Skinfaxi - 01.11.1952, Síða 52
148
SKINFAXI
XII. Kosningar.
í stjórn U.M.F.Í. til næstu þriggja ára voru kosnir: Sr. Ei-
rikur J. Eiríksson, Núpi, sambandsstjóri, Daníel Ágústínusson,
Reykjavik, sambandsritari, Daníel G. Einarsson, Reykjavik,
gjaldkeri, Gísli Andrésson, Hálsi, varasambandsstjóri og Grím-
ur NorSdahl, Kópavogi, meðstjórnandi. Varamenn: Stefán Ói.
Jónsson, Reykjavík og Eyþór Einarsson, Kaldaðarnesi. — End-
urskoðendur: Stefán Runólfsson, Reykjavik, og Teitur Guð-
mundsson, Móum, Ivjalarnesi. Til vara: Ármann Pétursson, Ey-
vindarholti og Lárus Halldórsson, Rrúarlandi.
XIII. Þingslit.
Á föstudagskvöldið fóru þingslit fram i myndarlegu samsæti,
sem stjórn U.Í.A. hélt fulltrúunum. Stjórnaði þvi Skúli Þor-
steinsson formaður U.I.A. og flutti hann þar hvatningarræðu
til fulltrúanna. Sr. Eirikur J. Eiríksson þakkaði forustumönn-
um U.I.A. glæsilegar viðtökur á Eiðum, sem fulltrúunum yrði
lengi minnisstæðar. Hin ánægjulega dvöl í þessu fagra héraði
hefði orðið til þess, að þeir kynnu betur að meta fólkið og
landið. Þakkaði síðan starfsmönnum þingsins og fulltrúum
ágætt samstarf. Margar samþykktir hel'ðu hér verið gerðar og
um þær hefði ríkt samhugur, enda nálega allar samþykktirnar
gerðar með samhljóða atkvæðum. Þórarinn Þórarinsson, fyrsti
forseti þingsins, sleit síðan þessu 17. sambandsþingi U.M.F.Í.
með stuttri ræðu og árnaðaróskum til fulltrúanna.
D. Á.
VEGNA ÞRENGSLA
í þessu hefti, biður allmikið efni næsta heftis.
Efnisyfirlit 43. árgangs kenuir og í fyrsta hefti 44.
árgangs. Þvi miður var ekki hægt að liafa þetta hefti
stærra, en það er fjórar og hálf örk i stað fjögurra,
sem tilskilið er.