Skinfaxi - 01.11.1954, Qupperneq 4
100
SKINFAXI
Frá Sydslesvigs danske Foreninger: Franz Win-
gender.
Frá Noregs Ungdomslag: Tliorleif Iversen, Odd-
mund Utskarpen, Ragnar Aamodt.
Frá Norges Bvgdeungdomslag: Berit Glorvigen,
Aase Björnholt.
Dagskrá fyrsta kvöldsins lýkur með því að fán-
arnir eru teknir niður með hátíðlegri viðhöfn. Utan
dagskrár notum við kvöldið til að kynnast livert
öðru. Sérhver mótsgestur festir í barm sinn merki
með áletruðu nafni sínu, og við merkið er nældur
borði með litum þjóðfána hans. Þetta er mikil hjálp,
og áður en gengið er til náða, hefur maður sannfærzt
um, að það sé hreint ekki vonlaust að læra að þekkja
]jessi 50—60 nöfn og þá, sem þau bera.
Gaman og alvara.
Kl. 8,15 að morgni eru allir komnir á kreik og
safnast saman á flötinni framan við skólann, ]jar sem
fánarnir eru dregnir að hún, meðan einn þjóðsöngv-
anna er sunginn. Síðan er snæddur morgunverður, en
kl. 9 er fundur settur og Bjarni Bjarnason, skólastjóri,
flvtur erindi um Laugarvatn og sögu þess. Á eftir er
Helgalaug skoðuð, hverinn og fleira undir leiðsögn
skólastjórans og annarra Laugvetninga. Fagurt er
Laugarvatn i sumarsól. En í nótt hafa englarnir grát-
ið og skógurinn er votur.
í hléinu eftir hádegisverðinn gefst okkur kostur á
að sjá það undur, að fullhakað brauð er telcið upp
úr sandinum niðri við hverinn. Seinna má sjá tvær
ungar stúlkur róta þarna í sandinum, eins og þær
haldi að brauð vnxi þar sem gorkúlur handa hverjum
sem liafa vill!
Kl. 2 hefst nýr fundur, þar sem tveir Finnar, Vas-
ama og Rutli, flytja framsöguræður um þjóðdansa og
samskipti þjóðanna. Því miður er eyrað enn of illa