Skinfaxi - 01.11.1952, Side 61
SKINFAXI
157
HÉRAÐSMÓT U.M.S. AUSTUR-HÚNAVATNSSÝSLU
var haldið á Blönduósi 17. júní. Guðmundur Jónasson, Ási, for-
maður sambandsins, setti mótið og stjórnaði því. Hafsteinn
Pétursson, bóndi Gunnsteinsstöðum, flutti ræðu. Sigfús Hall-
dórsson og Höskuldur Skagfjörð skemmtu með upplestri og
söng. Þá var sýndur listdans.
Ú r s 1 i t :
100 m hlaup: Ægir Einarsson, Umf. Fram, 11,9 sek.
80 m hlaup kvenna: Brynhildur Vilhjálmsdóttir, Umf. Fram,
11,5 sek.
200 m hlaup: Pálmi Jónsson, Umf. Hvöt, 25,6 sek. Hann vann
einnig 400 m hlaupið, 57,4 sek., 1500 m hlaupið, 5:03,0 mín.,
þrístökkið, 12,92 m, hástökkið, 1,60 m og langstökkið, 6,17 m.
3000 m hlaup: Valur Snorrason, Umf. Hvöt, 11:50,8 mín.
Hástökk: Stefán Gunnarsson, Umf. Bólst., 1,50 m.
Stangarstökk: Einar Þorláksson, Umf. Hvöt, 2,52 m.
Kringlukast: Helgi Björnsson, Umf. Fram, 30,75 m.
Kúluvarp: Kristján Ragnarsson, Umf. Fram, 11,10 m.
Spjótkast: Garðar Björnsson, Umf. Fram, 33,82 m.
Boðhlaup, 4X100 m: A-sveit Umf Fram, 52 sek.
Keppendur voru frá fjórum Umf. Mótið vann Umf. Fram á
Skagaströnd með 72 stigum. Umf. Hvöt, Blönduósi, hlaut 63
stig, Umf. Svínavatnshreppa 3 og Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps
2 stig.
Af einstaklingum hlutu flest stig: Pálmi Jónsson 29, Sigurð-
ur Sigurðsson, Umf. Frain, 14 og Ægir Einarsson 11. Veður
var gott.
HÉRAÐSMÓT U.M.S. SKAGAFJARÐAR
var haldið á Sauðárkróki 17. júní. Jafnframt var vígður nýr
íþróttavöllur á Sauðárkróki. Guðjón Inginmndarson, formaður
sambandsins, setti mótið með ræðu og stjórnaði þvi. Aðrir
ræðumenn voru: Sigurður Sigurðsson sýslumaður og Björgvin
Bjarnason bæjarstjóri. Karlakórinn Heimir söng undir stjórn
Jóns Björnssonar, Hafsteinsstöðum.
Ú r s 1 i t :
100 m hlaup: Gísli Blöndai, Umf. Tindastól, 11,8 sek. Hann
vann einnig kringlukastið, 36,05 m.
400 m hlaup: Ólafur Gíslason, Umf. Geisli, 61,2 sek.
1500 m hlaup: Sævar Guðmundsson, Umf. Hjalti, 4:51,3 min.
5000 m hlaup: Stefán Guðmundsson, Umf. Tindastól, 18:38,8
mín.