Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1952, Page 2

Skinfaxi - 01.11.1952, Page 2
98 SKINFAXI HINN 25. janúar síðastl. andaðist jijrsti forseti ís- lenzka lýðveldisins, herra Sveinn Björnsson. Hafði hann verið forseti þjóðarinnar frá stofnun lýðveld- isins W'i'i og ríkisstjóri áður. Hann mótaði þær venj- ur, hefð og siði, er ríkja skgldu um æðsta embætti þjóðarinnar. Mun í engu ofmælt, að þar búi lengi og giftusamlega að fgrstu gerð. En i því speglast í raun- inni sá sannleiki, að þjóðin var heilladrjúg í vali hins fgrsta innlenda þjóðhöfðingja. Varð hann þjóðinni allri mikill liarmdauði. Hinn 29. júní gekk þjóðin að kjörborðinu og valdi sér nýjan forseta. Kaus hún Ásgeir Ásgeirsson. Og 1. ágúst var hinn nýkjörni forseti settur í embætti með hátíðlegri athöfn í dómkirkju og alþingishúsi. Hinn nýi forseti, herra Ásgeir Ásgeirsson, hefur í þrjá áratugi unnið margvísleg trúnaðarstörf fgrir land og þjóð. Alþingismaður var hann hartnær þrjá- tíu ár, forsælis- og fjármálaráðherra um skeið, fræðslumálastjóri og bankastjóri, auk margra ann- arra starfa. Á gngri árum vann hann algenga vinnu til sjávar og sveita jafnhliða námi sínu, en hann er guðfræðingur að menntun. Kvæntur er hann Dóru Þorhallsdóttur er með sæmd mun skipa sætið við hlið bónda síns. Skinfaxi árnar hinum nýja forseta Islands, herra Ásgeiri Ásgeirssgni, og þeim forsetahjónum báiðum, allra heilla í framtíðinni. En í þeim árnaðaróskum eru í rauninni fólgnar óskir og vonir til handa þjóð- inni allri. Á erfiðum og vandasömum timurn er þörf samheldni og samtakavilja. Gæfa þjóðarinnar á við- sjálum tímum og vandrötuðum leiðum er undir því komin, að stjórnvöld landsins og allur almenningur, æðri sem lægri, einstaklingur og heild, vinni samait undir hinu gamla kjörorði ungmennafélaganna, sem áivallt skgldi vera öllum sönnum íslendingum jafn- nýtt: íslandi allt.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.