Skinfaxi - 01.11.1952, Side 18
114
SKINFAXI
mest gildi, og U.M.F.l. hefur lagt höfuðáherzlu á í
undirbúningi þeirra. Keppikeflið er, að landsmótin verði
íþrótta- og kynningarhátíð æskunnar í landinu, þar seni
unga fólkið frá hinum fjarlægustu stöðum hittist á
þriggja ára fresti og keppi saman í drengilegum leilc.
Til að undirstrika Jiessa skoðun hefur U.M.F.l. látið gera
viðurkenningarskjöl, sem send verða öllum þeim, er á
einhvern hátt tóku þátt í Eiðamótinu.
Landsmótið hefst.
Iþróttafólkið var flest komið til Eiða föstudags-
kvöldið 4. júli. Þá var skipað i riðla og gengið frá
öðrum undirbúningi. Á laugardagsmorgunin kl. 10
hól'st mótið með setningarræðu sr. Eiríks J. Eiriks-
sonar, samhandsstjóra U.M.F.I. Flutti hann ræðu sina
af svölum heimavistarhússins. Var þá logn, sólskin og
24 stiga hiti. Síðan var farin hópganga út á íþrótla-
völlinn undir íslenzka fánanum. Gengu íþróttamenn og
gestir frá hverju sambandi saman. Þegar komið var á
íþróttavöllinn, voru fánar dregnir að hún meðfram
honum, cn mannfjöldinn söng óð til fánans og ælt~
jarðarinnar undir stjórn Þórarins Þórarinssonar skóla-
stjóra á Eiðum, en hann stjómaði jafnan almennum
söng af mikilli prýði. Þann dag var svo keppt í íþrótt-
um til kl. 7.
Um kvöldið var haldinn almennur ungmennafélags-
fundur liti á íþróttavellinum. Umræðuefni var: Menn-
ingarlíf sveitanna. Fundarstjóri var Skúli Þorsteins-
son skólastjóri. Þessir tóku til máls: Jón F. Hjartar,
Flateyri, Sigurður Brynjólfsson, Keflavík, Halldór
Kristjánsson, Kirkjubóli, Ingi Tryggvason, Laugum,.
Eyþór Einarsson, Kaldaðarnesi, Helgi Símonarson,
Þverá í Svarfaðardal og fundarstjórinn. Ræðurnar voru
allar stuttar og snjallar, enda fengu þær hinar beztu
undirtektir fundarmanna. Lögðu flestir ræðumenn á-