Skinfaxi - 01.09.1926, Síða 46
142
SKINFAXI
fórnfýsi hennar og hjúkrunarlund, en nepja níðs og
háðs leika um kennarann og ungu stúlkuna, líka frá
bömunum; hugsunarháttur þcirra var ávöxtur tíðar-
andans. — Múrveggir spillingar reyndust bæjarfógeta-
dóttirinni ókleifir, en afskekt og fátækt sveitakot veitti
henni viðráðanlegt verkefni.
Ekki leikur það á tveim tungum, að umbótaþrá og
samúð með smælingjunum hefir knúð höf. sögunnar
til ritstarfa, en honum fer líkt og lækni, er þekkir
meinsemdir, en kann ekki að gefa ráð er að gagni megi
koma; höf. skortir skáldleg tök og ritsnild hans skeik-
ar, enda er yrkisefnið mikið og margþætt. J?ó eru sum-
ir kaflar sögunnar snjallir, einkum þar sem rætt er um
hugsunarhátt og athafnir barna.
Ástir.
Tvær sögur eftir Stanley prest Melax. Fyrri sagan er
liðleg en orðmörg lýsing á sveitaþorpi á Norðurlandi.
þ>ar eru fulltrúar dugandi sjómanna og verslunarslæp-
ingja. Mikla alúð leggur liöf. við að lýsa hjali fiskverk-
únar-kvenna, ásta og hjónabandslífi þeirra.— Hin sag-
an gerist í Reykjavík. Höf. fer þar ekki ólaglega af
stað, en virðist í vandræðum með sögulokin. Aðalper-
sóna sögunnar, svallari og oflátungur, úr flokki út-
gerðarmanna, óvirðir ást og hamingju verkamanns
síns. Verkamaðurinn drap hann umsvifalaust og var
sendur í hegningarhúsið og segir ekki meira af lion-
um. L o s n a r því höf. furðu þægilega við þessar sögu-
hetjur sínar. Unnusta útgerðarmannsins er einkenni-
leg persóna. G. B.
Leiðrétting: 1 síðasta hefti, bls. 96, hefir fallið úr á
eftir 5. linu: til Siglufjarðar með Guðmundi frá Mosdal
ritara U. M F. I. og liélt þar fund með honum og.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN