Skinfaxi - 01.11.1954, Blaðsíða 5
SKINFAXI
101
þjálfaö til að fylgjasl vel með sænskunni. En hjartað
skilur þvi betur og fagnar, þegar englarnir bjóða til
vinsamlegs samstarfs, þar sem þeir stiga bimneska
dansa uppi í skýjunum, svipta þeim loks brott og
breiða ylgeisla sólarinnar yfir jörðina og þerra tár
sín af grasinu og limi skógarins i einu vetfangi. Þá
leitum við út i fegurð lífsins.
Kl. 8.30 hefst samkoma, sem Danir og Sviar sjá
um. Minnisstæðasta atriði hennar er efalaust lit-
skuggamyndasýning Jolin Ingolfs. Ekki aðeins vegna
ágætra mynda, heldur var túlkun bans svo frábær, að
helzt minnti á fagurt ljóð. Annað, sem ekki gleymist,
eru samkvæmisleikir og þjóðdansar. Frændur okkar
eru öfundsverðir af þessum leikjum — en þeir veita
þér fúslega lilutdeild í þeim: þú, sem elskar leik og
dans, komdu á svona mót! En það er of sjaldan kvöld
og kvöldið er of stutt, við þvi máttu vera búinn. Áð-
ur en varir verðurðu að bjóða góða nótt. Kannski
svíkstu samt um að fara að sofa, —- kannski seztu
niður úti i mildri sumarnóttinni og byrjar að yrkja:
Hér á Laugarvatni það gengur glatt,
nú er gaman að vera til.
Iiver en pratar og synger med sínu nefi
ett samnordisk sprák — hér um bil ...
Eða e. t. v. ferðu í gufubað og iskalt steypibað á eftir.
Þá er nú ekki mikið orðið eftir af andríki, — þú
geispar og finnur, að þú ert bæði þreyttur og syfjaður.
Samt ertu árla á fótum laugardaginn 3. júlí. Veðr-
ið er dásamlegt, og' svo er guði og Grænlandslægðum
fyrir að þakka, að við kunnum að gleðjast yfir góð-
viðri. Þú byrjar í gufub.aðinu, bleypur síðan út í
vatn og syndir lítinn spöl. Úff, vatnið er kalt! Og
nú verðurðu að flýta þér, senn kemur fólkið út til
að hylla fánana og heilsa nýjum starfsdegi.
Þennan dag eru fluttir fimm fyrirlestrar. Það kynni