Skinfaxi - 01.10.1936, Síða 51
SKINFAXI
147
Bygging heimavistarskóla, sem alstaðar komi í stað
farskólanna, er eina sjáanlega úrræðið til endurbóta.
Heimavistarbarnaskólar liafa þegar verið byggðir
í nokkrum sveitum, og verður eigi annað sagt, en að
sú reynsla, sem þegar er fengin, spái mjög góðu um
framtíð þeirra.
Aðalerfiðleikarnir eru fólgnir í því, að afla fjár til
byggingar skólabúsa. En ástæðulaust er fyrir þjóð-
ina, að láta sér það svo mjög í augum vaxa, enda mun
það sannast, að jafnskjótt og almennur áhugi vaknar
á málinu, þá mun ráð renna undan rifi hverju.
Ungmennafélögin ættu nú að láta þelta mikla menn-
ingarmál til sín taka. Myndu röggsamlegar frain-
kvæmdir vissulega verða félögunum til sóma, en al
þýðumenningunni í landinu til ómetanlegs gagns.
Verkefni félaganna gætu t. d. verið eftirfarandi:
Að vekja ahnennan áhuga í sveitinni á slcólabygg-
ingu og að fá opinbera samþykkt um áætlun í því efni.
Að fá stofnaðan byggingarsjóð samkvæmt heimild í
fræðslulögunum.
Að leita samvinnu við annan eða aðra hreppa um
skólabyggingu, þar sem það þykir henta.
Að gera opinbera kröfu til alþingismanns kjördæm-
isins, um að hann verði þvi fylgjandi, að framlag rík-
isins til skólabygginga verði stórum aukið frá því,
sem er.
Að finna aðrar fjársöfnunarleiðir.
Að leggja fram sjálfboðavinnu við bygginguna.
Að beita áhrifum i þá átt, að ákveðnum auðlindum,
eins og t. d. happdrættiságóða, verði í náinni framtið
varið til skólabygginga.
Eg læt liér staðar numið að sinni, en skora á alla
ungmennafélaga að taka höndum saman um þetta mál
og bera það fram til sigurs.
10*