
HELGAFELL 6008111219 IV/V
GLITNIR 6008111219 I
Félagslíf
Raðauglýsingar
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
NÍELS MARTEINSSONAR,
Sléttuvegi 17.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga heima-
hlynningar Landspítalans.
Steinunn J. Bárðardóttir,
Bárður Marteinn Níelsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Karen Níelsdóttir, Gunnar Örn Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns og frænda,
SIGURÐAR PÉTURSSONAR
prentara,
Hraunbæ 102h,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur.
Sóley Brynjólfsdóttir,
Sigurveig Alfreðsdóttir, Gunnar H. Hall
og fjölskylda.
Við andlát vinar
míns Sigurðar
Hjaltasonar er genginn enn einn
af íbúum sjávarþorpsins Hafnar í
Hornafirði, sem þátt áttu í að móta
bernsku og verða fyrirmyndir okk-
ar sem fædd vorum upp úr miðri
síðustu öld.
Í lífsstíl þessa fólks fór mjög
Sigurður Hjaltason
✝ Sigurður Hjalta-son fæddist í
Hoffelli í Nesja-
hreppi í Austur-
Skaftafellssýslu 12.
maí 1923. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu á Höfn 22.
október síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Hafn-
arkirkju 31. októ-
ber.
saman sú nægjusemi
og hógværð sem ein-
kenndi svo marga
eldri Skaftfellinga og
sá kjarkur og öryggi,
sem verður til af far-
sælum uppgangi og
nægri atvinnu, þar
sem allir þurfa samt
að leggja hönd á
plóginn svo vel fari.
Slíkur staður var
Höfn í Hornafirði og
í minningunni er sól-
skin. Sigurður
Hjaltason var einn af
kyndilberum þessa hóps bæði sak-
ir mannkosta sinna og starfs sem
sveitarstjóri í mörg ár, starfs sem
í hans tilviki var unnið af svo heilu
hjarta að þess munu fá dæmi.
Bernskuminningar geta orðið að
perlum, sem saman mynda festi
eða eina heild. Þegar best lætur
myndast upp úr þessu sá styrkur
og það gildismat sem geta skapað
sanna gæfu í lífinu. Umgengnin
við heimili Sigurðar og hans elsku-
legu konu Aðalheiðar Geirsdóttur
eða Öllu, sem hún var oftast köll-
uð, hefur skapað nokkuð margar
perlur á lífsfesti undirritaðrar.
Hún átti þeirri gæfu að fagna að
verða æskuvinkona elstu dóttur
þeirra Margrétar og eiga samleið
með henni 10 ár í skóla. Saman
mynduðu þau Alla og Siggi vissa
heild með þann andblæ í kringum
sig, sem gerði heimilið svo gott og
skemmtilegt sem raun bar vitni,
sannan gnægtabrunn fræðslu, ör-
yggis og gleði. Vinir dætranna
urðu þeirra vinir og hjartarýmið
var ótakmarkað. Ásamt því að
eiga góða foreldra og bernsku-
heimili markar umgengni við góð-
ar manneskjur gæfubraut. Vil ég
að lokum þakka Öllu minni og öllu
hennar fólki fyrir skilyrðislausa
hlýju og góðsemi frá fyrstu tíð.
Guð styrki þau og blessi minningu
Sigurðar Hjaltasonar.
Guðrún Eiríksdóttir.
Kveðja frá Lionsklúbbi
Hornafjarðar
Félagi okkar Sigurður Hjalta-
son, fyrrverandi sveitarstjóri á
Höfn, lést á Hjúkrunarheimilinu á
Höfn 22. október sl. Við félagarnir
viljum minnast hans á kveðju-
stund með virðingu og þökk.
Sigurður var einn af stofnfélög-
um klúbbsins fyrir 42 árum og
hefur starfað með honum síðan af
einlægni og stórhug og mætt á
fundi reglulega þar til á þessu
starfsári að hann varð að taka sér
frí vegna heilsubrests. Hann var
maður góðum dyggðum búinn og
rækti öll störf sín í þágu klúbbsins
af áhuga og samviskusemi. Á
fundum var hann tillögugóður og
jákvæður og mikill mannasættir.
Það var ávallt gleði í kringum Sig-
urð og mörg hnyttin tilsvör hans
verða lengi í minnum höfð. Hann
skilur eftir skarð í hópnum sem
vandfyllt verður. En eftir lifir
minning um mætan félaga og góð-
an vin.
Kæra Aðalheiður, börn, fjöl-
skyldur og annað venslafólk. Inni-
legar samúðarkveðjur sendum við
ykkur öllum.
Guð blessi minninguna um góð-
an félaga og mikinn mannvin.
Fyrir hönd félaga í Lionsklúbbi
Hornafjarðar,
Hreinn Eiríksson.
