Skinfaxi - 01.11.1952, Síða 70
166
SKINFAXI
Umf. Samhygð, Gaulverjabæjarhreppi, vinnur að skógrækt
með ýmsu móti. Hélt sex almennar skemmtanir, auk þess:
Grímu- og hjónadansleiki, spilakvöld, bauð Umf. Biskups-
turigna. Fór skemmtiferð til Vestmannaeyja. Bókasafn félags-
ins telur rúmlega 500 bindi. Gefur út liandritað blað.
Umf. Eyrarbakka fór tveggja daga ferð á Þórsmörk. Ilafði
taflæfingar vikulega i 3 mánuði. Iðkaði söng tvisvar í viku
allan veturinn. Hafði vikivakakennslu. Hélt fjórar almennar
skemmtanir og fjórar kvöldvökur. Fór 28 ferðir í sundstað i
norrænu sundlceppninni. Bókasafn félagsins telur 2000 bindi.
Umf. Selfoss vinnur að byggingu iþróttavallar á Selfossi
og gróðursetti 2100 trjáplöntur við íþróttavöllinn.
Umf. Baldur, Hraungerðishreppi, lélc Almannaróminn þrisvar.
Fór tveggja daga skemmtiferð um Borgarfjörð, til Stykkis-
hólms og Breiðafjarðareyja. Vinnur að því að koma upp bæj-
arskógi í samvinnu við búnaðarfélag og kvenfélag sveitar-
innar. Gróðursetti 800 plöntur á tveimur bæjum. Hefur kar-
töflurækt til ágóða fyrir félagið. Vinnur að byggingu íþrótta-
vallar.
Umf. Skeiðamanna keypti 6800 trjáplöntur og setti i heimil-
istrjáreiti bjá 10 bændum á Skeiðum.
Umf. Gnúpverja gefur út fjölritað blað „Gnúpverjann“. Sér
um rekstur Lestrarfélags Gnúpverja og styrkir það árlega með
fjárframlögum. Gróðursetti trjáplöntur i reit félagsins að
Stóra-Núpi.
Umf. Hrunamanna æfði mörg leikrit og hélt söngnámskeið.
Gróðursetti 2500 plöntur að Álfaskeiði. Trjáauppeldi á veg-
um félagsins er í Hvammi. Þar eru nú i uppeldi um 15 þús.
plöntur. Vinnur að iþróttavallagerð og byggingu félagsheimilis.
Hefur nýlega lokið sundlaugarbyggingu. Hefur 56 áskrifendur
að Skinfaxa.
Umf. Hvöt, Grímsnesi, Iék Leynimel 13 tvisvar. Bókasafn
félagsins telur 1150 bindi.
Skýrslurnar bárust betur en áður til U.M.F.Í. og er liér um
ánægjulega framför að ræða. Þessi sambönd sendu skýrslur
frá öllum félögum sínum eða 100%: U.M.S. Kjalarnesþings,
Dalasýslu, Norður-Breiðfirðinga, Strandasýslu, Skagafjarðar,
Eyjarfjarðar og Vestur-Skaftafellssýslu. Eina skýrslu vantaði
frá U.M.S. Norður-Þingeyinga og tvær frá þessum sambönd-
um: U.M.S. Borgarfjarðar, Vestfjarða, A.-Hún. og S.-Þing. —
Takmarkið er, að bvert einasta héraðssamband sendi allar
skýrslurnar fyrir 1. maí ár hvert.
D. Á.