Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1954, Side 15

Skinfaxi - 01.11.1954, Side 15
SKINFAXl 111 -J)ijuróur Ljunnariion, ^Jdáiavíh : ÞE(^$KAPARSKÓL 1 Sá, sem dvelur um skeið meðal æsku nágranna- þjóðanna, og uppalenda hennar, kemst ekki hjá þvi að heyra rætt um herskyldnna, — þessa kvöð, sem allir hraustir drengir verða að inna af hendi innan við tvítugsaldurinn sem eins konar fórn i þágu föður- lands þeirra. Hér er heldur ekki um að ræða neina smáræðis fórn, sem hver æskumaður verður að leggja fram. Á okkar mælikvarða er hún ótrúlega stór, og eigum við sennilega mörg erfitt með að skilja það til fulls í fljótu hragði. Þessa starfsfórn, sem æskumað- urinn verður að færa ættjörð sinni á mesta þroska- skeiði lífsins, leysir hann af hendi á löngum tíma. Sá tími er, hér i nágrannalöndunum, frá 16 mánuðum og upp í 24. í flestum þeirra er tíminn nú orðinn 2 ár. Þegar málum er þannig liátlað, — þegar liver æskumaður verður að fórna ættjörð sinni tveimur af beztu árum ævi sinnar, hlýtur það á margan hátt að grípa inn í framtíðaráætlanir hinna ungu. Já, vísl er það svo, og varð ég víða áþreifanlega var við það. Kennaraneminn þarf t. d. að færa ættjörðinni sína fórn, áður en hann lýkur prófi. Guðfræðineminn þarf að sjálfsögðu að gera það líka, og allir aðrir, hvaða sérgreinir eða störf, sem þeir hafa hugsað sér að stunda. En þótt hér sé um að ræða stórkostlega fórn, seni hver æskumaður verður að leggja fram, og heimili hans, lieyrist enginn mögla. Oft heyrist að vísu, að þessi kvöð sé nokkur liemill á námsbraut margra, og

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.