Skinfaxi - 01.11.1952, Page 21
SKINFAXI
117
íþróttakennaraskólinn hefur sýningu.
um úrslit í einstökum íþróttagreinum og víðavangs-
hlaupið. Fóru þannig stundum fram 3—4 greinar á
mótinu í einu og veitti ekki af, svo öllu yrði lokið á til-
settum tíma. Synt var í útilaug skammt frá íþrótta-
vellinum, er gerð var úr torfi.
Að lokum var dansað. Verðlaunaafhending og mót-
slit fóru fram kl. 23,30 um kvöldið, og í'lutti þá Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi ræðu.
Verðlaun mótsins.
Héraðssambandið Skarphéðinn vann mótið í annað
sinn í röð og hlaut farandskjöld U.M.F.I., sem hóf göngu
sína í Haukadal 1940. Fékk Skarphéðinn 84 stig, en
næst komu Austfirðingar með 46 stig, svo bilið er orðið
býsna breitt og yfirburðir Skarphéðins miklir. Allir
þessir keppendur voru úr Árnessýslu, og um 24 slig
voru unnin af keppendum úr einu félagi, Umf. Hruna-