Skinfaxi - 01.10.1936, Side 10
106
SKINFAXI
liátt en þann, að vísa þvi til hinna einstöku félaga.
Lét hún Alþýðusambandinu i té félagaskrá, svo að hún
gæli sent félögunum samskotalista.
Bindindismál.
A samhandsþinginu voru samþykktar eftirl'arandi
ályktanir um hindindismál:
„Þingið skorar á Alþingi og rikisstjórn, að takmaka
til mikilla muna innflutning áfengisvara til landsins."
„Samkvæmt stefnuskrá U.M.F.Í. skorar sambandsþing-
ið alvarlega á öll U.M.F. að vinna rækilega að bind-
indismálum."
„Þingið álítur nauðsynlegt fyrir U.M.F. að hel'ja sam-
starf við þau félög, sem á einhvern hált vinna að hind-
indismálum.
Þó vill þingið alveg sérstaklega skora á U.M.F. að
starfa að þessum málum með Sambandi bindindisfélaga
i skólum og taka virkan þátt í baráttudegi sambands-
ins 1. febrúar ár hvert.“
Fyrsta samþykktin hefir verið send ríkisstjórninni.
Næstu áskorun er hér með skilað til allra félagsmanna
U. M. F. í. — Um þriðju samþykktina skal tekið fram,
að þar sem tillögumaðurinn, Daníel Ágústínusson, er
bæði samhandsritari U. M. F. í. og forseti Samhands
bindindisfélaga i skólum, er vafalausl, að samvinna
þeirra tveggja samhanda er tryggð. Enda hlýtur ung-
mennafélögum að vera sérstakt ánægjuefni að vinna
tneð þeim myndarlega æskulýðsfélagsskap.
Íþróttir.
Hér fara á eftir samþvkktir sambandsþings um
íþróttamál:
„Þingið telur rétt, að sambandið styrki þau félög eða
héraðss'ambönd til íþróttastarfsemi, sem sýna sérstakan
áhuga í þeim efnum og hafa erfiðar efnahagslegar ástæð-
ur, — þó því aðeins, að fjárhagur U.M.F.Í. leyfi.