Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1952, Side 46

Skinfaxi - 01.11.1952, Side 46
142 SKINFAXI 14. íþróttasamband Suðurnesja. 61. Einar Ingimundarson, Keflavík. 62. Hilmar Þórarinsson, Njarðviltum. 63. SigurSur Brynjólfsson, Keflavík. 64. Sveinn Sæmundsson, Keflavík. 65. ÞorvarSur Arinbjarnarson, Keflavík. 15. Ungmennafélag Reykjavíkur. 66. Anna Friðriksdóttir, Reykjavik. 67. Daníel G. Einarsson — 68. Erla Sigurjónsdóttir — 69. Gylfi Gunnarsson — 70. Margrét Hallgrímsdóttir — Auk þess sátu þingið: Sr. Eiríkur J. Eiríksson sambands- stjóri U.M.F.Í., Daníel Ágústínusson ritari, Gisli Andrésson varasambandsstjóri, Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi og Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Í.S.Í. Tveir fulltrúar ætluðu að koma frá Héraðssambandi A.- Skaftafellssýslu, Úlfljóti, þeir Rafn Eiríksson, Miðskeri og Torfi Steinþórsson, Lundi, en vegna þess að flugveður var óhag- stætt náðu þeir ekki. ALYKTANIR ÞINGSINS. I. Þjóðernismál. „Sambandsþingið lítur svo á, að verndun íslenzks þjóðernis, sjálfstæðis og íslenzkrar menningar, eigi að vera höfuðstarf ungmennafélaganna, og sé þess sérstök þörf nú, þegar er- lendur her dvelur i landinu, og á margan hátt eru tvisýnir timar og viðsjálir. Ungmennafélögin geta þar gegnt forystu- starfi með hollu félagslifi, þar sem fjölbreytni og menningar- bragur er í skemmtanalífi og unga fólkið lætur til sín taka við þroskandi verkefni í anda ungmennafélagshreyfingarinn- ar fyrr og síðar, með aukinni rækt og tryggð við átthagana, gætni i meðferð fjármuna, bindindisstarfscmi, trúmennsku í starfi og starfsáhuga, vinnusemi og óeigingjörnum þegnskap yfirleitt í almannaþágu í nútið og framtið, þar sem þess er alltaf gætt að vinna að framförum og velgengni heildarinnar með tillili til þeirrar staðreyndar, að menntun og starfshæfni einstaklingsins, frelsi hans og manngildi, er æðsta markmið alls félagslífs og samhjálpar. Sambandsþingið bendir á þá staðreynd, að íslendingar eru vopnlaus þjóð, sem getur ekki látið að sér kVeða í styrjöld

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.