Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1952, Page 42

Skinfaxi - 01.11.1952, Page 42
138 SKINFAXI íþróttaiðkanir, svo sem sundlaugum, iþróttavöllum og félags- heimilum. Jafnframt minnti hann á nauðsyn á viðhaldi þess- ara mannvirkja, og að efla bæri hið innra starf félaganna sem mest. íþróttir þyrfti jafnan að æfa vel, enginn skyldi mæta óæfður til keppni. Slíkt gæti leitt til ofreynslu og heilsutjóns. III. Bindindismál. Frsm. Halldór Kristjánsson. Rakti hann, hverja þýðingu bindindisstarfsemin hefur. Ýmis öfl ynnu á móti bindindi, og þyrftu sambandsfélögin að vera vel á verði gegn þeim. Leggja bæri áherzlu á að efla tóbaksbindindi, af siðferði- legum, heilbrigðislegum og fjárhagslegum ástæðum. IV. Skógræktarmál. Frsm. Skúli Þorsteinsson. Minnti hann á, að skógræktin hefði verið eitt af stefnumálum Umf. i upphafi, og þau hefðu skapað áhuga fyrir skógræktarmálum með umræðum á fund- um sinum og skóggræðslu. Ýmsir hefðu litið svo á, að með stofnun Skógræktarfélags íslands væri þessu starfi Umf. lok- ið, en það væri mesti misskilningur. Þeim bæri að vinna kapp- samlega að þeim málum eftir sem áður. Hér væri um að ræða rælctunar- og uppeldisstarf. Ástæða væri til að lögfesta i skóla- löggjöfinni, að börn ættu að vinna að skóggræðslu. Umf. ættu að koma sér upp skógarreitum, hjálpa skólunum til þess að vinna með þeim að skógræktarmálum. V. Félagsmálaskóli. Frsm. Þorsteinn Einarsson. Hann sagði, að íslendinga vant- aði stofnun, sem væri miðdepill félagslífsins. Þar ætti að reka slcóla og námskeið fyrir þá, sem áhuga hafa fyrir félagsstörf- um og veldust til forystu í félagsmálum. Hugmyndin væri, að slík áhugamannadeild starfaði við íþróttakennaraskólann á Laugarvatni. Hefði nokkuð verið að þessum málum unnið, en allmikið vantaði enn á, svo nauðsynlegt fé væri fyrir hendi í brýnasta stofnkostnaðinn. VI. Starfsíþróttir. Frsm. Daniel Ágústínusson. Rakti hann sögu svipaðrar starf- semi hjá Umf. á Norðurlöndum, sem flest hefðu hana með höndum og sum nú um langan tíma. Áhugi fyrir Iienni væri mikill, og hefðu félögin aukið álit sitt og gengi með þvi að taka þessa starfsemi upp. Virðingin fyrir hagnýtum störfum þyrfti að aukast og liljóta viðurkenningu, ekki síður en afrek

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.