Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 46

Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 ÞEGAR Terry Darlington og eiginkona hans fóru á eftirlaun létu þau gamlan draum rætast og keyptu sér bát þeirrar gerðar sem tíðkast í skipa- skurðum í Bretlandi: grunnristur, ríflega tveir metrar á breidd og tæpir nítján metrar á lengd. Slíkar skektur duga vel í siglingum á þröngum skurðum, en þau ætluðu sér stærri hluti eins og lýst er í bókinni Narrow Dog to Carcas- sonne. Í bókinni segir Terry Darlington frá þeirri hugdettu þeirra hjóna að sigla eins og leið lá frá Wales til Carcassonne í sunn- anverðu Frakklandi – 1.600 sjómílna sigl- ingu og þar á meðal yfir Ermarsund sem enginn hefði talið að væri unnt á viðlíka fleyi. Allt gekk þó að óskum, þó stundum hafi þau verið hætt komin eins og rakið er í bókinni og þá ekki bara á Ermarsundi, heldur eru franskir skipaskurðir öllu meiri um sig en þeir bresku. Það gefur augaleið að slík og þvílík sigl- ing tekur langan tíma, ekki síst hjá bát sem sigldi að jafnaði ekki nema 6 hnúta á klukkutíma, um 11 kílómetra hraða, og þeg- ar svo hægt er farið getur varla verið frá miklu að segja. Darlington kemst þó vel frá frásögninni, segir frá í sprettum og svo kímilega að bókin er hin besta skemmtun. Ekki er síst skemmtilegt að fá aðra mynd af Frakklandi en maður hefur áður séð, því fólkið sem þau hitta á langri siglingu sinni suður eftir landinu er upp til hópa skemmti- legir furðufuglar. Þess má geta að Darlington-hjónin héldu í aðra siglingu að þessari lokinni, sigldu frá Virginíuríki í Bandaríkjunum til Mexíkó- flóa og sendu nýverið frá sér bók um þá frægðarför. Siglt suðreftir Narrow Dog to Carcassonne eftir Terry Darling- ton. Bantan Books gefur út. 423 síðna kilja. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Gate House – Nelson DeMille 2. Extreme Measures – Vince Flynn 3. The Brass Verdict – Michael Connelly 4. The Lucky One – Nicholas Sparks 5. A Good Woman – Danielle Steel 6. The Story of Edgar Sawtelle – David Wroblewski 7. Bones – Jonathan Kellerman 8. Rough Weather – Robert B. Par- ker 9. Testimony – Anita Shreve 10. A Lion Among Men – Gregory Maguire. New York Times 1. The White Tiger – Aravind Adiga 2. The Shack William P. Young 3. The Gift – Cecelia Ahern 4. The Book Thief – Markus Zu- sak 5. This Year it Will be Different – Maeve Binchy 6. Azincourt – Bernard Cornwell 7. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 8. Brute Force Andy McNab 9. The Business – Martina Cole 10. The Almost Moon – Alice Se- bold Waterstone’s 1. World Without End - Ken Fol- lett 2. Remember Me - Sophie Kin- sella 3. Timebomb - Gerald Seymour 4. Thread of Fear -Laura Griffin 5. Quickie - James Patterson 6. Compulsion - Jonathan Kell- erman 7. Damnation Falls - Edward Wright 8. Exit Ghost - Philip Roth 9. Girl With the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 10. Amazing Grace - Danielle Steel Eymundsson Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Hinrik VIII. Englandskonungur hefur löngum vakið áhuga manna enda átti hann forvitnilega ævi og stormasamt einkalíf sem kallar á áhugaverða umfjöllun. Elísabet 1., dóttir hans, hefur sömuleiðis vak- ið gríðarlegan áhuga enda af- burðamanneskja sem gerði Eng- land að stórveldi. Eldri dóttir Hinriks, Blóð-María, hefur fengið sinn skerf af athygli og þá helst vegna ofsókna sinna gegn mót- mælendum. Nokkuð hljótt hefur hins vegar verið um einkason Hin- riks, Játvarð VI. og kannski ekki nema von því hann lést einungis 15 ára gamall. Nú er komin út ævisaga prins- ins sem varð konungur níu ára að aldri og ríkti í sex ár. Bókin heitir Edward VI - The Lost King of England og er