Skinfaxi - 01.11.1952, Page 28
124
SKINFAXI
þeir allir til leiks. Þeir voru: Halldór Pálsson frá U.M.S.
Eyjafjarðar, Hreinn Ölafsson frá U.M.S. Kjalarnes-
þings, Ivar Stefánsson og Stefán Kristjánsson frá Hér-
aðssambandi S.-Þing.
Gerð var 800—900 metra löng braut og á henni 5
stöðvar, serri keppendur áttu að koma við á, svara þar
spurningum og gera ýrnsar athuganir. Þessu stjórnaðí
vörður, sem var á hverri stöð.
Á þeirri fyrstu var rúmtaksákvörðun. Þar var 35 1
mjólkurbrúsi og spurningin var: Hversu marga litra
tekur brúsinn? Tveir svöruðu rétt. Sá þriðji gizkaði
á 30 1 og sá fjórði á 25 1.
Á annarri stöð átti að gizka á þunga. Þar var 40 kg
brúsi, sem keppendur voru látnir vega. Enginn gat þar
rétt til. Sá fyrsti sagði 25 kg, annar 15 kg, þriðji 45 kg,
fjórði 35 kg.
Á þriðju stöð var þessi spurning: Hve langt er eftir
veginum frá Eiðaskóla til íþróttavallarins ? Rétt svar
er 1100 m. Einn svaraði því rétt. Hinir sögðu 900 m,
600 m og 1500 m.
Á fjórðu stöð átti að flytja skilaboð, sem tekin voru,
þegar lagt var upp í hlaupið. Skilaboðin voru þrjú:
1. Magnús kemur með Esju á íostudag.
2. Segðu Guðmundi að kaupa 2 kg af smjöri.
3. Jarpur er fundinn.
Einn skilaði öllu i’étt. Tveir skiluðu tveimur réttum
og einu röngu. Einn skilaði einni réttri og tveimur
röngum.
Á fimmtu stöð skyldi'svara þremur spurningum. Þær
voru þessar:
1. Hvar var landsmót U.M.F.l. háð 1949?
2. Hvenær var Ungmennafélag Islands stofnað?
3. Á hvaða ný fiskimið sækja íslenzku togararnir nú ?
Síðustu spurningunni svöruðú allir i’étt. Fyrstu