Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 43

Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 Iggul Piggul ætlar í lestarferðmeð Ninký Nonk. Hvað ætlarOpsý Deisí að gera?“ Svo seg- ir í einni bókinni um Iggul Piggul og Opsý Deisí sem búa í næt- urgarði ásamt Tomblibúum, Mökku Pökku og lestinni Ninký Nonk. Nýlega komu út tvær harð- spjaldabækur fyrir allra yngstu börnin um þessar kynjaverur sem sum börn kannast við úr barna- þættinum Í næturgarði sem sýndur hefur verið í Sjónvarpinu. Í næt- urgarði eru eftir þá sömu og sköp- uðu Stubbana og líkt og í þeim byggist allt á endurtekningum og fallegum litum og formum. Ég prófaði að lesa bækurnar fyrir tæplega átta mánaða gamlan son minn og hann gleypti við þeim, fannst hljóðin sem komu út um munn móður sinnar merkileg, „Uu- ...Deisí Dúúú!, Mikka makka múú- úú!“, og reyndi að plokka mynd- irnar úr bókinni sem er virkilega litskrúðug og skemmtileg.    Bækurnar tvær um Snillingana,Faldi fjársjóðurinn og Við er- um litlu snillingarnir, eru líka byggðar á sjónvarpsþáttum. Í þeim segir frá snillingunum fjórum; Leó, Rún, Anný og Einsa, sem lenda í allskonar ævintýrum á flauginni Rauðku. Lesandinn þarf að aðstoða þau við að leysa ýmsar þrautir og bak við flipa á síðunum leynast oft svörin. Bækurnar eru skemmtilega skreyttar og fá börnin til að taka þátt í fjörinu. Helsti gallinn er sá að mér finnst miðað við að lesand- inn þekki sjónvarpsþættina auk þess sem fliparnir eru heldur veiklulegir, ef börnin eru ekki þeim mun eldri og prúðari, verða þeir rifnir strax af.    Í sögunni um Dúdda litla eftirPeter Schössow segir frá Kaf- teini Magna músastýri og skips- félögum hans á dráttarbátnum Drangey. Magni finnur óvenjulegt egg í flæðarmálinu og út úr því klekst Dúdúfuglinn Dúddi. Aðrir hafa augastað á Dúdda og endar hann eins og margar sjaldgæfar dýrategundir í dýragarði. Magni og félagar bjarga honum þaðan og leggja upp í ævintýrlega ferð til að koma honum aftur til síns heima. Sagan um Dúdda litla er fallega myndskreytt, þetta eru engar „Disney“-myndir heldur eru þær í mildum litum og margt er að skoða á hverri mynd. Sagan er líka fal- leg, henni er ekki ætlað að „heilaþvo“ börn eða kenna þeim eitthvað. Það kemur líka ýmislegt fyrir í sögunni sem ekki er vaninn að sjá í barnabókum í dag, það er blótað hressilega, vindlar reyktir og skipsfélagarnir fara á knæpu saman til að ræða málin. Það er ekkert kjaftæði í þessari bók, held- ur er þetta fallega saga um nokkra roskna sjómenn sem eignast óvart dúdúunga sem þeir þurfa að sinna.    Af íslenskum barnabókum semeru nýjar í búðarhillunum má nefna Skrímslapest eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rak- el Helmsdal. Þetta er fjórða bókin um litla og stóra skrímslið. Í þetta skiptið liggur stóra skrímslið í ból- inu með skrímslapest, litla skrímsl- ið ætlar að hressa upp á vin sinn en stóra skrímslið er eitthvað öf- ugsnúið. Vinirnir leysa þó úr ágreiningnum að lokum. Bæk- urnar um skrímslin tvö eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Ekki aðeins eru myndirnar óvenjulegar og skemmtilegar heldur eru sögurnar líka frábærar og jafn skemmti- legar að lesa fyrir unga jafnt sem aldna. Önnur dásamleg bók sem er komin út er sagan um Pétur og úlf- inn eftir Sergei Prokofief. Bókin er myndskreytt með myndum úr sam- nefndu brúðuleikriti sem Bernd Ogrodnik sýndi m.a í Þjóðleikhús- inu. Myndirnar í bókinni eru mjög skýrar og litskrúðugar, brúður Bernd eru mannlegar og heillandi. Þetta er ein fallegasta barnabók sem ég hef séð í langan tíma, svo falleg að mig langaði mest af öllu að komast inn í heim Péturs, rölta um skóginn þar sem úlfurinn býr og fá mér kaffi hjá afanum og Pétri í litla húsinu. Ég sé fyrir mér að mörg börnin eigi eftir að sogast inn í ævintýrið um Pétur og úlfinn.    