Morgunblaðið - 12.11.2008, Page 44
ur jólalög, en hann söng eitt ástsæl-
asta jólalag þjóðarinnar, „Jólahjól“,
með Sniglabandinu árið 1987. Það
má því segja að Stefán sé í vissum
skilningi kominn fullan hring, því
hann vakti fyrst athygli lands-
manna þegar hann söng um jóla-
hjólið.
Á nýju plötunni kennir
annars ýmissa grasa
og stíla, en hún ku
vera drekkhlaðin
gullfallegum, grípandi og vönduðum
lögum sem í framtíðinni eiga vafalaust
mörg eftir að fylla flokk sígildra jóla-
laga líkt og „Jólahjólið“. jbk@mbl.is
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008
Páll Óskar hélt upp á útgáfu
Silfursafnsins á laugardaginn síð-
asta, í skugga mótmæla myndu
einhverjir segja en það er sko
fjarri sanni. Páll Óskar var frá
upphafi til enda umkringdur sín-
um alhörðustu aðdáendum og í lok
dags hafði hann veitt hvorki meira
né minna en 500 eiginhandarárit-
anir.
Vinsælli en nokkru
sinni fyrr
Fólk
EIN handa þér er heitið á jólaplötu
sem Stefán Hilmarsson sendir frá sér
á næstu dögum. Þar er á ferðinni
fyrsta sólóplata Stefáns í 11 ár, eða
frá því hann sendi frá sér plötuna
Popplín árið 1997. Þar áður hafði
Stefán gert tvær sólóplötur, Eins og
er … árið 1996 og Líf árið 1993.
Góðir gestir syngja á plötunni með
Stefáni, þau Ellen Kristjánsdóttir,
Björgvin Halldórsson og Helgi
Björnsson. Stefán hefur aldrei sungið
inn á plötu með Ellen og Helga, og því um viss tímamót
að ræða.
Þótt um sé að ræða fyrstu jólaplötu Stefáns er þetta
langt frá því að vera í fyrsta skipti sem kappinn syng-
Stebbi syngur inn jólin á nýrri plötu
Helgi
Björnsson
Björgvin
Halldórsson
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að Hjördís Rut Sigurjónsdóttir
hefði tekið við stjórnartaumunum á
tímaritinu Nýju lífi af Ingibjörgu
Dögg Kjartansdóttur sem nú er far-
in í fæðingarorlof. Einhverra hluta
vegna var ekki einu orði minnst á
Ástu Andrésdóttur sem stýrt hefur
tímaritinu ásamt Ingibjörgu und-
anfarin misseri en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins lét Ásta af
störfum á dögunum þegar fyrir lá
að töluverður niðurskurður yrði á
blaðinu. Hjördís Rut sem áður
starfaði á Mannlífi, fyllir því skarð
tveggja ritstjóra og á þeim tíma
þegar lífsstíll fólks einfaldast til
muna og auglýsendum fækkar.
Er Nýtt líf búið undir það nýja líf
sem framundan er?
Er Nýtt líf búið
undir nýtt líf?
Eftir að hafa haldið okkur
spenntum í þrjár vikur hefur Sigur
Rós ákveðið að hljómsveitirnar For
A Minor Reflection og Parachutes
hiti upp fyrir lokatónleika sveit-
arinnar í Höllinni 23. nóvember.
Báðar sveitirnar hafa túrað með
Sigur Rós á árinu.
Fjölskylda og vinir á
sviðinu í Höllinni
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA var skemmtileg kvöldstund
sem við áttum með Klaus á hár-
greiðslustofu á horni Klapparstígs og
Hverfisgötu. Við hristum þetta fram
úr erminni í skrílslátum – þetta var
bara leikið af fingrum fram,“ segir
Ólafur Egill Egilsson leikari um at-
hyglisverð myndskeið sem hafa vakið
nokkra athygli á Youtube og víðar að
undanförnu. Þar fer Ólafur með hlut-
verk þýska stílistans Klaus Sverr-
issonar sem hefur fengið það hlut-
verk að lappa upp á útlit
hljómsveitarinnar GusGus.
Aðspurður segist Ólafur líklega
ekki geta talist meðlimur GusGus
fjöllistahópsins, að minnsta kosti ekki
enn sem komið er.
„En okkur fannst þetta að vísu svo
skemmtilegt að það var rætt um að
Klaus færi jafnvel á túr með sveitinni.
Hann hefði ábyggilega gaman af því,
blessaður.“
Í Tankinum á Flateyri
„Allt sem Klaus segir í þessum
myndskeiðum stendur, þetta er engin
lygi,“ segir Stephan Stephensen, bet-
ur þekktur sem President Bongo, um
karakterinn. „Hann er að fara að
breyta hljómsveitinni, og bjarga
henni úr þessari tilvistarkreppu sem
við erum í þessa dagana. Hann þarf
að finna handa okkur nýjan stíl og
hressa aðeins upp á gamlingjana,“
segir hann í léttum dúr.
