Skinfaxi - 01.11.1954, Blaðsíða 7
SKINFAXI
103
1 Þrastaskógi.
kallinu. Þá er förinni snúið til Sogsfossp. og nýja virkj-
unin skoðuö. Furðulega langt er niður á botn þessa
mannvirkis, en þar kemur þó, að stigann þrýtur.
Skyldi nokkur leggja í að telja þrepin?
Við höfum haft langa úlivist í dag, og matarlystin
er i hezta lagi, þegar við komum heim að Laugarvatni.
Er við höfum satt hana, hefst samkomjh, þar sem dr.
Sigúrður Þórarinsson flytur fyrirlestur um náttúru
íslands, og sýnir hann jafnframt litskuggamyndir
víðs vegar að af landinu. — En livað kemur nú? Það
er áreiðanlega svolítið eftir af kvöldinu, þegar dr.
Sigurður liefur lokið sínum ágæta ])ætli, en menn
taka eigi að síður að hjóða góða nótt, eftir að liafa
tekið niður fánana með venjulegri viðhöfn. Það eru
aðeins nokkrir unglinganna, sem híða í þögulli spurn
eftir einhverju. En það er eins og það eigi ekki við,
að sumir haldi í kvöldið, þegar aðrir hafa kallað á
nóttina, og senn er salurinn auður.
Mánudagur rennur upp, bjartur og fagur. Við fá-