Skinfaxi - 01.11.1952, Qupperneq 67
SKINFAXI
163
FRA FÉLAGS8TARFINU
Skýrslur ungmennafélaganna 1951 sýna i aðalatriðum svip-
aða starfsemi og undanfarin ár. íþróttaiðkanir og þátttaka
i ýmsum íþróttamótum er fyrirferðarmesta starfsemi þeirra
flestra, þá byggingarframkvæmdir, eins og félagsheimili, sund-
laugar og íþróttavellir, ferðalög, leikstarfsemi og ýmiss konar
samkomuhald, málfundir, söngstarf og mannúðarstarfsemi.
Mörg Umf. unnu myndarlega að glæsilegum sigri í samnor-
rænu sundkeppninni.
Umræðuefnin eru margvísleg. Hér skulu nefnd nokkur dæmi:
Rafmagnsmál. Hýbýlaprýði. Verzlunarmál. Tízkan. Konan og
þjóðfélagið. Hjúskaparmál, Málvöndun. Vöxtun sparifjár. Þér-
anir. Sóttvarna- og heilbrigðismál. Piparsveinaskattur. Heim-
ili og hýbýlaprýði. Ættjarðarást. Hvaða útvarpsefni er
skemmtilegast? Hversvegna giftist unga fólkið siður í sveit-
um en kaupstöðum? Stjórnarskrármálið. Starfsíþróttir. Af
hverju stafar flótti fólksins úr sveitinni? Véltæknin og land-
búnaðurinn. Skáldskaparstefnur. Stefnur i málaralist. Hver
er eftirminnilegasti atburður síðasta árs?
Frá einstökum Umf. er þetta helzt að segja:
Umf. Þróttur, Vatnsleysuströnd, fór skemmtiferð um Norð-
urland til Mývatns. Girti land til trjáræktar og gróðursetti
200 plöntur.
Umf. Bessastaðahrepps, Álftanesi, fór skemmtiferð til Stykk-
ishólms og út í Breiðafjarðareyjar. Þátttakendur 26. Undirbýr
skógræktarstörf.
Umf. Afturelding í Mosfellssveit vinnur að iþróttavelli hjá
Hlégarði.
Umf. Drengur, Kjós, girti landareign sína. Vann 220 dags-
verk í íþróttavelli sínum við Félagsgarð, sem verður hið glæsi-
legasta mannvirki. Félagsblaðið kom út i 4 tbl. Farin skemmti-
ferð að Klaustri með 30 þátttakendum.
Umf. fslendingur, Andakil, minntist 40 ára afmælis með
viðhöfn. Bókasafn félagsins telur 846 hindi.
Umf. Dagrenning, Lundarreykjardal, vann áfram að félags-
íþróttamót Umf. Vals á Mýrum og Umf. Vísis í Suðursveit
var háð að Hrollaugsstöðum i Suðursveit 17. júní. Visir vann
mótið með 23 stigum. Valur hlaut 21 stig.