Sigurður Hjaltason var gerður
að heiðursborgara Hafnar í
Hornafirði hinn 12. maí 1993 á sjö-
tugsafmæli hans. Hann varð sveit-
arstjóri á Höfn árið 1964 og
gegndi því starfi samfellt í 18 ár
eða til ársins 1982. Tími hans í
stóli sveitarstjóra var mesti upp-
gangstími sveitarfélagsins og íbú-
um fjölgaði ört. Það var því í mörg
horn að líta varðandi uppbyggingu
mannvirkja og bætta þjónustu við
fólkið.
Byggður var gagnfræðaskóli,
íþróttahús, leikskóli og stjórn-
sýsluhús svo eitthvað sé nefnt.
Eftirspurn eftir lóðum jókst mikið
og fyrstu tíu ár hans í embætti
voru byggð yfir 120 íbúðarhús á
Höfn. Mestan þann tíma sem hann
gegndi stöðu sveitarstjóra var
hann ekki með marga starfsmenn
á sínum snærum. Það mæddi því
mikið á Sigurði við að halda utan
um lóðaúthlutanir, skipulagsmál,
gatnagerð og hafnargerð svo eitt-
hvað sé nefnt enda var eftir því
tekið hversu þaulsætinn hann var
og vinnuvikan löng.
Sigurður var gætinn í öllum
embættisfærslum, farsæll í starfi
og vel liðinn af samferðafólkinu.
Eftir að Sigurður lét af starfi
sveitarstjóra gegndi hann starfi
framkvæmdastjóra Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi til árs-
ins 1991. Hann var sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir störf að
sveitarstjórnarmálum 1. janúar
1992.
Eftir að starfsferli lauk sýndi
Sigurður áfram mikinn áhuga á
málefnum sveitarfélagsins. Hann
tók virkan þátt í félagsstarfi eldri
borgara og var þar í forystu um
tíma. Sumarið 2007, þegar Höfn
fagnaði 110 ára afmæli, vígði Sig-
urður sérstaka gönguleið um götur
Hafnar.
Eftir að ég réð mig til starfa
fyrir sveitarfélagið fyrir meira en
fjórum árum ræddi ég stundum
við Sigurð. Hann var glaðlyndur
og ég skynjaði ávallt mikinn hlý-
hug frá honum í minn garð sem
mér þótti afar vænt um. Héraðið
sér nú á eftir góðum manni sem
lagði drjúgan skerf til uppbygg-
ingar samfélagsins á Hornafirði.
Fyrir hönd bæjarstjórnar
Hornafjarðar votta ég fjölskyldu
Sigurðar innilega samúð.
Hjalti Þór Vignisson,
bæjarstjóri á Hornafirði.
Sigurður Hjaltason var einn af
þeim einstaklingum sem lögðu
grunn að uppbyggingu Hafnar í
Hornafirði. Í sveitarstjóratíð hans
var mikil fjölgun íbúa á Höfn og
hvert íbúðarhúsið af öðru reis af
grunni, heilu göturnar sum árin.
Hann lét ekki sitt eftir liggja og
stjórnaði framkvæmdum sjálfur ef
því var að skipta.
Sigurður var mikill framfara- og
umbótamaður þótt hann væri líka
þægilega íhaldssamur á sinn hátt.
En umhyggja hans fyrir samfélag-
inu og íbúum þess var alltaf efst á
blaði.
Ég átti því láni að fagna að
starfa náið með Sigurði tvö síð-
ustu árin sem hann vann á vett-
vangi sveitarstjórna. Hann var þá
framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi. Við
ferðuðumst saman frá Höfn á
stjórnarfundi hjá SSA, oft í rysj-
óttu veðri, og áttum saman góðar
stundir og eftirminnileg samtöl.
Ég lærði jafn mikið eða meira
þessi tvö fyrstu ár mín í sveit-
arstjórnarmálum en þau tíu sem í
hönd fóru. Fyrir það þakka ég
Sigurði Hjaltasyni ekki síst. Í hópi
sveitarstjórnarmanna naut hann
mikillar virðingar.
Sigurður sat ekki aðgerðalaus
eftir af hafa lokið ævistarfinu. Alla
opna fundi á vegum sveitarfé-
lagsins sótti hann og mér er sér-
staklega kært að minnast fé-
lagsfunda í Kríunni sem hann lét
ekki framhjá sér fara. Þar nutum
við ungliðarnir sannanlega reynslu
hans og handleiðslu.
Ég vil að lokum þakka Sigurði
Hjaltasyni alla þá hvatningu og
vináttu sem hann sýndi mér alla
tíð. Það var gott að eiga hann að
sem bakhjarl. Og Aðalheiði, dætr-
unum og fjölskyldum þeirra sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Gísli Sverrir Árnason.
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð Hjaltason bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.