Skinfaxi - 01.10.1936, Side 18
114
SKINFAXI
og framlög þeirra miklu minni en áætlað hefði verið. Krafð-
ist nefndin þess, að vonum, að sambandsstjórn tæki ábyrgð
á þeim halla, sem af þessu stafaði. Sambandssjóður var þá
tómur, en U.M.S.K. lánaði sambandsstjórn þær 400 kr., sem
fram þurfti að leggja. Síðar veitti U.M.S.K. 100 kr. af lán-
inu sem framlag í heimsboðssjóð, og höfðu þó öll félögin
i sambandinu áður gefið í sjóðinn. — Þær kr. 300.00, sem
þá voru eftir, greiddi sambandsstjóri úr eigin sjóði, eftir að
reikningsskil þessi voru gerð. Lækka skuldir sambandsins á
framanskráðum skuldalista sem því svarar.
Um gjaldaliðina: 4. Sambandsþingið 1933 ákvað laun starfs-
manns (A. S.) kr. 1200.00 á ári. En starfsmaðurinn lækkaði
þau sjálfur um næstu áramót i kr. 800.00. Eins og niðurstaða
reikningsins sýnir, hefir upphæð þessi raunverulega aldrei ver-
ið greidd starfsmanninum, því að við reikningsskilin átti hann
hjá sambandinu kr. 1561,38. (Sjá skuldalistann). Mun sam-
bandið eigi verða krafið um greiðslu á þeirri skuld. .— 5. Þor-
steini Jósefssyni var veittur styrkur þessi til utanfarar, eftir
samþykkt sambandsþings 1933. — 6. „Ýmsir styrkir" eru til
einstakra félaga til íþrótta, skógræktar o. fl., og námsstyrkir
i Haulcadalsskóla. — 9. er til jafnaðar 4. tekjulið, sem skýrð-
ur er hér að framan.
Um áritun endurskoðenda. Efnahagsyfirlit gat ekki fylgt
reikningsyfirlitinu frá sambandsstjórn, vegna þess, að gjald-
kerinn frá 1930—’33 hafði enn ekki skilað reikbingum þess
tímabils, þegar þessum reikningum var skilað til endurskoð-
enda. Gömlu reikningsskilin komu fyrst á sambandsþingið í
ár og voru endurskoðuð þar. En án þeirra var ekki hægt
að gera rétt efnhagsyfirlit.
Um skuldalistann. Þar sem telja má víst, að skuldin við
A. S. verði aldrei greidd, og A. S. hefir greitt skuldina við
U.M.S.K., hvíla í raun og veru ekki nema kr. 2449.74 skuldir
á U.M.F.Í. Er það að vísu meira en nóg skuldabyrði. En vert
er að athuga það vel, að sambandið mundi ekkert skulda, og
það hefði ekki þurft að starfa að nokkru leyti á kostnað eins
fátæks einstaklings, ef sambandsfélögin hefðu gert skyldu sína
við það og greitt því skilvíslega lögboðinn skatt.
Kemur nú ljótasti hluti reikningsskilanna. En það er yfirlit
um skil sambandsfélaganna við U.M.F.f. 1933—’36:
31 fél. hafa ekkert greitt á tímabilinu.
3 — skulda fyrir 3 ár.
9 — — — 2 —
4 — — — 1 —