Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1954, Side 16

Skinfaxi - 01.11.1954, Side 16
112 SKINFAXI raski áætlunum. En við því er bara ekkert að segja. Hver og einn verður að leggja fram sína fórn. Hjá því kemst enginn drengur, sem er heill heilsu. Ættjörðin krefst þess. Og strax og drengirnir komast á vilald- ur, og fara að veita lífinu einhverja athygli, er þeim sagt frá því, sem fram undan er. Þeir eru því við öllu búnir. Þótt íslenzk æska hugsi eðlilega mjög sjaldan um þessi mál, vila flestir, hvað herskylda í r.aun og veru þýðir, og hvernig æskumennirnir verja tímanum í þeim skóla. Þar er megináherzla lögð á hermennsku, lært að handleika nútíma vopn og drápstæki, til þess að geta verið við því búinn að mæta óvinum, ef þá kynni að bera að garði. í öðru lagi er tima æsku- manna varið til þess að vinna að ýmsum liernaðar- framkvæmdum, sem allar miða að sama marki: að vera sem bezt viðbúinn, ef styrjöld kynni að brjótast út enn þá einu sinni. Tíma og orku æskumanna, alla þessa mörgu mán- uði, er þvi í raun réttri varið til neikvæðra starfa, — starfa, sem stefna að því, að vera sem bezt undir það búinn að eijða verðmætum og tortíma manslífum. Sá tími, sem varið er til jákvæðra starfa, — til nytsamra, uppbyggjandi starfa í þágu þjóðfélagsins, mun tæpast umtalsverður. Þegar ég tók að hugleiða þetta, nokkru nánar en stundum fyrr, liraus mér hugur við slíku öfugstreymi. Ilvílík ógnar sóun á vinnuafli, sem nota mætti til nytsamra starfa! Hversu óendanlega margt gæti ekki þessi milljónaskari ungra, tápmikilla drengja unnið til góðs fyrir ættlönd sín, ef orku þeirra væri beint að jákvæðum störfum. Verkefnin bíða alls staðar, á ótal sviðum, í Iivaða landi sem er, eftir iðjusömum og starfsfúsum höndum. Já, hvílíkt öfugstreymi! Að sjálfsögðu er flestum þetta fullkomlega ljóst i herskyldulöndunum, en samt sem áður möglar eng-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.