Skinfaxi - 01.11.1952, Qupperneq 19
SKINFAXI
1 15
Gestur Guðmundsson
kastar kúlunni.
herzlu á hinn dýrmæta menningararf sveitanna, setn
þyrfti að varðveita og efla með ýnisu móti.
Að fundi loknum hófst dans á pallinum. Á saina
tíma fór frarn kvikmyndasýning heima í fimleikasai
skólans. Gengið var til hvíldar eftir miðnætti.
Sunnudagurinn 6. júlí.
Lúðrasveit Akureyrar hóf leik sinn heinta við skólann
á níunda tímanum. Vöknuðu þá þeir af værum blundi,
er ekki voru konmir á kreik áður. Kl. 9 var haldið út á
íþróttavöllinn i hópgöngu og gekk lúðrasveitin fyrir.
Þar fór fram fánahylling, og síðan hófst íþróttakeppni,
er stóð til hádegis.
Kl. 13,30 hófst hátíðardagskrá mótsins með guðs-
þjónustu, sem sr. Eiríkur ,!. Eiríksson flutti, en lúðra-
sveitin lék sálmalög á undan og eftir. Síðan fluttu
ræður: Skúli Þorsteinsson, formaður U.I.A., Hermaim
Jónasson, landhúnaðarráðherra, og Þórarinn Þórarins-
son, skólastjóri á Eiðum. Ræðunum var öllum vel fagn-
að, enda voru þær hinar snjöllustu. Voru j)an- teknar
upp á stálþráð og útvarpað nokkru eftir mótið. Ræð-
urnar munu því mörgum kunnar. Þá las Guðný Þórðar-
dóttir, Neskaupstað, upp þrjú ættjarðarljóð.
Ræðustólnum var komið fyrir á sýningarpallinum,
sem settur var upp við áhorfendabekkina á íþrótta-
vellinum. Þar voru og hátalarar, svo ágætlega heyrðist
8*