Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 4
4
SKINFAXI
deilda karla og kvenna starfa undirdeildir, sem ef til
vill munu verða sjálfstæðar innan tíðar, s. s. hand-
knattleiksflokkur karla og kvenna, fimleikaflokkar o.
s. frv.
— Ég heyri, að þið byggið þarna á þjóðlegum grund-
velli og hafið bæði glímu- og vikivakaflokk. Hvernig
liefur reynslan orðið á áhuga unga fólksins á þess-
um greinum?
‘ — Prj7ðileg. Áhuginn er mjög mikill. Glímuflokkur-
inn hefur t. d. alltaf stai'fað með miklum blóma undir
handleiðslu kennara síns Lárusar Salómonssonar.
Sendi félagið glímuflokk til Noregs vorið 1947,
eins og lesendum Skinfaxa er kunnugt. Drengim-
ir byrjuðu að æfa fyrir fjórum árum, þá 14 ára
sumir, og nú eigum við sjálfan handhafa Ái-manns-
skjaldarins, Ármann J. Lámsson, sem er aðeins 17
ára. En þótt hann hafi orðið hlutskarpastur í þetta
sinn, eigum við marga fleiri, sem líka eru hlutgengir.
1 glímuflokknum munu nú æfa milli 20—30 piltar, og
nýtt námskeið er að hefjast þessa dagana. — Um
vikivakaflokkinn er það að segja, að starfsemi hans
hefur verið tvenns konar. Annars vegar er starfsemi
sýningarflokksins, sem beinlínis æfir vikivaka til að
sýna á skemmtunum, en hins vegar eru almenn viki-
vakanámskeið og hefur oft verið afar fjölmennt á þeim
æfingum. Kennari flokksins er ungfrú Júlía Helga-
dóttir.
— En hvað um frjálsu íþróttirnar?
— Iþróttastarfsemin er sífellt að aukast. Var byrjað
með mjög ungt fólk, og því ekki við miklu að búast
í upphafi, en þegar þetta fólk eldist og vex fiskur um
lirygg, færist það í aukana, og nú þegar eru frjáls-
íþróttirnar komnar á svo góðan rekspöl, að þær gefa
góða von um mikinn árangur í náinni framtíð.
— Þessi starfsemi er auðvitað bæði sumar og vetur.
— Já, íþróttaæfingar fara fram sumar og vetur. 1