Skinfaxi - 01.11.1952, Page 69
SKINFAXI
165
kvikmyndavélar. Kostnaður um kr. 200 þús. Gróðursetti trjá-
plöntur í reit félagsins. Hélt 6 kvöldvökur.
Umf. Þorsteinn Svörfuður, Svarfaðardaþ fór skemmtiferð í
Borgarfjörð. Þátttakendur 20. Yngri deild starfar innan fé-
lagsins.
Umf. Skíði, Svarfaðardal, vinnur að skógrækt með ýmsum
hætti og innan félagsins er starfandi skógræktarnefnd.
Bindindisfélagið Dalbúinn, Saurbæjarhreppi, vann að vega-
lagningu í Leynishóla með jarðýtu og haridverkfærum. Þar
er samkomustaðuar félagsins að sumrinu og trjáreitur, sem
árlega er plantað í. Var girðingin umhverfis landið endur-
bætt.
Umf. Efling, Reykjadal, gefur út handritað blað. Vinnur að
trjárækt og á fallegan trjálund.
Umf. Leifur heppni, Kelduhverfi, gefur út handritað blað.
Félagsmenn unnu nokkur dagsverk hjá tveimur ungmenna-
félögum, sem voru að reisa nýbýli.
Umf. Afturelding, Þistilfirði, vinnur að íþróttavallagerð við
samkomuhús sitt að Svalbarði. Endurbætti og veg að húsinu.
Umf. Fram, Hjaltastaðaþinghá, vinnur að byggingu félags-
heimilis og íþróttavallar á sama stað. Félagið á 14 ær, sem
félagsmenn fóðra því að kostnaðarlausu.
Iþróttafélagið Þróttur, Neskaupstað, hefur lagt 30 þús. og
2000 dagsverk i sldðaskálabyggingu.
Umf. Austri, Eskifirði, sýndi Skuggasvein G sinnurn. Rekur
félagsheimili og kvikmyndasýningar.
Umf. Stöðfirðinga lék Tengdamömmu og undirbýr sund-
laugarbyggingu.
Umf. Öræfa gróðtirsetti.800 trjáplöntur í reit sinn að Svína-
felli og girti liann. Á hann að verða minningarreitur látinna
félaga í Umf. Öræfa. Gefur út handritað blað. Ilélt fjórar
samkomur með fjölbreýttum skemmtiatriðum.
Umf. Ósk, Fljótshverfi, á bókasafn með 596 bindum og 1500
m- skógarreit.
Umf. Meðallendinga gróðursetti trjáplöntur við hús félags-
ins að Efri-Ey. Bókasafn félagsins telur 415 bindi.
Umf. Dagsbrún, Austur-Landeyjum, fór skcmmtiferð um
Bórgarfjörð.
Umf. Merkihvoll, Landssveit, vinnur að byggingu félags-
heimilis. Gróðursetti 800 trjáplöntur i reit félagsins.
Umf. Ásahrepps, Holtum, minntist 40 ára afmælis. Vinnur
að byggingu félagsheimilis í Ási. Bókasafn félágsins telur 746
bindi.