Skinfaxi - 01.11.1952, Page 20
116
SKINFAXI
um allt áhorfendasvæðið og víðar. Að loknum ræðum
sungu samkór Neskaupsstaðar, stjórnandi Magnús
Guðmundsson, og samkórinn Bjarmi á Seyðisfirði undir
stjórn Steins Stefánssonar.
Þá hófust íþrótta- og danssýningar. Þessir flokkar
sýndu: Iþróttafélagið Huginn, Seyðisfirði, undir stjórn
Björns Jónssonar frá Firði. — Flokkurinn notaði m.a.
tvíslá og svifrá, enda er Björn mjög kunnur fyrir æf-
ingar sinar i þeim greinum. Vikivakaflokkur frá Umf.
Austra á Eskifirði, undir stjórn Einarínu Guðmunds-
dóttur. — Voru það eingöngu stúlkur, rúmlega 20 að
tölu. Iþróttakennaraskóli Islands sýndi þjóðdansa og
fimleika undir stjórn Sigriðar Valgeirsdóttur. Að lokum
fór glimukeppnin fram. Lúðrasveit Akureyrar lék af
og til allan daginn undir stjórn Jakobs Tryggvasonar.
Setti hún mjög ánægjulegan svip á mótið. Jafnhliða
þessum sýningum fór fram sundkeppni, og einnig stund-
Frá sundkeppni kvenna.