Skinfaxi - 01.11.1952, Qupperneq 48
144
SIÍINFAXI
Sambandsþingiö lýsir ánægju sinni yfir því, aö hafizt hef-
ur verið handa um að reisa hús yfir íslenzk handrit, sem
enn eru í vörzlu Dana. Skorar þingið á rikisstjórn íslands
að halda fast fram heimflutningi handritanna og láta það mál
ekki niður falla fyrr en sigri er náð.
Jafnframt hvetur þingið ungmennafélög um land allt að
taka myndarlegan þátt í fjársöfnun þeirri, sem nú fer fram
til húsbyggingar yfir handritin.“
II. Bindindismál.
1. „Sambandsþingið leggur áherzlu á l>að, að bindindis-
málin hljóti að vera eitt af meginatriðum í stefnu og starfi
ungmennafélaganna, þar sem áfengisnautn er ósamræmanleg
þeim manndómsbrag og mannshugsjón, sem er grundvallar-
atriði hreyfingarinnar, auk þess sem áfengisbölið er nú eitt-
hvert mesta mein þjóðarinnar. Heitir þingið því á sérhvert
sambandsfélag að vera stefnu sinni trútt með því að glæða
skilning almennings á hættum þeim og tiðindum, sem áfeng-
isnautn fylgja og standa hvarvetna gegn því, að áfengi sé
haft um hönd, þó að félögunum sé einkum skylt að vanda
eigin samkomur.“
2. „Sambandsþingið ítrekar fyrri ályktanir um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðflutningsbann áfengis og treystir ung-
mennafélögunum til að láta drengilega að sér kveða í bar-
áttu þeirri, sem hlýtur að fara á undan slíkri atkvæða-
greiðslu.“
3. „Sambandsþingið skorar ennfremur á ungmennafélögin
að hefja nú örugga sókn gegn tóbaksnautn og bendir á til
fyrirmyndar þau félög, sem hafa persónulegt tóbaksbindindi
meðal félagsmanna sinna.“
III. Norrænt samstarf.
„Sambandsþingið fagnar samstarfi því, sem tekizt hefur með
U.M.F.I. og Umf. á öðrum Norðurlöndum með sameiginleg-
um æskulýðsmótum. Telur þingið nauðsynlegt, að forystu-
mönnum einstakra héraðssambanda og ungmennafélaga gef-
ist kostur á því að sækja hin norrænu æskulýðsmót ung-
mennafélaganna.
Jafnframt lýsir þingið ánægju sinni yfir þvi, ef hægt væri
að halda slíkt norrænt æskulýðsmót á íslandi árið 1953 eða
1954 og lieitir á íslenzka ungmennafélaga að fjölmenna á það
mót, ef til kemur.“