eftir Chris Skid- more. Í inngangi segist hann ár- um saman hafa verið heillaður af sögu Játvarðs. Kornungur konungur Fæðing Játvarðs árið 1537 var kannski mesti hamingjudagur í lífi föður hans, Hinriks 8., sem hafði beðið í 27 ár eftir því að eignast karlkyns erfingja. Tólf dögum eft- ir fæðingu Játvarðs lést móðir hans, Jane Seymour. Samtímamenn litu á Játvarð sem undrabarn. Hann talaði latínu og frönsku reiprennandi, skrifaði í laumi hugleiðingar á grísku sem hann faldi fyrir aðstoðarmönnum sínum og sökkti sér niður í guð- fræði mótmælendatrúar og hug- myndafræði húmanista. Hann las mikið og átti gott bókasafn. Á valdatíma hans tók enska kirkjan á sig varanlegt mót og prentfrelsi jókst. Þar sem konungur var barn réðu ráðgjafar hans ríkinu og milli þeirra ríkti tryllingsleg valdabar- átta. Móðurbróðir Játvarðs und- irbjó samsæri gegn hinum unga konungi og var tekinn af lífi þegar upp komst. Annar móðurbróðir hans var sömuleiðis tekinn af lífi. Konungur til fyrirmyndar Ítalskur læknir og stjörnufræð- ingur sem hitti Játvarð lýsti hon- um sem myndarlegum en sagði hann líta út fyrir að sýnast eldri en hann væri og að hann bæri sig eins og gamall maður. Hann væri afar greindur og framkoma hans væri öll til fyrirmyndar. Í aprílmánuði 1553 veiktist Ját- varður. Læknar voru ráðalausir. Játvarður ákvað á dánarbeði að tilnefna eftirmann sinn. Með réttu hefði krúnan átt að fara til elstu hálfsystur hans, Maríu. En hún var öfgafullur kaþólikki og Ját- varður mátti ekki til þess hugsa að hún tæki við ríkinu. Hann horfði einnig framhjá Elísabetu, yngri hálfsystur sinni, og valdi frænku sína Jane Grey sem arftaka sinn en hún var mótmælandi. Játvarður lést í júlí 1553 og varð öllum harmdauði því miklar vonir höfðu verið bundnar við hann. Bók um son Hinriks VIII. Gleymdur konungur Játvarður VI. Konungurinn sem dó fimmtán ára gamall. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! ENGIN MISKUN. SÝND Í SMÁRABÍÓI 650 kr. fyrir fullorðna - 550 kr. fyrir börn - H.J., MBL - Ó.H.T., RÁS 2 SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára My best friend’s girl kl. 10:15 B.i. 14 ára Max Payne kl. 10:15 B.i. 16 ára Burn after reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára The House Bunny kl. 5:50 - 8 LEYFÐ 650k r. Quantum of Solace kl. 6 - 8:30 - 11 B.i. 12 ára Where in the world is ... kl. 6 - 8 B.i. 10 ára The Women kl. 5:30 LEYFÐ Reykjavík Rotterdam kl. 5:40 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Burn after reading kl. 10:15 B.i. 16 ára Max Payne kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára Quantum of Solace kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12 ára Quarantine kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI “…MEÐ BETRI SPENNU- MYNDUM ÁRSINS!” -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS ,,FRÁBÆR VIÐBÓT VIÐ LENGSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRATÍMA OG GEFUR NÝLEGUM HASARMYNDUM EKKERT EFTIR.” - V.J.V., -TOPP5.IS/FBL “BESTA SPENNUMYND ÁRSINS HINGAÐTIL.” - D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM “STANSLAUS KEYRSLA FRÁ UPPHAFITIL ENDA” -S.V., MBL “FYRSTA FLOKKS BOND-MYND” - Þ.Þ., DV - D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS - V.J.V., -TOPP5.IS/FBL -S.V., MBL - Þ.Þ., DV TOPPMYNDIN 25.000 MANNS Á STÆRSTA OPNUN ÁRSINS! NÆST STÆRSTTOPPMYNDIN Á ÍSLANDI! 25.000 MANNS Á 5 DÖGUM! STÆRSTA OPNUN ÁRSINS! NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI! - S.V., MBL - Þ.Þ., DV -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS 650k r. 650k r. FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE 650k r. 650k r.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.