Að lokum er vert að nefna einabarnabók í viðbót sem er nokkuð ólík þeim fyrrnefndu en á mikið erindi til allra barna. Það er bókin Við erum öll fædd frjáls, í henni er mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna sett fram í skýru og einföldu máli. Hópur listamanna var fenginn til að myndskreyta við hverja yfirlýs- ingu og er bókin því einkar fjöl- breytt. Þetta er bók sem foreldrar eiga að lesa með börnum sínum svo þau geti spurt út í mannréttindi sín og fengið útskýringu á. ingveldur@mbl.is Mikka makka múúúú! » Það er ekkert kjaft-æði í þessari bók, heldur er þetta falleg saga um nokkra roskna sjómenn sem eignast óvart dúdúunga sem þeir þurfa að sinna. Mannréttindi Í Við erum öll fædd frjáls er mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna sett fram í skýru máli. AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir Jólablað Morgunblaðsins Stórglæsilegt sérblað tileinkað jólunum fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 28. nóvember. Meðal efnis er: • Jólafötin á alla fjölskylduna. • Hátíðarförðun litir og ráðleggingar. • Uppáhalds jólauppskriftirnar. • Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á aðventu og jólum. • Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur. • Smákökur. • Kökuuppskriftir • Eftirréttir. • Jólakonfekt. • Jólauppskriftir frá kokkum. • Vín með jólamatnum. • Laufabrauð. • Gjafapakkningar. • Jólagjafir. • Kertaskreytingar. • Jól í útlöndum. • Jólakort. • Jólabækur og jólatónlist. • Jólaundirbúningur með börnunum. • Margar skemmtilegar greinar sem tengjast þessari hátíð ljóss og friðar. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Ásamt fullt af öðru spennandi efni og fróðleiksmolum. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, föstudaginn 21. nóvember. TÓNLIST Norræna húsið Píanótónleikarbbbbn Snorri S. Birgisson píanóleikari lék tón- smíðar eftir Hauk Tómasson, Þorkel Sig- urbjörnsson og Ólaf Óskar Axelsson. Miðvikudagur 5. nóvember ÉG hef heyrt þá skoðun viðraða að ef börn alist upp við stöðuga sí- bylju í útvarpinu, þá læri þau ekki að hlusta á tónlist, verði jafnvel ónæm fyrir henni. Nú hefur fyrsta kynslóðin sem ólst upp á Íslandi með tónlist úr síbyljustöðvunum í bakgrunninum væntanlega slitið barnsskónum og má ætla að deyf- andi áhrif slíkrar tónlistar í bernsku hafi skilað sér í fíkn í eins konar neikvætt áreiti síbyljunnar, með tilheyrandi öryggisleysi ef slökkt er á tónlistinni. Ekki skiptir endilega máli hvaða tónlist er spil- uð; allt er betra en þögn. Síbyljan getur líka verið list- form í sjálfu sér. Segja má að svo- kölluð ambient-tónlist sé þannig listform, þ.e. draumkenndur mús- íkkliður sem byggist á endurtekn- ingum og hefur það að markmiði að skapa notalegt andrúmsloft. Slík tónlist er orðin býsna vinæl og maður greinir áhrif hennar víða. Ég var staddur á hádegistón- leikum í Norræna húsinu á mið- vikudaginn þegar ég heyrði eins konar ambient-tónlist, að þessu sinni verkið Glacial Palace eftir Hauk Tómasson. Snorri S. Birg- isson lék það á píanó og hófst tón- smíðin, sem hér var frumflutt, á þrástefjun kuldalegra hendinga og hljóma er síðan bráðnuðu upp í dáleiðandi tónamistur síendurtek- inna hendinga. Það var notalegt áheyrnar. Að vísu var hljómur flygilsins sjálfs dálítið harður, sem dró nokkuð úr ánægjunni, og kom það óþægilega á óvart því þegar ég heyrði í flyglinum síðast var hann talsvert mýkri. Sennilega þarf eitthvað að laga hljóm hljóð- færisins. Hvað um það; annað á tónleik- unum var prýðilega leikið af Snorra. Hið sígilda Apaspil Þor- kels Sigurbjörnssonar var gætt alls konar skemmtilegum lit- brigðum og nokkur frábær smá- verk eftir Ólaf Óskar Axelsson voru athyglisverð. Flest þeirra voru að hljóma í fyrsta sinn þótt nokkuð sé síðan þau voru samin; þetta eru íhugular tónsmíðar, eins og tónskáldið hafi verið að velta einhverju merkilegu fyrir sér og samið um það tónlist. Túlkun Snorra var líka tilfinningaþrungin og maður naut hvers tóns; leikur hans var vandaður og skýr, en jafnframt gæddur viðeigandi inn- lifun. Snorri hefur áður leikið tón- smíðar Ólafs, sem er gott mál því þessi músík á fullt erindi í ís- lensku listalífi. Vonandi heyrir maður meira af henni í framtíð- inni. Jónas Sen Síbyljasíbyljasíbylja …

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.