Skinfaxi - 01.09.1926, Síða 22
118
SKINFAXI
lönd sin opin fyrir siglingum og verslun við aðrar þjóð-
ir, innflutningi fólks frá löndum annara þjóðréttar-
ríkja og að borgurum erlendra rikja sé i aðalatriðum
veitt jafnrétti við innfædda menn.
]?ar sem landslög hvers lands verða að vikja fyrir
þjóðarétti, ef þau koma í bága við hann, hafa Danir
orðið að fara bónarveg til ýmsra ríkja, er málið skifti,
og biðja þau að lofa sér að hafa Grænland lokað. Is-
land bafa þeir annaðhvort ekki þorað að biðja eða ckki
hugkvæmst það, eða ekki virt ísland svo mikils að biðja
þess. Holland hafa þeir þar á móti margoft beðið um
leyfi en fengið neilandi svar.
Verði íslenskir borgarar fyrir áreitni af hálfu Dana
á Grænlandi, er íslensku stjórninni heimilt að leggja
hald á eða gera upptækar danskar eignir til lúkningar
skaðabótakröfunnar á Dani. Og vísa eg þeim sem frelc-
ari fræðslu æskja um þetta, til þjóðaréttarins.
Um réttarstöðu vora á Grænlandi er þetta að segja i
sem fæstum orðum, ef Grænland væri danskt land:
1. Eftir gildandi dönskum lögum fram til 1925 er
öllum dönskum rikisborgurum heimil l'iskiveiði í land-
helgi Grænlands og allskonar atvinnurekstur á Græn-
landi.
2. I 6. gr. sambandslaganna er islenska ríkinu lieit-
inn sami rctlur fyrir alla sína borgara og það sérstak-
lega tekið fram um fiskirétt íslendinga við Grænland
að hann sé hinn sami og Grænlendinga á Grænlandi.
3. Nærfell öll verslun og það að flytja sig inn í land-
ið er bannað með dönskum landslögum. þetta bann
gildir fyrir alla danska þegna og sömuleiðis fyrir þegna
þeirra rikja, er gefið hafa Dönum leyfi til áð bafa ein-
okunai'verslun og lokun á Grænlandi.
4. Island er meðal þeirra rikja, sem ekki hafa gel'ið
þetta lcyfi, og verslun á Grænlandi og flutningur inn í
Grænland er því frjáls og heimill fyrir borgara þess.
Með fullveldisviðurkenningunnil918befir Danmörk eins