Eins og margir eflaust vita nýtur
GusGus töluverðra vinsælda í Þýska-
landi, og því engin tilviljun að stílist-
inn komi þaðan. „Við höfum fært nán-
ast alla okkar starfsemi frá bæði Los
Angeles og London til Þýskalands.
Og vissulega þykir okkur gott að vera
í Þýskalandi og þess vegna er Klaus
ættaður þaðan. En hann er reyndar
búinn að vera víðar, til dæmis í Sví-
þjóð,“ útskýrir Stephan sem var í lest
á leið til London þegar blaðamaður
náði tali af honum. Þar var hann að
spila í teiti sem haldið var í gærkvöldi
í tilefni af útkomu bókar Charlies
Strands, Project: Iceland.
Fimmta hljóðversplata GusGus er
væntanleg innan skamms, en sveitin
hefur verið dugleg við að spila efni
plötunnar á tónleikum að und-
anförnu. „Við erum að fara í upp-
tökuver í lok mánaðar og ætlum að
taka upp í Tankinum á Flateyri. Síð-
an verðum við með svokallaða „show-
case“ tónleika í Berlín hinn 10. des-
ember þar sem við bjóðum plötuna
út. Ein tíu til tólf plötufyrirtæki ætla
að sjá og heyra, og sjá hvort áhugi sé
fyrir samstarfi,“ segir Stephan.
Aðspurður segir hann að nýja plat-
an verði líklega ekki eins „upbeat“ og
sú síðasta – hin frábæra Forever.
„Það er þessi átt sem við erum að
fara í, svona pínu meira „dub“, þannig
að það má kannski segja að hún verði
aðeins rólegri. En það er ekki búið að
taka hana upp þannig að við vitum
ekki hvað gerist fyrr en „the fat lady
sings“.“
GusGus til sölu
Þýski stílistinn Klaus Sverrisson kallaður til Nýjasta plata sveitarinnar
boðin út á svokölluðum „showcase“-tónleikum í Berlín hinn 10. desember
Smekklegir Þeir Biggi, Daníel og Stebbi hafa greinilega notið leiðsagnar stílista að undanförnu.
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
SÍÐASTLIÐINN föstudag fékk
rithöfundurinn Óttar M. Norð-
fjörð í hendurnar bók sína Tíu
litlir bankastrákar aðeins tveim-
ur vikum eftir að hann fékk
hugmyndina að henni. Um er að
ræða skopstælingu af hinni
frægu barnagælu Tíu litlir
negrastrákar eftir Septimus
Winner þar sem hinum ólukku-
legu söguhetjum er skipt út fyr-
ir persónur úr íslensku við-
skiptalífi. Þar má sjá
Björgólfsfeðgana, Davíð Odds-
son, Jón Ásgeir og fleiri heltast
úr „banka“-lestinni einn af öðr-
um, yfirleitt sökum eigin hugs-
unarleysis.
„Þetta er stysta fæðing sem
ég hef tekið þátt í,“ segir Óttar.
„Það var alveg ótrúlegt að fá
hana í hendurnar tveimur vikum
eftir að ég fékk hugmyndina.
Það tók mig svona tvo til þrjá
daga að gera bókina og svo var
hún send beint í umbrot og
prentun.“
Í fyrra gaf Óttar út bókina
Jón Ásgeir og afmælisveislan og
núna fannst honum hann vera
knúinn til þess að gera eitthvað
meira vegna ástandsins en bara
að mæta á mótmælafundina á
Austurvelli. „Mér fannst það
nánast vera siðferðisleg skylda
mín að gera eitthvað. Eftir að ég
komst yfir það sjokk að heyra
að Ísland væri orðið gjaldþrota
var ég stanslaust að hugsa um
hvað ég gæti gert. Ég vissi að
ég gæti ekki lifað með sjálfum
mér nema ég gerði eitthvað. Ég
er því afskaplega glaður að hafa
fengið þessa hugmynd og svo
fyrir að hafa framkvæmt hana.
Mér líður vel með það,“ segir
Óttar er mætir eflaust á Aust-
urvöll næsta laugardag.
Vögguvísur fyrir börn kreppunnar
Tíu litlir bankastrákar Björgólfur eldri fær að kenna á því hjá Guði.
Óttar M. Norðfjörð gefur út bók á mettíma
Polydistortion (1997)
This Is Normal (1999)
Attention (2002)
Forever (2007)
Aðrar plötur:
Gus Gus (1995)
Gus Gus vs. T-World (2000)
Mixed Live at Sirkus, Reykjavik
(2003)
Hljóðversplötur GusGus
Þjóðverjinn Klaus Sverrisson.