Skinfaxi - 01.10.1936, Qupperneq 35
SKINFAXI
131
En í Austurvegu
oft mun hugur leita,
til Vermlands víðu skóga
og Vermlands fríðu sveita.
Landnám og landnámsmenn.
(Hugleiðing).
Eftir prófessor Richard Beck.
Atburðaríkur dagur er að kveldi kominn; dagur,
sem verður mér lengi minnisstæður. Eg liefi verið við-
staddur hálf'rar aldar afrnæli Þingvalla og Lögbergs-
byggða í Saskatchewan (Kanada) og tekið nokkurn
])átt í þeim merkilegu hátíðahöldum, sem byggðabúar
höfðu undirbúið, með myndarskap og smekkvísi, til
þess að minnast þessara tímamóta í sögu sinni.
Mikill mannfjöldi, innan byggða og utan, hafði safn-
azt saman í þeim lilgangi, að lieiðra íslenzku frum-
hyggjana, sem stofnuðu byggðalög þessi fyrir fimmtiu
árum síðan; bæði þá, sem livílast í mjúkri sæng fóst-
urmoldarinnar, og hina, sem enn eru lifandi og slarf-
andi. Hátíðardagurinn var sviphreinn, í samræmi við
skapferli þeirra útsæknu Islendinga, sem hér námu
nýtt land, ruddu mörkina og lögðu auðnina undir
jtlóg, og áttu jafnaðarlega i ríkum mæli þá heiðríkju
Iiugans, sem einkennt hefir sann-norræna menn.
í skrúðgöngu dagsins kom fylking frumherjanna á
þessum slóðum, sem nú er að vonum orðin æði þunn-
skipuð, í vagni í drekaliki, eins og sæmdi niðjum binna
fornu víkinga.
Lærdómsríkt var það, eigi sízt frá þjóðmenningar-
legu og þjóðernislegu sjónarmiði, að virða fyrir sér
9*