Skinfaxi - 01.11.1952, Qupperneq 33
SIÍINFAXI
129
aði, að iþróttir eru hér enn i hávegum hafðar, og harð-
ir dómar í garð íslenzkra íþróttamanna byggjast á
viðhorfi til fárra einstaklinga, en ekki til hreyfingar-
innar í heild.
Landsmótið á að vera öflug hvatning til Umf. um
land allt. Ekki einungis á sviði íþróttanna, heldur og
í öllum öðrum greinum félagslífsins. Næsta landsmót
U.M.F.Í. verður háð í Vestfirðingafjórðungi eftir þrjú
ár. Það væri ánægjulegt, að íþróttaæskan, sem setli
eftirminnilegan svip á Eiðamótið, mæti þar öll. Ung-
mennafélögin og æskan í landinu hafa vaxið við hvert
landsmót. Enn þarf að sækja fram og gera betur. Bæta
þarf við mikilli ])átttöku i starfsíþróttum og hefja þær
til vegs.
Framtíð þjóðarinnar liyggist að verulegu leyti á því,
að æskan taki með gleði þátt í hagnýtum störfum og
sækist eftir þeim. Tilgangur starfsíþróttanna er að
skapa vinnunni þá virðingu, sem henni ber, og veita
viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Með það í huga
vilja Umf. taka starfsíþróttir upp í félagsstörf sín og
veita þeim brautargengi í félögunum, á héraðsmótum
og landsmótum, og skipa þeim á þann veg við hliðina
á hinum eldri og vinsælu íþróttum. Þannig skal starf-
inu haldið áfram næstu árin í þágu íslenzkrar æsku.
Urslit í einstökiun í|)róliagrciiiiim
Innan sviga fyrsti maður i hverri íþróttagrein á Hvera-
gerðismólinu 1949, þar sem um sambærilegar íþróttagreinar
er að ræða.
Hlaup, 100 m: Guðmundur Vilhjálmsson (A) 10,9 sek., Gisli
Árnason (HS) 11,2 sek., Tómas Lárusson (Iv) 11,3 sek. og
Jónas Ólafsson (V) 11,5 sek. (Guttormur Þormar (A) 12,2 sek.)
Hlaup, 400 m: Magnús Gunnlaugsson (HSK) 54 sek., Skúli
9